Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 26
Daimler, móðurfyrirtæki
Mercedes Benz, hefur tilkynnt
áform um að reisa aðra bíla-
verksmiðju sína í Ungverja-
landi sem á að verða tilbúin árið
2020. Daimler mun fjárfesta
fyrir 134 milljarða króna í þess-
ari nýju verksmiðju sem rísa mun
í Kecskemet og skapa 2.500 ný
störf. Verksmiðjan verður með
allra fullkomnasta móti og þar
verða smíðaðir bílar bæði með
framhjóla- og afturhjóladrifi og af
mörgum bílgerðum og mun verk-
smiðjan samhliða geta smíðað
hvaða bíl sem er. Þar verður hægt
að smíða 150.000 bíla á ári. Stjórn-
völd í Ungverjalandi fagna mjög
tilkomu þessarar nýju verksmiðju
og eru skattatilslakanir stjórn-
valda til handa Daimler metnar að
virði 56 milljarða króna.
Mikil framleiðsla Mercedes Benz í
Ungverjalandi
Sú verksmiðja sem Daimler
starfrækir nú þegar í Ungverja-
landi er einnig í Kecskemet og
þar hafa nú þegar verið smíðaðir
500.000 bílar frá því verksmiðj-
an var opnuð árið 2012. Þar vinna
nú meira en 4.000 manns og í
fyrra voru smíðaðir þar 180.000
Mercedes Benz bílar af gerðun-
um B-Class, CLA og CLA Shoot-
ing Brake. Mercedes Benz hefur
ekki sagt frá því hvaða bílgerðir
verða smíðaðar í nýju verksmiðj-
unni. Nýja verksmiðjan verð-
ur sú fyrsta hjá Mercedes Benz
sem getur bæði smíðað litla og
stóra fólksbíla Mercedes Benz.
Mercedes Benz keyrir nú allar
sínar verksmiðjur á fullum af-
köstum og á í erfiðleikum með
að framleiða nóg. Audi er einnig
með verksmiðju í Ungverjalandi,
sem og Suzuki og General Mot-
ors. Ungverjaland er því að verða
heilmikið bílaframleiðsluland þó
svo ekkert ungverskt bílamerki
sé til.
Benz reisir sína aðra Bíla-
verksmiðju í ungverjalandi
Audi, Suzuki og General Motors eru einnig með bílaverksmiðjur í Ungverjalandi.
Starfsfólk verksmiðjunnar í Kecskemet fagna sínum fimmhundraðasta bíl.
Þriggja, fjögurra og sex strokka vélar BMW.
Eftir mikla aukningu í sölu nýrra
bíla í Bretlandi á síðustu árum
hefur nú hægt á og í júlí nýliðnum
var 0,1% vöxtur í sölunni miðað
við fyrra ár. Með því má segja að
fyrstu áhrifa sé farið að gæta í
kjölfar fyrirhugaðs brotthvarfs
Bretlands úr Evrópusambandinu.
Í júlí seldust 178.523 bílar í Bret-
landi og varð 5% aukning í sölu
bíla til fyrirtækja en 6% minnk-
un í sölu til einstaklinga og sam-
kvæmt því virðist áhrifa Brex-
it gæta hraðar hjá einstaklingum
en fyrirtækjum. Þar sem bílar eru
yfirleitt pantaðir með nokkurra
mánaða fyrirvara hjá fyrirtækj-
um en sala til einstaklinga ger-
ist með minni fyrirvara má segja
að þessar tölur komi ekki á óvart.
Sala bíla minnkaði örlítið í Bret-
landi í júní, sem var aðeins annar
mánuðurinn sem sala minnkaði
frá árinu 2012.
Hagstæð bílalán hafa örvað sölu
Hjá Volkswagen minnkaði salan í
Bretlandi um 9,5% í júlí og mark-
aði það níunda mánuðinn sem
salan minnkar af síðustu 10 mán-
uðum. Því gætir áhrifa dísilvéla-
svindls Volkswagen frá því í sept-
ember mikið í Bretlandi. Bret-
ar virðast afar ginnkeyptir fyrir
hagstæðum bílalánum því fjórir
bílar af hverjum fimm eru keypt-
ir með slíkum lánum. Bílasal-
ar í Bretlandi óttast að bílasala
muni falla mjög mikið á næstunni
þar sem ódýr slík lán hafi mett-
að markaðinn. Á árinu hafa alls
selst 1,6 milljónir bíla í Bretlandi
og vöxturinn numið 2,8% frá því
í fyrra. Minni sala á seinni hluta
ársins gæti þurrkað þann vöxt út.
