Fréttablaðið - 05.09.2016, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.09.2016, Blaðsíða 38
Brúðkaup er hin fullkomna stund, þar sem allt þarf að vera fullkomið og leitast er við að ná þessu markmiði, full- komnun,“ segir Guðrún Selma Sigurjónsdóttir sem ásamt Gígju Jónsdóttur leitar nú logandi ljósi að tilvonandi brúðhjónum sem vilja gifta sig í sýningunni þeirra A Guide to the Perfect Human sem sýnd verður í Tjarnarbíói. „Við gerðum saman verk í fyrra sem hét Drop Dead Diet sem var unnið út frá megr- unarkúrum. Nú erum við að vinna í sjálf- stæðu framhaldi þar sem sjálfshjálpar- bækurnar eru í forgrunni. Þaðan fórum við yfir í hugmyndina um fullkomnun. Það eru allir að reyna að ná þessu markmiði, að vera fullkominn, bæði and- lega og líkamlega.“ Sýningin fer á fjalirnar í janúar svo þau pör sem gæla við að láta pússa sig saman á óvenjulegan og ansi ódýran h á t t æ t t u s a n n a r l e g a að velta möguleikanum fyrir sér en þær stöllur munu sum sé sjá um vígsluna og veisluna eins og hún leggur sig, brúðhjónunum að kostnaðarlausu. Nema hvað, að þeir gestir sem brúðhjónin bjóða greiða inn á sýninguna eins og aðrir sýningargestir. „Það hefði vissulega verið miklu auðveldara að finna einhverja leikara til að leika þetta en við vilj- um blanda saman raunveruleika og tilbúningi. Við erum að velta fyrir okkur hvort fullkomleikinn sé raunverulegur. Það rímar svo vel við það sem við erum að sjá á netinu og mátum okkur endalaust við, en vitum svo ekki hvað er raunveru- lega á bak við. Það er gaman að geta leikið sér með raunveruleikann og sviðssetninguna svona,“ útskýrir Guðrún. En eitthvað kostar nú að blása til brúðkaups, ætla þær stöllur að standa straum af þeim kostnaði fyrir brúðhjónin? „Skiptidíllinn er þannig, já, að við sjáum um það allt. En við erum ekki að fara að kaupa hundrað þúsund króna kjól á brúðina eða neitt svoleiðis,“ segir hún og skellir upp úr en heldur svo áfram: „Við erum með góða bún- inga- og leikmunahönnuði á okkar snærum.“ Guðrún segir að fyrir þá sem hafa áhuga á að láta pússa sig saman á eftirminnilegan hátt sé leiksýning afar ákjósanlegur kostur. „Þetta er engin keppni, fólk getur bara haft samband við mig með því að senda mér tölvupóst á netfangið gudrun- selmas@gmail.com.  Ég reikna með að við tökum ein til þrenn brúð- hjón,“ segir hún og segir fólk ekki þurfa að óttast langt og strangt æfingaferli. „Þetta verður bara eins og þegar fólk giftir sig. Þau munu ekkert flækjast inn í ferlið og þurfa ekki að læra neitt hlutverk,“ segir hún að lokum. gudrun@frettabladid.is SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Við gerðum saman Verk í fyrra sem hét Drop DeaD Diet sem Var unnið út frá megrunar- kúrum. nú erum Við að Vinna í sjálfstæðu fram- halDi þar sem sjálfshjálp- arbækurnar eru í for- grunni Q U I C K R E F R E S H ™ Á K L Æ Ð I Rennilás gerir það afar einfalt er að taka QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Háþróað TEMPUR® efni Precision™ Micro gormar Við höfum endurskapað heilsudýnuna. Aftur. Rennilásinn er líklega það eina sem við endurhönnuðum ekki. NÝJA TEMPUR® Hybrid heilsudýnan Með því að sameina háþróaða TEMPUR® efnið og hina vönduðu Precision™ micro gorma aðlagar nýja TEMPUR® Hybrid heilsudýnan sig fullkomlega að líkama þínum og bregst við hreyfingum þínum þannig að þú upplifir réttan stuðning og hámarksþægindi. Til enn frekari þægindaauka er dýnan klædd QuickRefresh™ áklæði sem taka má af með rennilás og þvo. T E M P U R ® H Y B R I D H E I L S U DÝ N A N Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa! A F S L ÁT T U R 25% KO M D U N Ú N A ! T E M P U R-D A G A R flippuð brúðhjón í aðalhlutverki Þær Guðrún Selma og Gígja Jónsdóttir leita eftir fólki sem er til í að gifta sig í alvöru í leiksýningu sem sett verður upp í janúar næst- komandi. Þær munu standa straum af öllum kostnaði brúðkaupsins en undanskilja þó brúðarkjólakaup fyrir hundruð þúsunda. Guðrún Selma segir þær Gígju leita eftir einu, tveimur eða þremur pörum til að gefa saman í leiksýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r22 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð 0 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 7 5 -8 5 9 C 1 A 7 5 -8 4 6 0 1 A 7 5 -8 3 2 4 1 A 7 5 -8 1 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.