Víkurfréttir - 23.10.1980, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 23.10.1980, Blaðsíða 12
Míkur PCÉTTIC [ Fimmtudagur 23. október 1980 ] SPARISJÓÐURINN er lánastofnun allra Suöurnesjamanna. ANNAÐ KRÖFLUÆVINTÝRI? Orkubú Suðurnesja Samband sveitarfélaga á Suð- urnesjum hefur óskað eftir því við sveitarfélögin á Suðurnesj- um, að þau álykti hvert fyrir sig um að sameining fari fram á rafveitum á Suðurnesjum og ef til vill síöar meir verði stofnað sameiginlegt orkubú fyrir öll Suðurnes. Óskaö er eftir því að álit liggi fyrir, fyrir aðalfund SSS, sem haldinn verður í félagsheim- ilinu Festi, Grindavík, 1. nóv. n.k. Af þessu tilefni var eftirfarandi tillaga samþykkt í bæjarstjórn Njarövíkur: ,,Bæiarstjórn Njaróvikur sam- þykkir aó taka þátt i viöræóum um sameiningu rafveitna á Suó- urnesjum, enda verói aó þvi stefnt aó sameina sióar rafveit- urnar og Hitaveitu Suóurnesja i eina orkuveitu. Bæjarstjórn teiur nauósynlegt aó öll sveitarfélögin á Suóurnesjum séu þátttakendur i sliku fyrirtæki". Gæti sameining rafveitnanna því orðið fyrsta skrefið í að koma upp sameiginlegu orkubúi, að Framh. á 8. sfðu en þar stóð eftirfarandi: „Heldur virðist sorpeyðingar- stöð þeirra Suðurnesjamanna hafa verið téleg fjárfesting. Frönsk stöð var keypt fyrir 1.1 milljarð, en hefur verið meira og minna í lamasessi frá því hún kom til landsins. Raddir á Suöurnesjum segja, að Haraldur Gíslason, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, hafi haftforgöngu um aö kaupa þessafrönsku stöð, en á sama tíma og hún var keypt frá Frakklandi, séu Frakkarsjálfir að leggja niður stöðvar af þessari tegund vegna lélegrar reynslu af þeim. Reynsla Suðurnesja- manna af stöðinni ætlar greinilega ekki aö veröa miklu betri og því 1.1 milljarður farið fyrir lítið ..." Er nú ekki tími til kominn fyrir ráöamenn, að þeir geri hreint fyrir sínum dyrum og svari því hvað um sé að ræða og hverju sé um að kenna stöðvun stöðvar- innar? Þaö viröist allavega liggja á borðinu, að stöðin getur ekki gert það sem hún á að gera, hver sem orsökin er. Eins og fram hefur komið er Sorpeyðingarstöð Suöurnesja búin aö vera ógangfær sföan snemma í sumar. Eitthvað virðast ráðamenn eiga erfitt með að koma sér saman um orsök þess að stöðin er stopp. Alla vega halda sumir því fram að orsökina megi rekja til sprengingarinnar i stööinni, en aörir telja ástæöuna aöra. Þá hafa heyrst þær raddir aö stöðin sé bara ónýtt drasl, sem aldrei muni getaskilaö þvisemaf henni var í upphafi ætlast, og er í því sambandi sþurt, hvort þeir sem sáu um kaupin hafi ekki vitað hvað þeir voru að gera. ( Helgarpóstinum 10. okt. sl. var einmitt fjallað um mál þetta, 1.1 mlll|ar&ur ónothæfur Leikfélag Keflavíkur: BOEING, BOEING yfir æfingar á leikritinu ..Boeing, Boeing", eftir Marc Camoletti. Leikritið er farsi, fjallar um arkitekt sem býr i Keflavík og hefur þrjú viöhöld, þrjár flug- freyjur, og vin hanssem reynirað hjálpa honum úr ýmsum vand- ræðum sem arkitektinn kemst i. Leikendur eru Ingibjörg Guðnadóttir, Egill Eyfjörð, Auð- ur Ingvarsdóttir, Steinar Hjartar- son, Sigriöur Sigurðardóttir og Dagný Haraldsdóttir. Leikstjóri er Sævar Helgason. Frumsýning er ráðgerð 3. nóv- ember. Félagiö er ávallt í húsnæðis- hraki og hefur þurft aö æfa hingað og þangað, ÍGagnfræöa- skólanum, Víkinni og Æskulýðs- heimilinu, og þakkar félagið vel- vilja viðkomandi aöila. i_ciMCiciy rxcnavirvui iiciui nai~ ið vetrarstarf sitt og standa nú Málverka- sýning á sjúkrahúsinu Málverkasýning verður opnuð í Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknis- héraðs í tilefni opnunar efri hæðar nýbyggingar sjúkrahúss- ins, þann 31. okt. n.k. Eftirtaldir listamenn sýna þar verk sín: Ása Ólafsdóttir, Gunnar örn, Eggert Guðmundsson, Magnús A. Arnason, Steinunn Marteins- dóttir, Vilhjálmur Bergsson og Jóhann G. Jóhannsson. TALNARUGL Eitthvaö virðast þeir hafa rugl- ast í tölum, skipulagsmennirnir, er þeir röðuðu númerum á húsin við Skólaveg. Ef jöfnu númerin frá 2-10 eru skoðuð kemur furðulegt í Ijós, því röðin er Þessi. Nr. 2 Ragnar Björnsson, nr. 8 Sjúkrahúsiö, nr. 4 Bókhaldsstofa Árna R. Árna- sonar og síðan nr. 10 Tannlækn- isstofan. Sem sé í stað þess aö telja 2-4-6-8-10 telja þeir 2-8-4- 10. Hætt er við að nemendur á barnaskólaprófi fengju ekki háa einkunn ef þeir teldu svona. MalbikaÖ i Keflavík og Njarðvík Að undanförnu hefur vinnu- flokkurfrá Keflavíkurbæveriðaö malbika götur í Keflavik og Njarðvík. Lokið er við að mal- bika Hafnarbrautina i Njarðvík, hluta Heiöarbrautar í Keflavík og unnið er að maibikun i Eyja- byggð frá Vesturgötu að Iðavöll- um, þ.e. hluti Eyjavalla, Álsvalla og Elliöavalla.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.