Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 8
Tyrkland „Þið eruð öll hetjur,“ sagði Recep Tayyip Erdogan við mannfjöldann sem kom til að sýna stjórn hans stuðning á útifundi í Istanbúl á sunnudag. Tilefnið var valdaránstilraunin 15. júlí, sem brotin var á bak aftur ekki síst vegna þess að fjöldi fólks varð við áskorun Erdogans um að halda út á götur til að sýna andstöðu sína við valdarán. „Þið ættuð að vera stolt af ykkur. Hvert og eitt einasta ykkar barðist fyrir frelsi og lýðræði,“ sagði Erdog­ an, greinilega harla ánægður með þjóð sína. Tveir af þremur flokkum stjórnar­ andstöðunnar á þingi stóðu að úti­ fundinum ásamt stjórnarflokki Erdogans forseta. Þetta er haft til marks um mikla og líklega einstæða samstöðu bæði þings og þjóðar um Erdogan og stjórn hans gegn þeim sem stóðu að valdaránstilrauninni. Kemal KılıÇdaroğlu, leiðtogi sósíaldemókrata og forystumaður stjórnarandstöðunnar, segir valda­ ránstilraunina misheppnuðu hafa hjálpað stjórn og stjórnarandstöðu að ná saman. „Það er komið nýtt Tyrkland eftir 15. júlí,“ er haft eftir honum á vef arabísku fréttastöðvar­ innar Al Jazeera. Fjórða flokknum á þingi var þó ekki boðið að vera með, en það er Kúrdaflokkurinn HDP, enda þótt flokkur Kúrda hafi lýst yfir afdráttar­ lausri andstöðu við valdaránstil­ raunina. Erdogan og samstarfsmenn hans saka þingmenn flokksins um að styðja Kúrdahreyfinguna PKK, sem flokkuð er undir hryðjuverka­ samtök í Tyrklandi vegna baráttu hennar fyrir réttindum Kúrda. Sú barátta hefur harðnað á ný síðustu misserin með vopnuðum bar­ dögum, loftárásum stjórnarhersins og jafnvel hryðjuverkum í helstu borgum landsins. Fyrri valdaránstilraunir í Tyrk­ landi, sem flestar hafa heppnast, hafa verið runnar undan rifjum hersins og kemalistahreyfingarinn­ ar, sem hefur viljað tryggja aðskiln­ að trúar og stjórnmála í Tyrklandi í anda Kemals Atatürks, stofnanda tyrkneska lýðveldisins. Að þessu sinni segir Erdogan það hins vegar hafa verið trúarhreyf­ ingu klerksins Fethullah Gülen sem reyndi að steypa stjórninni. Tugir þúsunda hafa verið hand­ teknir eða reknir úr störfum þær þrjár vikur rúmar sem liðnar eru frá valdaránstilrauninni, flestir sakaðir um að vera liðsmenn í hreyfingu Gülens. Þar á meðal eru herfor­ ingjar, lögreglumenn, dómarar, kennarar og fréttamenn. Gülen sjálfur býr í Bandaríkjun­ um í sjálfskipaðri útlegð. Erdogan vill fá hann framseldan til Tyrk­ lands, en hefur enn ekki gefið út formlega framsalsbeiðni. gudsteinn@frettabladid.is Erdogan styrkir stöðu sína í Tyrklandi Meira en milljón manns hélt út á götur í Istanbúl til að sýna stjórn Erdogans forseta samstöðu. Bæði stjórnin og stjórnarandstöðu­ flokkarnir stóðu að fjöldafundinum, sem varð sá fjölmennasti í sögu Tyrklands í seinni tíð. Kúrdum var þó ekki boðið að vera með. Meira en milljón manns mætti á einn fjölmennasta útifund sem haldinn hefur verið í sögu Tyrklands, að minnsta kosti á seinni tímum, að ósk Erdogans forseta. FréTTablaðið/EPa Flokkarnir sem sitja á tyrkneska þinginu réTTlæTis- og þróunar- flokkurinn (ak) Stjórnarflokkur Erdogans forseta, aðhyllist íhaldssaman íslamisma. 317 þingmenn lýðveldisflokkurinn Sósíaldemókratar. Gamli kemalistaflokkurinn sem lengi var valdamikill í Tyrklandi. 134 þingmenn þjóðernishreyfingin Flokkur tyrkneskra þjóðernissinna. 40 þingmenn lýðræðisflokkurinn Flokkur Kúrda. 59 þingmenn Þú ferð lengra með SagaPro Mikið vökvatap á sér stað í löngum hlaupum ... SagaPro dró verulega úr þessum tíðu þvaglátum hjá mér og gerði það að verkum að ég gat drukkið ákjósanlegt magn af vökva í tengslum við hlaupin. Melkorka Árný Kvaran, framkvæmdastjóri og þjálfari Kerrupúls Saman áfram, SagaPro og ég Ég er með MS og velvirka blöðru, sem vill halda mér á salerninu dag og nótt. Nú hef ég séð við henni með því að nota SagaPro og fækka salernisferðum um meira en helming. Jóna Guðmundsdóttir SagaPro er vinsæl vara við tíðum þvaglátum Nú vakna ég úthvíldur Áður en ég kynntist SagaPro voru tíð þvaglát vandamál hjá mér. Þetta háði mér töluvert, bæði á daginn við útiveru og einnig á nóttunni. SagaPro hefur hjálpað mér mikið og nú vakna ég úthvíldur. Hjálmar Sveinsson, verkefnastjóri NÝJAR UMBÚÐIR SagaPro er fyrsta íslenska náttúruvaran sem hefur farið í gegnum klíníska rannsókn. Fæst í öllum helstu apótekum, matvöru- og heilsuverslunum. www.sagamedica.is MINNA MÁL MEÐ SAGAPRO Þið ættuð að vera stolt af ykkur. Hvert og eitt einasta ykkar barðist fyrir frelsi og lýðræði. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands 9 . á g ú s T 2 0 1 6 þ r i ð j u d a g u r8 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 3 5 -1 5 6 C 1 A 3 5 -1 4 3 0 1 A 3 5 -1 2 F 4 1 A 3 5 -1 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.