Fréttablaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 6
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS
Sr. Þórhallur Heimisson fararstjóri
kynnir ferðirnar í Skógarhlíð 12,
þriðjudaginn 30. ágúst kl. 17:30.
Gengið inn neðan við húsið,
gegnt Bústaðavegi og Hlíðarenda.
Indland
& Bútan
12.–27. október
Ísrael,
Palestína
& Petra
1.–12. nóvember
FERÐAKYNNING
Tvær glæsilegar sérferðir
Fyrsti skóladagurinn
Palestínskar stúlkur á leið í skólann á fyrsta skóladegi annarinnar í borginni Nablus á Vesturbakkanum. Ástandið á svæðinu er víða eldfimt og til
átaka kom í borginni síðastliðinn þriðjudag þegar maður lét lífið af völdum barsmíða á meðan hann var í haldi lögreglu. Fréttablaðið/aFP
ÍtalÍa Menningarmálaráðherra
Ítalíu, Dario Franceschini, segir 293
sögulega staði hafa orðið fyrir tjóni
í jarðskjálftanum sem varð á miðri
Ítalíu síðastliðinn miðvikudag.
Að minnsta kosti 290 manns fór
ust í skjálftanum sem var 6,4 stig
og varð á tíu kílómetra dýpi. Björg
unaraðgerðir standa enn yfir.
Bærinn Amatrice varð verst úti en
þar létu 229 manns lífið í skjálftan
um og margar kirkjur og byggingar
frá miðöldum skemmdust.
Aðgangseyrir sem safnaðist
í söfnum á Ítalíu í gær rann til
hjálparstarfa og uppbyggingar á
svæðum sem urðu fyrir skemmdum.
Franceschini hvatti Ítali til þess að
heimsækja söfn í gær og sýna með
því samstöðu. – gló
Mikið tjón á
verðmætum
bærinn amatrice varð verst úti í skjálft-
anum. Fréttablaðið/aFP
Ferðalög Samkeppnin á flugleið
inni á milli Íslands og London er sú
mesta sem hefur verið á einni leið
hérlendis.
Þetta kemur fram á vefnum Tur
isti.is en fimm flugfélög halda sam
göngunum uppi. Flugfélögin eru
Icelandair, WOW air, easyJet, Brit
ish Airways og Norwegian. Flugin
dreifast á fjóra flugvelli í Bretlandi;
Heath row, Gatwick, Luton og Stans
ted.
Frá Stokkhólmi og Ósló fljúga þrjú
flugfélög til London. Ferðir þeirra
eru tíðari en frá Keflavíkurflugvelli
en héðan er búist við að þær verði
flestar 12 á dag og eru flestar ferð
irnar farnar til Gatwick. Í fyrra flugu
rúmlega 313 þúsund farþegar á milli
vallarins og Keflavíkur. – gló
Fimm flugfélög
fljúga til London
Noregur 322 hreindýr drápust
í gær þegar eldingu laust niður í
Þelamörk í Noregi. Rúmlega 10.000
hreindýr eru á svæðinu en dýrin sem
drápust stóðu á svæði sem var um
áttatíu metrar að þvermáli.
Vísindamenn norsku náttúru
vísindastofnunarinnar segjast vita
til þess að eldingar hafi áður drepið
hreindýr, þó aldrei svona mörg í
einu. – gló
Fjöldi dýra féll
öryggismál Ógnum vegna net
árása fjölgar jafnt og þétt hér á landi
en ekki hefur nóg verið að gert til
að takast á við þá ógn. Þetta segir
Stefán Snorri Stefánsson, hópstjóri
netöryggissveitarinnar CERTÍS í
ársskýrslu sveitarinnar. Ljóst sé að
Ísland muni ekki uppfylla Evrópu
tilskipun um netöryggi sem taka
eigi gildi hér á landi innan þriggja ára
nema mikið verði að gert. „Ljóst er
að verulega þarf að bæta úr flestum
aðföngum, aðstöðu og því umhverfi
sem sveitinni er ætlað að starfa í,“
segir í skýrslunni.
