Víkurfréttir - 23.10.1980, Side 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 23. október 1980 3
Hljómplötu- og hljómtækja-
deild Fatavals stækkar
Eins og vegfarendur viö Hafn-
argötu hafaoröiðvarirviðstanda
nú yfir miklar breytingar hjá
versluninni Fataval. Unniöervið
aö skipta um gler og glugga-
karma auk þess sem unnið
verður við lagfasringu á framhlið
verslunarinnar.
Þá hefur verslunin einnig tekið
stakkaskiptum innandyra, því
þar hafa verið gerðar umtals-
verðar breytingar og við þær
hefur gólfpláss aukist til muna.
Hljómplötu- og hljómtækja-
deildin hefur verið stækkuð
verulega og vöruval þar aukiö.
Þá hefur verið ráðinn nýr starfs-
maður til að annast þessa deild,
en það er Davið Jónatansson,
sem er hljómplötusöfnurum aö
góðu kunnur.
Hleypur 10-15
kílómetra á dag
(vor og sumar bar all nokkuð á
góðum trimm-áhuga meðal bæj-
arbúa. Nokkuð var algengt sjón
að sjá fólk á hjólum, að skokka
eða á göngu. Nú viröist hins
vegar að mestu vera dregið úr
þessu, þó með fáum undantekn-
ingum.
Ein af þessum undantekning-
um er hin athyglisverða frammi-
staða Grétars Árnasonar, sem er
sjómaður og stundar sjóróðra á
m.b. Gunnari Hámundarsyni.
Hann lætur það samt ekki aftra
sér frá því að hlaupa á hverjum
einasta degi 10-12 kílómetra i
hvaða veðri sem er, og hefur
hann stundað þetta hlaup í um 7
mánaða skeiö. Einn daginn ekki
alls fyrir löngu þegar veðrið var
hvað verst, hljóp hann í einni lotu
frá Keflavik, út í Garð, þaöan til
Sandgerðis og heim aftur, alls
um 20 km. Stóran hluta leiðar-
innar var hann með rokið í
fangiö, en samt tók það ekki
nema um 2 klukkutíma að hlaupa
vegalengd þessa.
(viötali við blaðið nýlega sagð-
ist hann vilja hvetja aðra
bæjarbúa til að koma út að
hlaupa, því holltværi það, en eftir
hlauþið út í Sandgerði á dögun-
um hefði hann ekki einu sinni
pústað. En þeim árangri námenn
ekki á einum degi heldur ættu
þeir að byrja á stuttum vega-
lengdum og bætasigsíðan smátt
og smátt.
Undir þessi ummæli Grétars
tökum við og hvetjum fólk til að
halda áfram trimminu, ekki
aðeins á sérstökum trimmdög-
um, heldur alltaf þegar tök eru á.
AUGLÝSINGASÍMI VÍKURFRÉTTA ER 1760
Iðnaðarmannafélag
Suðurnesja
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Iðnaðarmannafélagsins verður hald-
inn fimmtudaginn 6. nóvember n.k. kl. 21 í húsi fé-
lagsins, að Tjarnargötu 3, keflavík.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kynning á meistaraskóla
3. Önnur mál
ÁRSHÁTIÐIN
Árshátíð félagsins verður haldinn í Stapa, föstu-
daginn 7. nóvember n.k. og hefst með borðhaldi
kl. 19.
MATSEÐILL:
Heitir og kaldir réttir í miklu úrvali.
SKEMMTIATRIÐI
Hljómsveit Gissurar Geirssonar leikur fyrir
dansi til kl. 2.
Húsið opnað kl. 19.
Aðgöngumiðar seldir og borð tekin frá
föstudaginn 31. október milli kl. 16 og 19 í húsi
félagsins.
FÉLAGAR! FJÖLMENNUM OG TÖKUM MEÐ
OKKUR GESTI.
Stjórn - Skemmtinefnd
Suðurnesjabúar
Tökum að okkur alla innrétt-
ingasmíði eftir ykkar ósk.
ÖNNUMST:
alls konar
byggmga-
framkvæmdir
og viðgerðir.
SELJUM:
SMÍÐUM M.A.:
Útihurðir, svalahurðir,
bílskúrshurðir,
glugga,
lausafög í glugga,
sólbekki.
Saum, kítti,
skrúfur, gluggalista
o.m.fl.
Gerum föst tilboð ef óskað er.
Húsabygging hf. - Trésmiðja
Garði - Sími 7140