Fréttablaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
Að kalla eftir
því að við
sem samfélag
tökum
höndum
saman og
gerum það
sem til þarf
til þess að
koma þessum
málum í
betra horf.
Ekkert okkar er undanþegið því að taka vondar ákvarðanir í lífinu. Ákvarðanir sem við vitum jafnvel í hjarta okkar að eru vondar og okkur jafnvel skaðlegar. Ákvarðanir sem geta leitt yfir okkur óhamingju, veikindi og jafnvel dauða
en við tökum þær samt. Við erum öll breysk og
mannleg og þar af leiðir að við reynum að láta okkur
annt hverju um annað, gæta velferðar og vísa til betri
vegar, bættrar heilsu og betra lífs.
Í síðustu viku lést ungur maður og annar var
hætt kominn og leikur grunar á að þeir hafi báðir
neytt fentanýls fyrr um kvöldið. Fentanýl er sterkt
lyfseðilsskylt verkjalyf, hundrað sinnum sterkara
en morfín og fimmtíu sinnum sterkara en heró
ín, og einkum gefið langt leiddum sjúklingum sem
líknandi meðferð. Tvö dauðsföll á Íslandi, fyrr á
þessu ári, má rekja til neyslu fentanýls og því svo
sannarlega mikið áhyggjuefni að svo sterkt lyf gangi
kaupum og sölum á götum borgarinnar.
En það er því miður ekkert nýtt að fíkniefnaneyt
endur fari sér að voða. Guðný Rannveig Reynisdóttir
greindi frá því í viðtali við Nadine Guðrúnu Yaghi
hér í Fréttablaðinu á laugardaginn að sonur hennar
hafi látist árið 2013 vegna misnotkunar á morfín
plástri. Hann var aðeins 27 ára gamall þegar hann
lést, búinn að eiga í umtalsverðum fíkniefnavanda
og að bíða þess að komast inn á Vog til meðferðar.
Hann var búinn að bíða lengi, ekki síst vegna þess að
hann hafði áður verið til meðferðar en þá gefist upp
og strokið. Ungi maðurinn skildi eftir sig son sem nú
er föðurlaus. Þetta er þyngra en tárum taki.
Andlát þessa unga fólks, sem hefur af einhverjum
sökum leiðst út í neyslu harðra fíkniefna, hljóta að
fá okkur sem eftir stöndum til þess að skoða stöðu
þessara mála og grípa til aðgerða í samræmi við það.
Við verðum sem samfélag að spyrja okkur þess hvort
nóg sé að gert í forvarnarmálum. Hvort nóg sé gert
í að stöðva þá sem selja þessi efni og hagnast á fíkn
annarra. Hvort nóg sé gert til þess að hjálpa þeim
sem eru langt leiddir í neyslu fíkniefna. Líkast til
vitum við svörin en við þurfum samt að þora að taka
umræðuna og ábyrgðina. Ábyrgðin þarf að vera hjá
okkur sem samfélagi og í því felst að horfast í augu
við að það er ekki nóg gert til þess að berjast gegn
orsök, neyslu og afleiðingu harðra fíkniefna á Íslandi.
Það má ýmislegt segja um stöðu meðferðarmála
á Íslandi, möguleika og árangur þeirra meðferðar
úrræða sem eru í boði eða ekki boði, en allir geta
eflaust sammælst um að þau duga ekki til. Það liggur
því beinast við að kalla eftir aðgerðum af hálfu heil
brigðisráðherra og allra þeirra ráðamanna sem hafa
með málaflokkinn að gera. Að kalla eftir því að við
sem samfélag tökum höndum saman og gerum það
sem til þarf til þess að koma þessum málum í betra
horf. Á þeirri vegferð er ágætt að muna leyndarmálið
sem Lewis Carroll sagði okkur og á vel við nú sem
endranær: „Eitt mesta leyndarmál lífsins er að allt
sem einhverju máli skiptir er það sem við gerum
fyrir aðra.“
Leyndarmálið
Eftir forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins sl. föstudag hef ég þurft að svara fyrir skoðun sem ég hef ekki. Ég hef oft svarað fyrir misvin
sælar skoðanir mínar en það var ný reynsla að
vera talin standa fyrir eitthvað sem mér finnst
ekki.
