Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1898, Page 311
307
1 4. gr. laga um hagfrœðisskvrslur frá 8. nóvember 1895 er svo ákveðið, að skip-
stjórar á þilskipum og formenn á opnum bátum, sem til veiðiskapar ganga, skuli láta hlut-
aðeigandi stjórnarvöldum i tje skvrslur um það, hve mikið aflazt hafi á skipum þeim og
bátum, er þeir hafa verið fyrir. Sama skylda hvflir á útgérðarmönnum, svo og á þeim, sem
hafa selveiði, laxveiði, fuglatekju og dúntekju. Um fyrirkomulag og undirbúning skýrslnanna
skyldi landshöfðingi ákveða. Hjeraðlútandi reglugjörð með skýrsluformum var eigi út gefin
fyr en 20. apríl 1897, svo að eðlilegt er, að skýrslur þœr fyrir það ár um fiskatla á opnum
bátum, selveiði o. s. frv., og um afla á þilskipum sjeu eigi svo fullkomnar sem œskilegt væri,
og vantar þessar skýrslur algerlega úr Þingeyjarsýslu, Norðurmúlasýslu og Seyðisfjarðarkaupstað.
bað hefir samt þótt ástæða til, að láta þessar skýrslu birtast í landshagsskýrslunum til sam-
anburðar síðar meir. Munu þessar skýrslur fyrir 1897 verða skýrðar nokkuð nánar og bornar
saman við aðrar hagfræðisskýrslur, svo sem verzlunarskýrslurnar, í væntanlegum athugasemdum
við samskonar skýrslur fvrir 1898. Þess skal getið, að á skýrslurmm um afla þilskipa Thor-
steinssons & Co á Bíldudal og fáeinurn fleiri skipum var allur fiskur talinn í einu lagi, og
varð að ætlast á um það, eptir öðrum skýrslum, er fyrir hendi voru, hve mikið væri þorskur,
hve nrikið snráfiskur og s. frv.