Glettni - 18.01.1939, Page 5

Glettni - 18.01.1939, Page 5
OLETTNI KONUNGUR TÖFRAMANNA Árið lSlOfdvaldi í Rómaborg frægas'i töfra- maður peirra tíma, Torrini, (réttu nafni lict hann Grisi greifi) og heppnaðist honum þá að fá leyfi til þess að sýna sjál’um páfan- um, Piusi VII, listir sínar. Nú reið honum á að finna upp óvenjulega slóttugan galdur — og hamingjan var með Torrini í þetta sinn. Sama daglinn og liann átti að mæta hjá páfanum varð honuni reikað inn til úr- sniiðs nokkurs og á meðan hann var að tala við úrsmiðinn, kom þangað þjónn frá L. kardinála og spurði, hvort búið væri að gera við úr húsbóndans. „Ég skal sjálfur koma ineð úrið til há- æruverðugs kardinálans í kvcld'“, svaraði úr- smiðurinn og síðan sagði hann Torrini frá því, að kardinálinn teldi úr þetta ÍO.COD líra vdrði, þar eð hann áliti það alveg einstakt í sinni röð og annað eins fyrirfyndist ekki í heiminum. „En þetta er rangt hjá honum“, sagði úrsmiðurinn, „því í gær kom t l mín ungur aðalsmaður, sem vildi selji mér úrið sitt fyrir 1000 líra. Það er nákvæinlega eins og úr kardinálans, aðeins skjaldarmerkið er öðruvísi". Þá datt Torrini gott ráð í hug. Hann fékk úrsmiðinn þegar til þess að kaupa úrið af aðalsmanninum og grafa á það skjaldarmerki kardinálans, svo úrin tvö voru nákvæmlega eins. Þess er og vert að geta, að Torrini fekk úrsmiðinn jafnframt til þess að lofa því liá- tíðlega að þegja yfir þessu. Um kvöldið fór allt fram eins og áður hafði verið ákveðið. Torrini sýndi listir sínar fyrir páfanuin og kardinálum hans og meðal þeirra var L. kardináli. Síðasta atriðið á sýn- ingarskránni var galdurinn með úrið. Torrini bað um að fá lánað úr, en þegar þau buðust, vildi hann ekkert þeirra, unz L. kardináli bauð honum sitt úr. Torrini dáðist mjög að þess- um fáséða dýrgrip, og kastaði því síðan með mestu rósemi upp í Ifafííð. Orið féll niður á gólfið og mölbrotnaði. Á1 ir sem viðstaddir 'voru horfðu forviða og skelfdir á þetta til- tæki, ;o g. L. kardinálj fölhaði í framan og hafði það á orði, að þetta væri heldur lélegt grín. En Torrini lát þetta ekkert á sig fá, heldur stappaði hann fótunum á úrið þangað til það var sundurmolað í smábrot. Auðvitað var það úrið, sem hann hafði keypt, sem hann gjöreyðilagði svona, en úr kardinálans var óskemmt í vasa hans. Nú átti hann aðeins það eflir, að lcoma úrinu kardinálans í va a páfans. Hann tók upp hrærikrús og lét hana leifarnar af brotna úrinu, síðan lét hann einhverskcnar duft þar samanvið og kveik i í því, svo að gufu lagði upp úr ílátinu. Hrærði hann inú í því sem ákafast, og sagði á með- an frá ýrnsum undramyndum, er hann kvað t sjá i reyknum. Voru menn forvitnir og vildu líka fá að sjá þessi undur og loks kom páfinn sjálfur og skygndist niður1 í krúsina. „Ég sé ekkert“, sagði liann og gekk aft- ur til sæiis síns. En töframaðurinn fullv.'ss- aði liann um, að bráðlega myndi gátan verða ráðin — hann hafði nefnilega notað tæk'- færið og stungið heila úrinn í vasa páfans. Síðan hélt hann áfrain kukli sínu, bræddi í deiglu Lifarnar af brotna úrinu og sýndi lcks áhcrfendum oíurlí inn gullmo'.a,sem voru einu leifar úrsins. „Nú skal ég með töfrum rnínunr og fjcl- kyngi brevta þessum gullmola í hið uppruna- lega úr“, sagði Torrini, „en breytingin fer fra(m í vasa þess manns hér inni, sem menn munu sízt ætta að vilji beita mig nokkrum hrekkjum. „Hvað mynduð þér nú segja, Torrini“, sagði páfinn, „ef ég krefðist þess, að úrið fyndist hjá mér?“ „Þér þurfið, yðar háæruverðugheit, aðeins að fyrirskipa mér“, sagði Torrini „og skal eins verða og þér viljið. Leitið í vösum yðar“. Og sjá — páfinn tók upp úrið. Torrini óx ákaflega í áliti eftir þetta og var leystur út með ríkulegum gjöfum. En hann gat þakk- að sínum sæla fyrir það, að .þetta skeði ekki hundrað árum áður, því þá hefðu örlög hans orðið á annan veg. Þýtt.

x

Glettni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glettni
https://timarit.is/publication/1187

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.