Víkurfréttir - 11.09.1980, Blaðsíða 5

Víkurfréttir - 11.09.1980, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 11. september 1980 5 Fjölbrautaskóli Suöurnesja settur: Tímabært að móta framtíðar- stefnu skólans á öllum sviðum - sagöi skólameistari í skólasetningarræðu sinni Fjölbrautaskóli Suðurnesja var settur i Samkomuhúsinu Garöi 1. sept. sl. Þóröur Gislason sveitarstjóri þar, flutti ávarp af hálfu Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesj- um, og Ester Ólafsdóttir lék á slaghörpu verk eftir Debussy. Síöan flutti Jón Böövarsson skólameistari, skólasetningar- ræöu og gerði þar grein fyrir þeim framkvæmdum sem fram hafa farið í sumar og getiö hefur verið hér í blaöinu áöur. ( lok ræðu sinnar sagði Jón: ....Áður vék ég að þvi að nú er timabært að móta framtíðar- stefnu skólans á öllum sviðum. Ég nefni nokkra þætti þess verks: 1. Gera þarf áætlun um hvaöa námssvið og brautir og einstakar kennslugreinar þykir æskilegt að hafa í boði á vegum skólans. %. ( tengslum við þá áætlun þarf að ákvarða húsnæðisþörf- ina - bæði vegna kennslu og ann- arrar starfsemi. Ég minni á að hingaö til hafa engar umræður oröiö um samkomusal, húsnæði fyrir félagsstarf nemenda, mötu- neyti og fleira. Litlum sport- báti ásamt áhöfn bjargað Sl. laugardag var litlum sportbáti, Sæör, bjargað frá því að reka upp í klettanafyrirneöan Fiskiöjuna. Það var kl. rúmlega 2 á laugar- daginn að tveir fullorðnir karl- menn ásamt barni fóru á bátnum frá Keflavíkurhöfn og ætluöu inn í Njarðvík, en er þeir voru komnir rétt út fyrir hafnargarðinn brotn- aði stykki í gír bátsins með þeim afleiðingum aö hann tók að reka i átt að klettunum, enda var norð- an garri og þó nokkur straumur þarna. Það varö mönnunum til happs, að menn er voru að störifum í höfninni urðu fjótlega þess áskynja hvað var á feröinni. Vélbátarnir Hvalsnes og Óli Toft- um fóru bátnum til hjálpar, en þá átti sportbáturinn aðeins ófarna nokkra metra upp í klettana. Pétri Sæmundssyni á Óla Toft- um tókst að sigla það nærri aö hægt var að koma taug í bátinn og draga hann frá klettunum og til hafnar. Ekki var áhöfn sportbátsins meint af þessu, en óhætt er að fullyröa að illa hefði getað farið ef ekki hefði sést strax til báts- in. - epj. 3. Koma þarf fastri skipan á ýmis stjórnunarleg atriði - til dæmis varöandi starfsskiptingu og valdsvið ráðuneytis, skóla- nefndar, skólastjórnar, kennara- funda, deildarstjóra og einstakra starfsmanna svo sem skóla- meistara, aðstoöarskólameist- ara, áfangastjóra o.s.frv. 4. Hyggja þarf að ýmsum menningarlegum þáttum sem afskiptir hafa verið til þessa í starfsemi okkar. Hérervíðlendur akur óplægður, og reinarnar geta orðið margar ef haglega er unnið. Mér er fleira í hug en frjálst félagsstarf nemenda, skipuleg kennsla í bókmenntum og listum og fyrirlestrar eða heimsóknir menningarhópa. Ég tel að einnig þurfi að koma á tengslum við stofnanir sem til eru, svo sem Byggðasafn Suður- nesja og áhugafélög eða hópa eins og leikfélögin á skólasvæö- inu og myndlistarhópinn sem kenndur ervið Baöstofuna. Skól- inn getur bæði veitt margháttaða aðstoð og notið góðs af slíkri samvinnu. Samstarf aöila sem til skamms tíma unnu án tengsla við aðra á takmörkuðum vett- vangi bar ríkulegan ávöxt á Menningarvöku Suðurnesja sl. vor. Vel grunduö og markviss starfsemi í Fjölbrautaskóla Suð- urnesja gæti a margan hátt komið að góðu gagni. Hér sem víðar eru orð til alls fyrst, en þau eru lítils virði nema athafnirfylgi. Safna þarf saman hugmyndum, velja síðan úr - og virkja loks alla tiltæka krafta til athafna. Skólanefnd FS fór þess á leit fyrir skömmu að Kennarafélag skólans kysi eins konar þróunar- nefnd sem semdi ályktun um stefnu og starfsemi skólans í framtíðinni og reifaði síðan á fundi með skólanefndinni í októ- bermánuöi n.k. Stjórn Kennara- félagsins tók hugmyndinni vel. Ég beini nú sams konar tilmæl- um til annarra aðila sem að skól- anum standa, sveitarfélaga og nemendaráös. Jafnframt er æskilegt að fleiri aðilar komi hér við sögu - bæði félagasamtök og áhugasamir einstaklingar. Vera kann að sumum finnist helst margir til kallaöir - en ég er ekki á því máli. Ég minni á að margir hafa unnið að framgangi skólans þau fjögur ár sem hann hefur starfað - og talsvert hefur áunnist vegna þess að aðstand- endum hans hefur þótt betra að feta bratta stiga en sléttar götur, enda liggja ekki aðrar leiðir upp á háa tinda. En þangaö liggur leiðin." Nemendafjöldi veröur nú svip- aður og á síðustu haustönn, en ekki er unnt að nefna tölu ná- kvæmlega sökum þess að á síðustu dögum hafa streymt að nemendur sem hafa ekki látiö til sín heyra fyrr, og reynt eraðtaka þá inn i skólann eins og kostur er. Jafnframt er vitað um nokkra nemendur sem voru búnir að láta skrá sig en ekki koma, heldur fara í aðra skóla eða fresta námi til áramóta af ýmsum sökum. Frá skólasetningu Fjölbrautaskólans í Garði KEFLAVÍK Gjaldendur út- svara og aðstöðu- gjalda, athugið 15. september n.k. eindagast allar eftir- stöðvar útsvara og aðstöðugjalda ef um vanskil er að ræða. gerið skil í tíma og forðist þannig auka- kostnað og önnur óþægindi. Innheimta Keflavíkurbæjar

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.