Fréttablaðið - 09.08.2016, Page 28
Ford Galaxy
Finnur Thorlacius Reynsluakstur
F
jölnotabílar eða
strumpa strætóar eins
og þeir eru stundum
kallaðir hafa frem
ur verið á undanhaldi
í heiminum á síðustu
árum og færri og færri
slíkir bílar selst. Sumar slík
ar bílgerðir hafa horfið á braut,
en þær sem betur hafa selst hafa
lifað. Ein þeirra er Ford Galaxy,
enda hefur hann ávallt fengið
ágæta dóma. Nú er komin ný kyn
slóð af þessum fjölhæfa bíl. Það
telst nánast íþróttagrein hjá bíla
blaðamönnum um allan heim
að tala niður svona fjölnotabíla
fyrir útlit þeirra og aksturseigin
leika. Erfitt getur reyndar reynst
að hanna fallegan bíl sem verður
þó að hafa hátt þak, er langur og
með stórt farangursrými og yfir
leitt ekki með neitt húdd. Ekki
beint uppskrift að fegurð, en þó
verður að segja að Ford lukkist
þolanlega með þessari nýju kyn
slóð Galaxy.
Góður akstursbíll þó stór sé
Galaxy er 7 manna bíll þar sem
frábærlega getur farið um alla
farþegana, líka í öftustu sætaröð
inni, en hátt þakið nær að aftasta
punkti bílsins. Því er þessi bíll
hentugur fyrir mjög stórar fjöl
skyldur, vinnustaði, eða sem bíla
leigubíll sem á að rúma marga.
Já, og líka sem leigubíll, þar sem
7 manna leigubílar eru vinsælir.
Ford Galaxy er með sama undir
vagn og bæði Ford SMax og
Mondeo, en allt eru þetta fyrir
vikið góðir akstursbílar, með vel
stillta fjöðrun og góða stýringu.
En eðlilega er Galaxy með sín 1,7
tonn þeirra sístur, en góður samt.
Í raun finnst ökumanni að hann
sé að aka miklu minni bíl en Gal
axy er, sem sannarlega er risa
stór bíll. Sérstaka athygli vakti
hve léttilega hann fór yfir allar
hraðahindranir og hreinlega át
þær í leiðinni. Hann er reynd
ar einn þægilegasti bíll sem
greinar ritari hefur ekið yfir mý
margar hraðahindranir bæjarins.
Ótrúlega eyðslugrannur
með sín 1,7 tonn
Í reynsluakstrinum var honum
bæði ekið talsvert innanbæjar, en
einnig upp í sveitir þar sem hann
sýndi sitt besta andlit sem góður
ferðabíll sem ekkert finnst fyrir
hraða á. Bílnum var ekið á fjórða
hundrað kílómetra en samt voru
yfir 700 kílómetrar eftir á mæl
inum og því má greinilega kom
ast á bílnum yfir 1.000 kílómetra
og er það ekki algengt. Þetta er
til vitnis um það hve sparneytnar
dísilvélar má fá frá Ford. Vélin
í reynsluakstursbílnum var 2,0
lítra og 150 hestafla TDCi dís
ilvél. Hún er með uppgefna 5,0
lítra eyðslu í blönduðum akstri
frá framleiðanda og svei mér þá
ef bíllinn hefur ekki bara gert
svo vel eða betur en það. Galaxy
má líka fá með 120 og 180 hest
afla dísilvélum, en með þeirri öfl
ugri er hann fjórhjóladrifinn en
kostar líka 800.000 kr. meira en
sams konar bíll með Titanium
innréttingu og 150 hestafla vél
inni. Galaxy kostar frá 5.590.000
kr. en þá er hann með 120 hest
afla vélinni og Trendinnrétting
unni.
Frábær kostur
fyrir rétta markhópinn
Ford hefur tekist frábærlega við
hljóðeinangrun Galaxy og fyrst
heyrist eitthvað í vindi ef mjög
hratt er farið, en hljóð frá vegi
er svo til ekkert. Innrétting bíls
ins er nokkuð vel úr garði gerð
og praktísk. Það er helst að setja
megi út á efnisnotkun, sem er
ekki ríkuleg en örugglega sterk.
Það er líklega einmitt það sem
eigendur Galaxy helst óska sér,
þ.e. margra barna mömmur,
vinnuveitendur og leigubílstjór
ar. Sjaldséður er mikill íburð
ur í svona bílum almennt. Allt er
mjög rúmt í Galaxy og bæði fóta
rými og höfuðrými frábært í ann
arri og þriðju röð bílsins og samt
er farangursrýmið dágott. Ford
Galaxy á nokkra keppinauta, en
stendur sterkt meðal þeirra. Ford
Galaxy keppir helst við Citroën
C4 Grand Picasso, VW Touran
og Renault Grand Scenic, ásamt
Ford SMax sem er þó minni bíll.
Galaxy er afar fjölhæfur og stór
bíll með merkilega góða aksturs
eiginleika.
Með bestu struMpastrætóuM
Einn notadrýgsti fjölnotabíll sem fá má er Ford Galaxy, risastór og með sæti fyrir
sjö. Merkilega góður akstursbíll, en með einfalda og praktíska innréttingu.
Ford Galaxy
2,0 l dísilvél, 150 hestöfl
framhjóladrif
Eyðsla 5,0 l/100 km í bl. akstri
Mengun 129 g/km CO2
Hröðun 10,9 sek.
Hámarkshraði 210 km/klst.
Verð 5.590.000 kr.
Umboð Brimborg
Ford Galaxy
l farþega- og flutningsrými
l Aksturseiginleikar
l eyðsla
l Ytra útlit
l látlaus innrétting
l vantar UsB-tengi aftur í
góður í akstri
Í raun finnst
ökumanni að
hann sé að aka
miklu minni bíl
en Gal axy er.
eyðslugrannur
Með uppgefna
5,0 lítra eyðslu
í blönduðum
akstri frá
framleiðanda.
bílar
Fréttablaðið
10 9. ágúst 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
5
-1
0
7
C
1
A
3
5
-0
F
4
0
1
A
3
5
-0
E
0
4
1
A
3
5
-0
C
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K