Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 10

Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is ÚTSALA RISA ÓTRÚLEG TILBOÐ Á HEILSURÚMUM! AFSLÁTTUR! 20-60% H E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 30 81 6 #2 Brennandi fólk á hlaup- um, kolaðir líkamar, grátandi börn. Yfir 200 þúsund létu lífið. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flutti hjartnæma ræðu í miðbæ Reykja­víkur á laugardag að lokinni Gleði­göngu Hinsegin daga. Forsetinn gerði það að umtalsefni í ræðunni að margir íþróttamenn í fremstu röð kjósa að halda samkynhneigð sinni leyndri. „Ég vil sérstaklega hvetja alla til að taka á fordóm­ um sem enn þarf að glíma við í heimi íþróttanna. Á Íslandi hefur lesbía orðið forsætisráðherra. Vonandi fáum við bráðum homma í eitthvert okkar ágætu karlalandsliða,“ sagði forsetinn. Hómófóbía og for­ dómar eru alþjóðlegt vandamál í íþróttaheiminum. Einhverra hluta vegna forðast margir atvinnumenn í íþróttum vestanhafs að greina frá samkynhneigð sinni. Þetta á sérstaklega við í íþróttagreinum eins og ruðningi, hafnabolta og körfubolta. Fáfræðin hefur skotið rótum og það á víst að skyggja á karl­ mennsku íþróttamanna í þessum greinum að vera hommar. Sem er fráleitt því sönn karlmennska er fólgin í því að vera maður sjálfur. Hvort sem maður girnist konur, karla eða hvort tveggja. Eins og með svo margar breytingar þá byrjar baráttan við eldhús­ borðið heima. Fólk þarf að skynja frá fyrstu tíð að samkynhneigð sé eðlileg. Eins og Guðni forseti sagði á laugardag: „Í raun erum við öll hinsegin á einhvern hátt.“ Sagan segir okkur að þeir knattspyrnumenn sem hafa komið út úr skápnum hafi „tapað á því“ sem er vísbending um hversu skammt við erum komin í átt að sönnu jafnrétti. Margir þekkja sögu Justins Fash­ anu. Hann var dáður atvinnumaður í knattspyrnu sem kom út úr skápnum í Bretlandi árið 1990. Hann sá síðar eftir því og framdi sjálfsvíg mörgum árum síðar þótt ekki hafi verið orsakasamband á milli þeirrar staðreyndar að hann greindi frá kynhneigð sinni og sjálfsvígsins. Þýski knattspyrnumaðurinn Thomas Hitzlsperger kom líka út úr skápnum undir lok ferils síns. Hann þorði ekki að gera það fyrr. Bandaríski knattspyrnumaðurinn David Testo kom út úr skápnum árið 2011 og það eyðilagði feril hans. Aðrir eru minna þekktir. Tölfræðin segir okkur að það séu talsverðar líkur á því að það séu einhverjir samkynhneigðir í landslið­ um Íslands í fótbolta, körfubolta eða handbolta. Það er að sjálfsögðu ákvörðun þeirra sjálfra hvort þeir eru áfram inni í skápnum enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Það er enginn að segja að menn verði að koma út úr skápnum til að gefa gott fordæmi. Hins vegar væri það til fyrirmyndar og myndi sýna mikið hugrekki. Ungt hinsegin fólk þessa lands sem stundar íþróttir á skilið að alast upp í samfélagi þar sem það óttast ekki að greina frá kynhneigð sinni. Við þurfum öll að gefa smán og fordómum rauða spjaldið strax. Við getum byrjað á samtalinu heima. Hómófóbía í íþróttum Tölfræðin segir okkur að það séu talsverðar líkur á því að það séu einhverjir samkyn- hneigðir í landsliðum Íslands í fótbolta, körfubolta eða hand- bolta. Rúm 70 ár eru liðin síðan Bandaríkin vörpuðu sprengjum á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasaki, 6. og 9. ágúst árið 1945. fólk er enn að deyja Við þekkjum atburðina úr sögubókum og ógnvekj­ andi myndum af sprengingunum og afleiðingum þeirra. Brennandi fólk á hlaupum, kolaðir líkamar, grátandi börn. Yfir 200 þúsund létu lífið. Sumir strax, aðrir dagana og vikurnar á eftir og fólk er enn að deyja af sjúkdómum, genagöllum o.fl. sem rekja má beint til sprengjanna. heimur án kjarnorkuvopna Þrátt fyrir þessar skelfilegu staðreyndir hefur okkur enn í dag ekki auðnast að ná samstöðu um heim án kjarnorkuvopna. Kjarnorkuógnin er enn til staðar. Níu ríki búa yfir tæplega 16 þúsund kjarnorku­ sprengjum sem hver um sig er miklu öflugari en þær sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki. ísland aðili að hernaðarbandalagi Íslendingar og íslensk stjórnvöld státa sig gjarnan af því á tyllidögum að við séum herlaus og frið­ elskandi þjóð á meðan staðreyndin er sú að Ísland er aðili að hernaðarbandalagi sem áskilur sér rétt til notkunar kjarnorkuvopna, jafnvel að fyrra bragði. Á meðan fjölmörg ríki hafa á vettvangi Sam­ einuðu þjóðanna barist fyrir banni við kjarnorku­ vopnum hafa íslensk stjórnvöld kosið að þvælast fyrir og taka ekki afstöðu. tökum afstöðu – krefjumst breytinga Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorku­ árásanna og lagt áherslu á kröfu um heim án kjarnorkuvopna. Í kvöld, þriðjudaginn 9. ágúst, verður kertum fleytt á Reykjavíkurtjörn. Athöfnin hefst kl. 22.30. Aðeins með því að taka afstöðu og krefjast breytinga getum við stuðlað að friðvænni heimi. Aldrei aftur Hírósíma, aldrei aftur Naga­ saki! Aldrei aftur! Auður Lilja Erlingsdóttir formaður Sam- taka hernaðar- andstæðinga Skyrið til bjargar Morgunblaðið lofaði íslenska skyrið frá Mjólkursamsölunni í gær en það hefur aldrei verið vinsælla á erlendum markaði og greindi Ari Edwald, forstjóri MS, frá því að skyrið frá MS væri á leið í útrás til fjarlægra landa. Það er heppilegt að fá svo jákvæða umfjöllun eftir að fréttamiðlar hafa verið uppfullir af fréttum af stjórnvaldssektum sem MS hefur hlotið fyrir meint samkeppnislagabrot. En í ótengdum fréttum mun Ari Edwald hafa verið hvað metn- aðarfyllstur á kosningaskrif- stofu Davíðs Oddssonar, rit- stjóra Morgunblaðsins, í sumar. Ætli það sé íslenska skyrið sem er leyndarmálið að baki metn- aði Ara? Maður spyr sig. össur „sjanghæjar“ Pírata Össur Skarphéðinsson sagði í Bítinu á Bylgjunni í gær að enginn munur væri á Sam- fylkingunni og Pírötum. Erna Ýr Öldudóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdaráðs Pírata, virðist hafa áhyggjur af Samfylkingarvæðingu Pírata. „Flokkur sem átti að vera hvorki hægri né vinstri flokkur er nú orðinn að Samfylkingu Össurar Skarphéðinssonar,“ skrifar hún á hið alræmda Pírataspjall og greinilegt að kratinn síkáti er orðinn þungavigtarmaður á meðal Pírata. stefanrafn@frettabladid.is 9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R10 s k o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 3 5 -0 1 A C 1 A 3 5 -0 0 7 0 1 A 3 4 -F F 3 4 1 A 3 4 -F D F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.