Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1888, Blaðsíða 111
107
hið sama er um fiskiföng. Eru skýrslurnar hjer að framan þannig eingöngu samdar ept-
ir skýrslum þeim, sem kaupmenn gefa um vöruflutmnga með hverju einstöku skipi, og
sem viðkomandi lögreglustjórum er skylt að hafa eptirlit með og rita á vottorð sín um
að sjeu svo nákvæmar, sem kostur er á og samkvæmar vöruskrám hlutaðeigandi skipa.
jbrátt fyrir þessi afskipti lögreglustjóra af skýrslunum munu eigi, einkum hvað aðfluttar
vörur snertir, öll kurl hafa komið til grafar fyrir árin 1886 og 1887, fremur en að undan-
förnu, og mun það eigi fjarri sanni, að gjöra ráð fyrir að flestar útlendar vörur, máske
að kornvöru undantekinni, sjeu svo sem 10“/° oflágt taldar í skýrslunum að framan og á
einstöku vörutegundum t. d. hinum svo nefndu »andlegu nauðsynjum« (prentuðum hókum,
hljóðfærum o. fl.) má gjöra ráð fyrir miklu meiri vanhöldum. Skýrslurnar um útfluttar
vörur eru að öllum jafnaði að mun rjettari en skýrslur um aðfluttar vörur, þó talsvert
vanti á að þær sjeu full áreiðanlegar; og að því er snertir útflutning á peningum frá
verzlunum hjer á landi er það líka aðgætandi, að hann verður alloptast á þann hátt, að
peningarnir eru sendir með póstávísunum, og koma því eigi fram í skýrslunum. — þessi
2 ár, sem skýrslurnar að framan ná yfir, var sent til útlanda í póstávísunum:
1886 508,178 kr. 20 aur.
1887 451,234 — 78 —.
Skýrslurnar um að og útfluttar vörur frá verzlunarstöðunum Búðum og Ólafsvík fyrir
árið 1887 komu eigi hingað fyr en búið var að semja og prenta skýrslurnar að framan og
urðu því eigi teknar með.— Vöruflutningur til og frá þessum stöðum er eigi ósvipaður því
sem verið hefur að undanförnu, og skal hjer getið hinna helstu vörutegunda.
a. Aðfluttar v'örur:
Búðir. Ólafsvík.
Búgur 24,000 pund 27,968 pund
Búgmjöl 5,000 — 6,500 —
Overheadmjöl 6,000 — 5,200 —
Bankabygg 15.000 — 18,900 —
Baunir » — 1,120 —
Hrísgrjón 10,000 — 12,000 —
Brauð allskonar 250 kr. 2,510 kr.
Kaffibaunir 3,000 pd. 3,920 pd.
Kaffirót 1,300 — 3,210 —
Sykur allskonar 4,700 — 7,928 —
Ymsar nýlenduvörur 200 kr. 376 kr.
Salt » 1,405 tn.
Neftóbak og munntóbak 374 pd. 840 Pd.
Vindlar og reyktóbak 1082 kr. 225 kr.
Brennivín og vínandi 1,001 pt. 2,996 pt.
Onnur vínföng allskonar 751 kr. 423 kr.
Ö1 136 pt. 106 pt.
Klæði, ljerept og vefnaður
allskonar svo og tvinni 1,400 kr. 1,397 kr.
Kaðlar og færi 200 — 1,255 —
Járnvörur smærri og stærri 300 — 639 —
Skinn og leður 100 — 180 —
Ymsar aðrar vörutegundir c. 1,500 — 1,700 —