Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Side 31

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Side 31
4 Pest í Buda / Orustan um Grænland ►- Svið 2, eyðilagt afÓfelíu. Innantóm brynja. Öxi í hjálminum. HAMLET Ofnamir svæla í friðlausum Október. A BAD COLD HE HAD OFIT JUST THE WORST TIME JUST THE WORST TIME OF THE YEAR FOR A REVOLUTION Gegnum úthverfm gengur blómstrandi steinsteypa. Sívagó læknir grætur úlfa sína Á VETURNA KOMU ÞEIR STUNDUMINN í ÞORPIÐ RIFU SUNDUR STÖKU BÓNDA tekur afsér maska og búning. HAMLET-LEIKARINN v Ég er ekki Hamlet. Ég leik ekkert hlutverk lengur. OrÖ mín hafa mér ekkert að segja lengur. Hugsanir mínar sjúga blóðið úr myndunum. Drama mitt á sér ekki lengur stað. Að baki mér er leikmyndin sett upp. Af fólki sem engan áhuga hefur á drama mínu, fyrir fólk sem lætur sig það engu varða. Ekki heldur mér vekur það áhuga lengur. Ég leik ekki lengur með. Án þessaðHamlet-leikarinn taki eftir setja sviðsmenn inn kœliskáp og þrjú sjónvarpstœki. Suð frá kæliskápnum. Þrjár rásir án hljóðs. Sviösmyndin er minnismerki. Hún sýnir í hundraðfaldri stækkun mann sem breytti sögunni. Steingerving vonar. Nafn hans skiptir ekki máli. Vonin rættist aldrei. Minnismerkið liggur á jörðinni, reist þrem árum eftir opinbera útför þess hataða og dáða af eftirmönnum hans við völdin. Það er búið í steininum. í rúmgóðum nef- og eymagöngum, húð- og klæðisfellingum mölvaðrar styttunnarbúahinirfátækariíbúarhöfuðborgarinnar. Hæfdegur tími líður frá hruni minnismerkisins fram að uppreisninni. Ef drama mitt ætti sér stað ætti það sér stað á tíma uppreisnarinnar. Uppreisnin byrjar sem gönguför. Móti umferðinni á vinnutíma. Strætin bergmála undan hinum ^ fótgangandi.Hérogþarerbifreiðvelt. Martröðhnífakastara:Hægferðeftir einstefnugötu að óafturkallanlegu bifreiðastæði umkringdu af vopnuðu göngufólki. Lögreglumönnum sem standa í veginum er ýtt td hliðar. Þegar gangan nálgast stjómarbyggingamar mætir henni keðja lögreglumanna. Smáhópar myndast, ræðumenn stíga fram. Út á svalir stjómarbyggingar BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT 31

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.