Glettni - 18.01.1939, Page 6

Glettni - 18.01.1939, Page 6
6 GLETTNI Framh. af bls. 3 „Finnst yður hann Árni, sonur bóndans hérna á næsta bæ ekki vera laglegur piltur? ‘ Hún leit snöggt á mig og sagði: „Þekkið þér hann?“ Og rétt á eftir: „Mér finnast þeir allir lura'.egir og leiðinlegir piitarnir hér í sveitinni, það er eLkert gaman að vera með þeim“. „Þér eruð Fka svo daufar og kal'dlegar í viðmóti við þá, þér þuríið að gefa þeim ögn undir fótinn og fjörga þá, þeir breytast til batnaðar við það. Annars eru þeir allir dauðskotnir 1 )ður“. „Uss, það vaniaði ná bara að ég gæfi þeim undir fótinn! Hver einasti þeirra myndi strax álíta, að við værum trúlofuð og hlaupa til pabba daginn ef.ir og biðja mín. Hér í sveit- inmi e:ru allir hlutir teknir svo alvariega, að ekki er hægt að skemmta sér án þejs að tal- að sé um léttúð og synd. En ég get verið kát, þegar ég vil, ég þótti hrókur alls fagn- aðar, þegar ég v:ar í borginni, þar er hægt að skemmta sér ‘. Þannig skröfuðum við saman á Ieiðinni inn að á. Það var steikjandi hiti og sólskin, sterkur skógarihnur tog fuglasöngur. Og okk- ur kom seinna4 saman um, að rétt væri að fá sér bað í ínni til hressingar. „Við skul- um koma lengra uppeftir“, sagði hún, — „Iengra frá veginum, ég veit af lygnum og djúpum hyl þar“. Og ég var því hjartanlega samþykkur, hylurinn réyndist Iygn og djúp- ur og yndislegt að baða sig með henni. Eftir þetta yorum við Rún all'mikið sam- an og hvern góðviðrisdag, á meðan ég dvaldi þarna, fórum við f.nfa í á fil þess að synda. Mér fannst hún verða glaðlegri og yndislegri með hverjum deginum sem leið og þetta eru mér ógleymanlegar stundir. — Vinur minn, presturinn, hefir boðið mér að heimsækja sig næsta sumar og avelja hjá séreins lengi og mig lystir. Hann segir að það fjörgi heimilislífið. Og sannarlega hlakka ég mikið til að ræða við hann um draumlyndi og sakleysi æskunnar og baða mig þess á milli og synda í ánni með Rún. Eitt „seriöst“ vers O, gæt þín, lát ei mammons mátt myrkva þín augu og blinda. Hataðu bíla og buigeiss hátt, sem burtu alþýðleik hrinda. Vinn fyrir land og fósturborg forðastu þá, er svindla. Og hverja láttu sefa sorg sígarettur og vindla. Æ. Æ. Kaupsýslumenn og aðrir sem þurfa að auglýsa, ættu að auglýsa í „Glettni" því fólk tekur æfinlega best eftír auglýsingum í gaman blöðum, og „Glettni,, kemur víða við SKRÍTLUR — Er það satt að konan þín sé hræðslu- gjörn og taugave'kluð. — Nei, það skil ég varla, hún getur stað- ið tímunum sanian fyrir framan spegilinn. — Pabbi, veiztu, hvað tunglið er þungt? — Nei_, góði minn, það veit enginn, því það er ýmist að stækka eða minnka. Móðirin: „Uss, Hanni minn, þú mátt ekki segja svona ljót orð. Hanni: „Laxness, Melax o. fl. gera það. Móðirin: „Þá máttu ekki Ieika þér oftar við svo vonda stráka". Um aldamótin síðustu kom bóndi nokkur í kaupstað; hitti faktorinn þar og bað hann að útvega sér mórauðan hvolp undan pólitík- inni, því hann hafði heyrt að það væri svo gott fjárhundakyn af henni.

x

Glettni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glettni
https://timarit.is/publication/1187

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.