Ég mæli ekki með því. Það er auðvelt að detta
í vangaveltur um af hverju það gerist að orð
manns eru túlkuð á annan hátt en þau voru sögð
en ég ætla ekki að elta ólar við það að öðru leyti
en eftirfarandi sé sagt hér.
Ég vil ekki að hægt sé að borga fyrir betri þjón
ustu í grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins; ég vil
ekki að það sé hægt að borga sig fram fyrir röð
eða borga fyrir betra rúm á hjartadeildinni. Ég vil
hins vegar að það sé boðið upp á aukaþjónustu
og nýsköpun í velferðar og heilbrigðiskerfinu í
heild. Slíkt eykur valkosti og sjálfsákvörðunarrétt
þeirra sem nýta þjónustuna. Með því að opna á
aukinn einkarekstur í aukaþjónustu er hægt að
styrkja grunnþjónustuna – grunnþjónustu sem
við höfum fyrir löngu sammælst um að vilja
standa vel að í þágu allra.
Í augum einhverra er þetta nákvæmlega sama
tóbakið; allt sem tengist velferð á að vera undir
sama hatti og lúta sömu lögmálum og sá sem
talar um aukaþjónustu talar þar með um grunn
þjónustu. Það er hins vegar ekki skoðun mín. Ég
tel þvert á móti skynsamlegt að gera greinarmun
og tala fyrir bestu kostunum í hvoru kerfi.
Og eitt að lokum. Það er ekki stefna Sjálfstæðis
flokksins að hægt sé að borga fyrir betri þjónustu
í grunnþjónustunni. Sama hversu margir leyfa
sér að túlka orð mín út frá þeirri meintu stefnu
flokksins – þá er það einfaldlega ekki stefna
hans. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þvert á móti
sett aukið fjármagn í grunnþjónustu heilbrigðis
kerfisins. Til þess að heilbrigðisþjónustan sé eins
og við viljum hafa hana þarf hins vegar að leita
nýrra heildarlausna til framtíðar og þá getur
þurft að hugsa út fyrir rammann, eins og ég talaði
fyrir í föstudagsviðtalinu.
Rétt skal vera rétt
Hildur
Sverrisdóttir
borgarfulltrúi
Ég vil ekki að
það sé hægt
að borga sig
fram fyrir röð
eða borga
fyrir betra
rúm á hjarta-
deildinni.
fínn pappír?
Það leit ekki vel út fyrir Samfylk
inguna þegar tilkynnt var að aðeins
þrír hafi boðið sig fram í prófkjöri
flokksins í Norðvesturkjördæmi
þegar kjósa átti um fjögur sæti. Í
ljós kom að áhuginn var eitthvað
meiri, en aðilar sem lýst höfðu
áhuga á að bjóða sig fram í 3.4. sæti
féllu frá því þar sem formanni kjör
stjórnar flokksins í kjördæminu
hugnaðist ekki að þeir væru allir
frá Akranesi. Það þætti ekki fínn
pappír að efstu menn væru allir úr
sama plássi. Það getur vart talist
heillavænlegt skref að komið sé í
veg fyrir að þeir sem þó hafa áhuga
á að taka þátt í stjórnmálum séu
stoppaðir af, þótt þeir séu frá sama
stað og keppinautar þeirra.
rjómi frambjóðenda
Stjórnmálamenn leggja ýmis
legt á sig í aðdraganda kosninga.
Ragnheiður Elín Árnadóttir ráð
herra og Silja Dögg Gunn ars dótt
ir Framsóknarþingmaður háðu
harða keppni í rjómatertukasti
á Hvols velli um helgina þar sem
Silja Dögg fór með sigur af hólmi.
Ragnheiður Elín er þessa dagana í
hörðum slag um fyrsta sæti í próf
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Suður
kjördæmi. Silja Dögg á hins vegar
fyrir höndum tvöfalt kjördæmis
þing þar sem valið verður á lista
Framsóknarflokksins. Þá kemur í
ljós hvort tertukastið verður stjórn
málamönnunum til happs eða
hvort hefðbundnara rjómavöfflu
kaffi hefði dugað betur.
ingvar@frettabladid.is
2 9 . á g ú s t 2 0 1 6 M á N U D A g U R12 s k o ð U N ∙ F R É t t A B L A ð i ð
SKOÐUN
2
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
0
-F
C
6
8
1
A
6
0
-F
B
2
C
1
A
6
0
-F
9
F
0
1
A
6
0
-F
8
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K