Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 10

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 10
Björg Orvar á fermingardaginn guð gefðu hjarta mínu þijár áttir með þremur blíðum skuggum gefðu því lán í brothættum hring og trega sem má höggva sundur í tvennt láttu það ekki glata yndi sínu í þúsund þunga pytti vona og haltu þessum höndum áherslulaust að bijósti og gagnauga ekki bara á fermingardaginn forgangsröð hversu oft á að bjarga sér á yfirlæti píslarvættis þegar vonbrigðin bera svip af hreinlífi hve lengi hægt að útiloka endurkomu söguhetjanna úr síðasta kafla (og halda kviknöktum játn- ingum í taumi) í þessum heimi þar sem veggir eru fóðraðir fiðri draumfugla þar sem jörðin er ijóð og flosmjúk fyrir huggulegar lendingar ástsjúkra sendinga... 10 BJARTUR OG FRÚ EMILÍA • TÍMARIT

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.