Stefán segir sveitina of fáliðaða
til að sinna lögbundnu hlutverki
sínu sem netöryggissveit Íslands á
landsvísu. Starfsmenn sveitarinnar
séu færri en þegar hún tók til starfa
árið 2014, tveir í stað þriggja áður. Þá
þurfi hugarfarsbreytingu til að tak
ast á við netöryggismál hér á landi.
Mikilvægt sé að fyrirtæki verji ekki
bara eigin kerfi fyrir árásum, heldur
einnig kerfi og búnað viðskiptavina
sinna.
Til stóð að færa sveitina frá Póst
og fjarskiptastofnun til embættis
ríkislögreglustjóra en innanríkis
ráðuneytið féll frá þeim áformum
undir lok síðasta árs. Stefán segir að
fyrirheit hafi verið gefin um að efla
sveitina við núverandi lagaskilyrði.
„Þó er ljóst að fjárheimildir sveitar
innar í dag rúma ekki nauðsynlega
þætti í starfsemi hennar,“ segir hann.
Sveitin geti nú fyrst og fremst sinnt
fjarskiptafyrirtækjum sem greiða
hlutafall af veltu sinni til rekstursins
en eigi lögum samkvæmt að gegna
starfi sem netöryggissveit á lands
vísu. Auk þess sé hún tengiliður
Íslands við erlendar CERTsveitir. „Í
því kristallast mótsögn sem kemur
oft upp í daglegu starfi sveitarinnar,“
segir í skýrslunni. Einnig er bent á að
ekki hafi verið unnt að halda stóra
samhæfða æfingu hér á landi innan
þjónustuhóps sveitarinnar frá árinu
2013, meðal annars vegna óvissu um
framtíð hennar. Nauðsynlegt sé að
slík æfing fari fram í haust.
Sveitinni bárust upplýsingar um
nær 800 öryggisatvik hérlendis á
síðsta ári, þar á meðal nokkur mál
þar sem um alvarlegar langvarandi
ógnir var að ræða. Í síkum tilvikum
er oftast reynt að ná fótfestu í upp
lýsingakerfum stjórnvalda eða
hátæknifyrirtækja og afla upplýs
inga með leynd. Í skýrslunni segir
að líkur séu á að alvarlegustu málin
sem rannsökuð hafi verið beinist
ekki gegn íslenskum aðilum. Þá er
bent á að allmargar álagsárásir hafi
verið gerðar á íslenska netþjóna
á síðasta ári. Ein sú stærsta var í
nóvember þegar ráðist var á vefi
stjórnarráðsins sem lágu niðri um
nokkurn tíma. Árásin er talin vera
á ábyrgð Anonymoussamtakanna
vegna andstöðu forsprakka hópsins
við hvalveiðar Íslendinga.
ingvar@frettabladid.is
Segir fámennið ógna
netöryggi hér á landi
Hópstjóri netöryggissveitarinnar CERT-ÍS segir ógnum vegna netöryggismála
sífellt fara fjölgandi. Sveitin geti ekki uppfyllt lögbundið hlutverk sitt vegna fjár-
skorts og muni ekki geta uppfyllt Evróputilskipun sem senn taki gildi.
Netöryggissveitin er eingöngu skipuð tveimur mönnum. Hópstjórinn segir það
ekki nægilegt til að sinna brýnum verkefnum.
Ljóst er að verulega
þarf að bæta úr
flestum aðföngum, aðstöðu
og því umhverfi sem sveit-
inni er ætlað að
starfa í.
Stefán Snorri
Stefánsson, hóp-
stjóri CERT-ÍS
2 9 . á g ú s t 2 0 1 6 m á N u D a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
1
-2
8
D
8
1
A
6
1
-2
7
9
C
1
A
6
1
-2
6
6
0
1
A
6
1
-2
5
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K