Fréttablaðið - 29.08.2016, Page 2
ÁSKRIFTARKORT
BORGARLEIKHÚSSINS
Bókaðu áskrift með einföldum
hætti á borgarleikhus.is
Veður
Hæg vestlægari átt á morgun og dálítil
væta norðvestan til, en léttir til fyrir
austan. Vaxandi austanátt og fer að
rigna syðst um kvöldið. Milt veður.
sjá síðu 20
Aldarafmæli fagnað
Afmælisveisla í Árbæjarsafni Þessi kona verkaði saltfisk á meðan Alþýðusamband Íslands hélt upp á hundrað ára afmæli sitt í Árbæjarsafninu í
Reykjavík í gær. Boðið var upp á leiðsögn um safnið þar sem fjallað var um verkalýðsbaráttu, hjáverk kvenna og húsnæðisvanda verkafólks. Auk
þess voru lummur bakaðar og spilaði Lúðrasveit verkalýðsins fyrir gesti og gangandi. Fréttablaðið/Hanna
MenntaMál Nám í lögreglufræðum
við Háskólann á Akureyri mun
kosta um 157 milljónir króna á ári
hverju en hefði kostað rétt um 140
milljónir við Háskóla Íslands. Einn
ig var Háskóli Íslands talinn hæfari
til þess að taka við lögreglunáminu.
„Það er athyglisvert að til
laga HÍ fékk ekki bara besta fag
lega matið hjá matsnefndinni
heldur er tillaga HÍ einnig ódýrari
en sú sem valin var af ráðherra.
Til viðbótar má nefna að verklega
aðstaðan sem við buðum upp á hjá
Keili er nú þegar notuð af lögregl
unni,“ segir Jón Atli Benediktsson,
rektor HÍ.
Þetta kemur fram í innsendum
umsóknum skólanna um nám í
lögreglufræðum en Illugi Gunn
arsson menntamálaráðherra ákvað
að námið færi til Akureyrar eftir að
hafa vegið og metið niðurstöðurnar.
Fjórir skólar sendu inn umsókn til
að taka námið að sér, þrír háskólar
voru metnir hæfir og HÍ þar metinn
hæfastur þeirra þriggja.
Í innsendum gögnum HÍ kemur
fram að kostnaður við stoðþjónustu
og húsnæði HÍ er um 30 milljónir
króna en við HA verður kostnaður
inn um 17 milljónum hærri á hverju
ári. Lagt er til í gögnum HÍ að ráðnir
verði fimm kennarar við lögreglu
námið.
Hins vegar setur Háskólinn á
Akureyri það sem skilyrði að sam
hliða því skrefi að færa lögreglunám
á háskólastig þurfi að efla rannsókn
ir á sviði lögreglufræða og leggur til
að akademískar rannsóknir fræði
manna við deildina verði öflugar.
Lagt er upp með að við Háskólann
á Akureyri verði til rannsóknasetur í
lögreglufræðum. Því þurfi að greiða
laun forstöðumanns rannsókna
setursins og sérfræðinga auk þess
sem kostnaður verði einhver vegna
rannsóknarverkefnanna.
„Við í Háskóla Íslands reyndum
að hafa umsóknina sem hag
stæðasta fyrir ríkissjóð en slá ekki
af akademískum kröfum um gott
nám. Okkar umsókn var þannig sett
fram,“ bætir Jón Atli við.
Til samanburðar við þær 157
milljónir sem lögreglunám á
háskólastigi mun kosta fékk Lög
regluskóli ríkisins 163 milljóna
króna framlag frá hinu opinbera á
fjárlögum 2016. sveinn@frettabladid.is
Lögreglunám dýrara á
Akureyri en í borginni
Samkvæmt innsendum umsóknum háskólanna um að taka að sér nám í lög-
reglufræðum verður námið 17 milljónum króna dýrara á hverju ári í HA en í HÍ.
Stofnað verður rannsóknasetur við HA um rannsóknir í lögreglufræðum.
illugi Gunnarsson menntamálaráðherra ákvað í síðustu viku að færa lögreglunám
til akureyrar þrátt fyrir að Háskóli Íslands hafi verið metinn heppilegri kostur.
Hafa umsóknina
sem hagstæðasta
fyrir ríkissjóð en slá ekki af
akademískum kröfum um
gott nám.
Jón Atli Benedikts-
son, rektor Háskóla
Íslands
MenntaMál Félag læknanema gerir
alvarlegar athugasemdir við nýtt
frumvarp Illuga Gunnarssonar um
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Segja þau læknanema skarðan hlut
frá borði ef frumvarpið verður að
lögum.
Samkvæmt nýju lögunum mun
endurgreiðsla námslána hefjast einu
ári eftir námslok en námslok teljist
frá þeim tíma sem námsmaður
hættir að þiggja námslán LÍN. „Graf
alvarlegt er ef umrædd grein verður
að lögum þar sem sérnám í læknis
fræði er ólánshæft nám. Í núverandi
kerfi geta læknar í formlegu sérnámi
frestað námslokum þar til sérnámi
er lokið,“ segir í umsögn Félags
læknanema.
Læknanemar gagnrýna einnig að
námsstyrkur sé veittur í níu mánuði
á ári því læknanámið sé oft næstum
tíu mánuðir, lengra en annað nám
við HÍ. – sa
Ósáttir við
LÍN-frumvarp
Frakkland Myndband sem sýnir
veitingamann í París neita að
afgreiða tvær múslimskar konur
hefur vakið töluverða reiði. Kon
urnar klæddust báðar hídjab.
Í myndbandinu má heyra mann
inn segja: „Hryðjuverkamenn eru
múslimar og allir múslimar eru
hryðjuverkamenn.“
Maðurinn baðst í gær afsökunar
á ummælum sínum eftir að hópur
fólks hafði safnast saman fyrir utan
veitingastaðinn til þess að mót
mæla.
Töluverð ólga hefur verið í Frakk
landi eftir að búrkinísundklæðn
aður var bannaður á nokkrum
ströndum í landinu. Síðastliðinn
föstudag afturkallaði æðsti stjórn
sýsludómstóll Frakklands bannið í
strandbænum VilleneuveLoubet.
Búist er við að dómurinn verði for
dæmisgefandi fyrir öll sveitarfélög
sem hafa sett svipuð bönn. – gló
Baðst afsökunar
eftir mótmæli
sýrland Að minnsta kosti 25
manns létu lífið í loftárásum tyrk
neska hersins á kúrdísk svæði Sýr
landsmegin við landamæri Tyrk
lands og Sýrlands nærri borginni
Jarablus. Herinn segir hina látnu
vera menn úr hersveitum Kúrda.
Árásirnar voru gerðar á fimmta
degi nýs verkefnis Tyrkjahers er
kallast Efratskjöldur og vísar til
árinnar Efrat sem rennur frá Tyrk
landi, í gegn um Sýrland og Írak og
þaðan út í Persaflóa.
„Aðgerðir gegn hryðjuverkasam
tökum munu halda áfram þar til yfir
lýkur,“ sagði Recep Tayyip Erdogan,
forseti Tyrklands, í gær. – þea
Tyrkir felldu 25
í loftárásum
Tyrkir hafa aukið við
liðsstyrk sinn í Sýrlandi efir
sjálfsmorðsárásina í Gazi
antep fyrir rúmri viku.
2 9 . á g ú s t 2 0 1 6 M á n u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
1
-0
1
5
8
1
A
6
1
-0
0
1
C
1
A
6
0
-F
E
E
0
1
A
6
0
-F
D
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K