Flöt bílasala í Bretlandi í júlí vegna Brexit
BMW vinnur nú að nýjum gerð-
um þriggja og fjögurra strokka
Efficient Dynamics bensín- og
dísilvéla sinna og eru þær sagð-
ar menga að meðaltali 5% minna,
vera 7 hestöflum öflugri og með
15 pund/feta meira tog. Ekki
slæm bæting á annars áður spar-
neytnum og lítið mengandi vélum
BMW. Búist er við því að fyrsta
nýja vélin verði kynnt í nýjum
5-línu bíl BMW síðar á árinu.
Þessar nýju vélar eru bæði ætlað-
ar í BMW- og Mini-bíla. Þriggja
strokka vélina má nú fá í 95 og
114 hestafla gerð og þá fjögurra
strokka í 147, 188 og 231 hestafla
útgáfum. Ný gerð þeirra fær svo-
kallað „Twin Power-tækni“ með
beinni innspýtingu, Valvetronis
undirlyftum og breytanlegri inn-
sprautun eldsneytis.
Tvær forþjöppur á 4 strokka
vélunum
Innsprautun eldsneytis í bensín-
vélunum er undir 350 bara
þrýstingi. Allt þetta á að leiða
til minni eyðslu og mengun-
ar og meira togs vélanna. Fjög-
urra strokka dísilvélarnar munu
nú fá tvær forþjöppur, sem að-
eins sást áður í stærri dísilvélum
BMW. Verða þær bæði með lág-
þrýstri og háþrýstri forþjöppu.
Bæði NOX og CO2 mengun þeirra
minnkar með þessum breyting-
um vélanna. Innsprautun elds-
neytis í dísilvélunum verð-
ur undir 2.200 börum í þriggja
strokka vélunum og 2.700 bör í
fjögurra strokka vélunum og er
það með hæsta þrýstingi sem
heyrst hefur um í vélum.
Nýjar vélar BMW öflugri,
sparneytnari og menga minna
Subaru í Bandaríkjunum fagn-
aði þeim áfanga í lok júlí að þrjár
milljónir Subaru-bíla hafa verið
framleiddar í verksmiðju fyrir-
tækisins í Indiana sem tók til
starfa í september árið 1989.
Þriðja milljónasta eintakið sem
kom af færibandinu þann 28. júlí
var af gerðinni Subaru Outback.
Eftirspurn eftir Subaru hefur
aukist á liðnum árum í Banda-
ríkjunum sem mætt hefur verið
með aukinni framleiðslu í verk-
smiðjunni í Indiana. Þar var
sett framleiðslumet á síðasta ári
þegar 18,5% fleiri bílar komu af
færiböndunum en árið á undan,
eða alls 228.804 bílar. Subaru
hefur ákveðið að auka fram-
leiðslugetuna í 394 þúsund bíla
á ári og verður lokið við nauð-
synlegar breytingar á fram-
leiðslulínunni í lok ársins. Frek-
ari breytingar eru þó fyrirhug-
aðar því stefnt er að því að auka
framleiðslugetuna enn frekar á
næstu misserum og frá og með
fyrri hluta árs 2019 er stefnt að
því að verksmiðjan geti afkastað
framleiðslu á 436 þúsund bílum á
ári. Síðar á þessu ári hefst fram-
leiðsla á nýjum Impreza í Indi-
ana og árið 2018 hefst þar einn-
ig framleiðsla á nýjum jepplingi
með þremur sætisröðum sem
tekur við af núverandi Tribeca-
jeppa.
Þrjár milljónir
Subaru-bíla
í Indiana
Bíll nr. 3.000.000 var Subaru Outback
Bílar
Fréttablaðið
8 9. ágúst 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
4
-F
C
B
C
1
A
3
4
-F
B
8
0
1
A
3
4
-F
A
4
4
1
A
3
4
-F
9
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K