Víkurfréttir - 20.11.1980, Side 12

Víkurfréttir - 20.11.1980, Side 12
12 Fimmtudagur 20. nóvember 1980 VÍKUR-fréttir Útboð Bæjarsjóður Keflavíkur óskar hér með eftir tilboð- um í uppsteypu viðbyggingar við Áhaldahús bæj- arins, Vesturbraut 10, Keflavík. Útboðsgögn verða afhentíafgreiðsluTæknideild- ar að Hafnargötu 32, Keflavík, frá og með þriðju- deginum 18. nóvember n.k. gegn 30.000 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. nóvember kl. 11. Bæjartæknifræðingurinn í Keflavík Útboð Bæjarsjóður Keflavíkur óskar hér með eftir tilboð- um í gatnagerð og lagnir í fjórða áfanga Heiðar- byggðar í Keflavík. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bæjar- tæknifræðings að Hafnargötu 32, Keflavík, III. hæð, frá og með miðvikudeginum 19. nóvember n.k. gegn 50 þúsund króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 27. nóvember kl. 11 f.h. Bæjartæknifræðingurinn í Keflavík Fjölbrautaskóli Suðurnesja Öldungadeild Þeir sem ætla að sækja um skólavist í öldunga- deild á vorönn 1981, þurfa að innrita sig og velja áfanga, fyrir 17. des. n.k. Kennsla hefst 19. janúar 1981. Skólameistari Teppahreinsun Suðurnesja Hreinsum teppi og húsgögn með háþrýstitæki. Margra ára reynsla okkar kemur þér að góðu. Sími 3952 og 3933. Stjórn Badmintonfélagsins. Frá v.: Friórik, Hjörtur, Georg, Þóröurog Þórarinn. Badmintonfélag stofnað í Keflavík 6. nóv. sl. varstofnaö Badmin- tonfélag Keflavíkur. Voru margir áhugamenn um badminton mættir á stofnfundinum, þarsem gengiö var frá stofnun félagsins og kosin stjórn. I stjórn félagsins eru: Hjörtur Zakaríasson, formaöur Georg V. Hannah, varaform. Friörik Ólafsson, ritari Þóröur Guðmundsson, gjaldk. Þórarinn .Hjálmarss. meðstj. Markmið félagsins er aö iöka badminton og kynnaíþróttinaog glæöa áhuga fólks á henni. Viö áttum viötal viö formann- inn, Hjört Zakaríasson. Hann gat þess að tildrögin að stofnun fé- lagsins væru þau, að eindregnar óskir hefðu komiö frá fjölda manns hér í bænum um aö koma badmintonfélagi á laggirnar, enda sýndi þaö sig aö áhuginn væri mikilloghafanúþegarveriö skráðir 110 félagar, og eru þeirá öllum aldri. Einnig gat Hjörtur þess, aö félagið hefði fengið aöstöðu til æfinga í nýja íþróttahúsinu og eru æfingar þegar hafnar. Eru tímar fyrir 16 ára og eldri á mánu- dögum og miövikudögum, en fyrir 15 ára og yngri ásunnudög- um. (athuguneraðfáþjálfaraog þá fljótlega eftir áramót. Aö lokum gat Hjörtur þess, aö stjórnin færi fram á þaö viö fé- lagsmenn, að þeir sýndu biö- lund, þvi allt veröi gert til aö fá fleiri tima svo allir geti fengiö hreyfingu og þjálfun viö hæfi. Þeir sem vilja gerast félagar í Badmintonfélagi Keflavikur er bent á þaö aö hafa samband við þá sem eru í stjórn félagsins. Allir ungir sem gamlir eru velkomnir til starfa i félaginu. elli. Viðgerð ó sorpeyðingar- stöðinni lokið Fyrir um tíu dögum siöan lauk hinni margumtöluðu viögerö á Sorpeyðingastöö Suðurnesja. En síöan hefur veriö beöiö eftir úttekt á viögeröinni aö hálfu er- lendra sérfræöinga. Ætti því nú aö vera lokiö og stöðin þvi loks komin í gang aftur. Þaö vekur furöu margra aö loks er viögerö hófst, tók þaö ekki nema 10 daga að gera viö stööina. En tekiö hafði um 5 mánuöi að þrátta um ábyrgð á tjóninu og ganga frá þvi að viðgerö gæti hafist. Ekki er enn Ijóst hver mun aö endingu greiða viögeröina á stööinni, en Sorpeyöingarstöð- in mun hafa útvegaö greiðslur fyrir viögeröinni nú. En áfram deila Varnarliöiöog hinirfrönsku framleiöendur um endanlega greiöslu tjónsins og endur- greiöslu á viögeröarkostnaöi. Ofn Sorpeyöingarstöövarinnar fer brátt aö snúast á ný

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.