Víkurfréttir - 06.11.1980, Side 3
VÍKUR-fréttlr
Fimmtudagur 6. nóvember 1980 3
Göngustígarnir sem hurfu
vegna leti ökumanna
Núna síðustu vikur hefur
bæjarfélagið staðið fyrir malbik-
unarframkvæmdum hér í Kefla-
vík. Er allt gott um það að segja,
nema hvað ökumenn bifreiöa
virðast eiga erfitt með að sætta
sig við takmarkanir og truflanir
sem óhjákvæmilega fylgja svona
framkvæmdum. Er það mjög
áberandi hvaö ökumenn eiga
erfitt með að koma sér í og úr
Eyjabyggð, nema þá með þeirri
aðferö, að fara stystu leiö af
augum og þá beint niður í Garða-
hverfið og þá yfir nýuppgróið
svæðið milli Eyjabyggðar og
Garðahverfis. Notast þá öku-
menn við gangstíga sem gerðir
voru á milli hverfanna, og hafa
eyðilagt þá þannig að þeir eru
eitt drullusvað og engum fært
um þá nema fuglinum fljúgandi.
Enda reyna ökumenn ekki
lengur að keyra eftir þeim, en
beita bílum sínum ótæpilega á
gróöurinn beggja vegna við
göngustigana, sem voru göngu-
stigar fyrir fjórum vikum síðan,
en eru nú ömurleg minnismerki
um tillitsleysi.
Þess má geta að Lionsmenn
hafa undanfarin sumur sáð i
svæðið milli Garðahverfis og
Eyjabyggðar með góðum
árangri og naut þessi framkæmd
Lionsmanna sín til fulls nú í
sumar. Bæjarstarfsmenn tóku
sig til og settu stórgrýti við enda
þeirra gatna sem að „gangstígn-
um heitna" liggja, til að hefta um-
ferð bila um hann. En nú má sjá
ökumenn beita bilum sinum fram
hjá stórgrýtinu og keyra inn á
lóðir þær sem að gangstignum
i'ggja.
Það veröur að segjast eins og
er, að þeir sem ekki nenna aö
keyra út Iðavellina og þannig
niður í bæ, heldur eyðileggja í
þess staö göngustíga og upp-
grætt svæði til að spara sér eina
eða tvær minútur, ættu að sjá
sóma sinn í því að lagfæra þær
skemmdir sem þeir hafa valdið.
Mérsýnist oft ekki muna nema
hársbreidd aö menn slengi bílum
sínum utan í stóru steinana og
stórskemmi þá, svo maöurtali nú
ekki um pústkerfin og fleira undir
bílunum sem eru í stórhættu.
Þessir hlutir eru kannski einnar
til tveggja mínútna viröi á dag?
elli.
Þetta voru göngustígar fyrir fjórum vikum síðan, en eru nú ömurlegt
minnismerki um tillitsleysi.
Glæsileg
CLINIQUE
gjafavörukynning
föstudaginn 7. nóv. frð kl. 14-18.
Snyrtifræðingarnir Ingibjörg Dalberg og
Ragnheiður Njálsdóttir frá CLINIQUE-umboðinu
verða á staðnum og veita allar upplýsingar.
Ef þér verslið fyrir 25 þús. eða meira af CLINIQUE-
snyrtivörum, fáið þér eftirtaldar vörur að gjöf:
Soap Mild - andlitssápa
Colour Rub - kinnalitur
D.D.M. Lotion - rakakrem
Pressed Powder - púður
Black Mascara - augnaháralitur
CLINIQUE
100% án ilmefna.
ANITA Verslun
Víkurbæjarhúsinu - Sími 3311
10% afsláttur
10% afsláttur til félagsmanna út á afsláttarkort.
Kortin gilda til 5. desember í sérvörubúðum fé-
lagsins og eru afgreidd á skrifstofunni í Keflavík
og í útibúum kaupfélagsins í Sandgerði og
Grindavík. Nýir félagsmenn fá afsláttarkort.
Gerist félagar.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA