Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Snærósar
Sindradóttur
Bakþankar
Um helgina gekk ég að eiga unnusta minn í faðmi fjöl-skyldu og vina í Bolungarvík.
Á okkur er nokkur aldursmunur,
ég er 24 ára og hann 38 ára gamall,
en það breytir því ekki að ástin er
sterk, sönn og einföld. Eins og ég vil
hafa hana. Enginn veislugestur gat
efast um þetta hjónaband.
Hjónavígsluvottorðinu var
skilað til sýslumanns í gær og þar
verðum við stimpluð til lagalegra
réttinda, skuldbindinga og alls
þess sem hjónaband felur í sér. Nú
erfi ég manninn minn, og öfugt, ég
á nú helming eigna hans, og öfugt
(sem eru vond skipti fyrir hann
því ég á ekkert nema sjálfa mig), og
flutningar til útlanda verða umtals-
vert auðveldari. Allt þetta því ég
er svo heppin að fæðast á Íslandi.
Staðan væri nefnilega önnur ef við
værum par af erlendu bergi brotið
að flytja til fyrirheitna landsins
Íslands. Í lögum um útlendinga
stendur að ef annar maki í hjóna-
bandi er 24 ára eða yngri beri ávallt
að kanna hvort stofnað hafi verið
til hjúskaparins í þeim eina tilgangi
að fá hér dvalarleyfi eða með vilja
beggja hjóna. Væri ég, eða maðurinn
minn, útlendingur hæfist semsagt
rannsókn á því hvort um mála-
myndahjúskap væri að ræða.
Engin lög ná utan um ástina en
hjónaband er lagalegur gjörningur.
Væri það meiri synd að giftast
vegna praktískra ástæðna ef maður
er útlendingur en Íslendingur? Á
síðasta ári hóf Útlendingastofnun
rannsókn á hjónabandi pars frá
Víetnam. Starfsmaður Land-
spítalans braut lög þegar hann sagði
stofnuninni, í tengslum við fæðingu
dóttur þeirra, að konan væri
barnaleg og maðurinn óframfærinn.
Útlendingastofnun reiddi fram
sönnunargögn sem sýndu konuna
tárast í brúðkaupinu.
Guð minn góður hvað það var
grátið mikið í mínu brúðkaupi.
Milljón gleðitárum.
Engin lög ráða
við ástina
ENDALAUS
2.990 KR*
Endalaust sumar
1817 365.is
GSM
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG 30 GB GAGNAMAGN*
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer.
Nánari upplýsingar er að finna í GSM skilmálum á 365.is
*30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir
2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
4
-E
D
E
C
1
A
3
4
-E
C
B
0
1
A
3
4
-E
B
7
4
1
A
3
4
-E
A
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K