Fréttablaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 15
fólk kynningarblað „Við erum á leið á sýninguna Mai­ son & Objet í París með teppin nú í byrjun september. Það hefur geng­ ið mjög vel á fyrri sýningum hjá okkur en þetta er fimmta sýning­ in sem við tökum þátt í. Til dæmis er skemmtilegt að finna hvað graf­ íkin hefur fengið mikla athygli en í fyrra fékk ég verðlaun fyrir graf­ ík á sýningunni. Við erum afar spenntar að sjá hvernig viðtök­ urnar verða í ár,“ segir Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir sem hefur vakið athygli undanfarin ár fyrir stílhreina og vandaða hönnun fyrir heimilið undir merkinu IHanna Home. Ullarteppin Water og Loops eru nýjasta viðbót hennar við línuna og verða til að byrja með í þremur litaútgáfum. „Bæði munstrin verða í svörtu og hvítu. Water verður svo í bláu og hvítu og Loops í gráu og gulu. Við byrjum á þessum litum en svo mun að öllum líkindum bætast við,“ útskýrir Ingibjörg. „Water­munstrið er glænýtt, ég frumsýndi það á HönnunarMars í vor. Loops er sama munstrið og ég hef verið með á púðum. Loops er hannað út frá prjónalykkjum og meðan ég var að teikna það hafði ég peysur sem mamma prjónaði á mig sem barn í huga. Mér fannst þess vegna skemmtilegur kont­ rast að munstrið færi á ofið teppi. Grafíkin á Water­teppinu er línur, kyrrt vatn sem kemst á hreyfingu svo línurnar bylgjast,“ útskýrir Ingibjörg en kyrrstaða og hreyf­ ing er gegnumgangandi í verkum hennar. „Mér finnst þetta konsept skemmtilegt, að vinna með grafík þar sem má sjá örlitla hreyfingu fara af stað. Til dæmis í Experi­ enced­línunni, sem samanstend­ ur af viskustykkjum, servéttum, rúmfatnaði og fleiru má sjá bein­ ar línur sem losnar um og Dots­lín­ an eru doppur sem detta og mynda munstur. Ég var mikið í trévörum en text­ íllinn er alltaf að stækka hjá mér og þar með grafíkin. Ég er ekki hætt með hitt en mér finnst graf­ íkin spennandi. Ég lærði grafíska hönnun í LHÍ og það er gaman að geta blandað vöruhönnun og graf­ íkinni saman, það er akkúrat rétta hönnunarblandan fyrir mig,“ segir Ingibjörg. Nánar má fylgjast með Ihanna Home á facebook og á www. ihannahome.net Loops er hannað útfrá prjóna- lykkjum og meðan ég var að teikna það hafði ég peysur sem mamma prjónaði á mig sem barn í huga. Mér fannst þess- vegna skemmtilegur konstrast að munstrið færi á ofið teppi. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir 2 9 . á g ú s t 2 0 1 6 M á N U D A g U R Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hefur vakið athygli undanfarin ár fyrir stílhreina hönnun fyrir heimilið. MyNd/ MIMI GIBoIN Ullarteppin eru væntanleg á markaðinn með haustinu. Grafíkin orðin fyrirferðarmeiri Ullarteppi eru nýjasta viðbót hönnuðarins Ingibjargar Hönnu Bjarnadóttur við heimilislínu hennar IHanna Home. Teppin kallar hún Water og Loops og er von á þeim í verslanir í byrjun október. Í næstu viku sýnir hún teppin í París. NETVERSLUN Sérblaðið „Netverslun“ kemur út 31. ágúst Áhugasamir hafi samband við: Jóhann Waage Sími/Tel: +354 512 5439 johannwaage@365.is Í þessu blaði er hægt að kaupa auglýsingar sem og kynningar. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is 2 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 6 1 -1 A 0 8 1 A 6 1 -1 8 C C 1 A 6 1 -1 7 9 0 1 A 6 1 -1 6 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.