Fréttablaðið - 05.09.2016, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 05.09.2016, Blaðsíða 11
Það er óumdeilt meðal þeirra þjóða sem fremstar standa að háskólar eru ómissandi hlekkur í þekkingar- og verðmæta- sköpun nútímasamfélaga og að lífskjör í framtíðinni munu byggja á menntun, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Markmið Háskóla Íslands er því að sækja fram á sviði rannsókna og kennslu ásamt því að efla gæði og styrkja innviði. Drifkrafturinn felst í að skapa nýja þekkingu og verðmæti byggð á rannsóknum og vísindum. Háskóli Íslands hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum. Rannsóknavirkni starfsmanna hefur vaxið hratt og sýna alþjóð- legar mælingar að áhrif vísinda- starfsins eru á flestum sviðum vel yfir heimsmeðaltali. Þá má benda á að um 1,5% þjóðarinnar á aldr- inum 25-64 ára ljúka nú prófgráðu frá skólanum á ári hverju. Á sama tíma er Háskólinn í nánu samstarfi við marga af helstu rannsókna- háskólum heims ásamt því að eiga í ríkulegri samvinnu við öflugar íslenskar vísindastofnanir og mörg fyrirtæki. Faglegur styrkur Háskóla Íslands varð til þess að hann komst árið 2011 á lista Times Higher Education World University Rankings yfir 300 bestu háskóla heims. Árið 2015 var Háskóli Íslands í 222. sæti og jafnframt í 13. sæti yfir bestu háskóla á Norður- löndum. Þessi árangur byggist á frá- bæru starfsfólki og skýrri langtíma- sýn og hann skapar fjölmörg tækifæri til samstarfs, innanlands og utan. Til að festa þennan árangur í sessi og ná viðspyrnu fyrir áframhaldandi sókn höfum við fyrir skömmu mótað nýja framtíðar stefnu fyrir tímabilið 2016- 2021 undir titlinum Öflugur háskóli – farsælt samfélag. Gífurleg vonbrigði Háskóli Íslands nýtur mikils trausts hjá íslenskum almenningi og við sem þar störfum höfum bundið miklar vonir við að stjórnvöld taki höndum saman með okkur í þeirri sókn sem framundan er. Allir hagvísar benda til þess að bjart sé fram undan og það eru því gífurleg vonbrigði að í nýsam- þykktri fjármálaáætlun ríkisstjórnar- innar fyrir næstu ár eru háskólarnir í landinu skildir eftir við nauðsynlega uppbyggingu innviða íslensks sam- félags. Meðalframlag á hvern háskólanema í ríkjum OECD er um þriðjungi hærra en á Íslandi og framlög á Norðurlönd- um að meðaltali tvöföld á við það sem gerist hér. Þetta hefur allt saman legið fyrir í langan tíma. Háskóli Íslands er afar vel rekin stofnun og hefur með ráðdeild tekist að halda rekstrinum í jafnvægi um árabil. Þrátt fyrir mikið aðhald er í ár í fyrsta sinn gert ráð fyrir 300 m.kr. rekstrarhalla. Við það verður ekki unað lengur. Ef ekki á að stefna uppbyggingarstarfi Háskóla Íslands í voða er komið að því að stjórnvöld láti verkin tala. Öflugur háskóli til farsældar Jón Atli Bene- diktsson rektor Háskóla Íslands KÚNSTIN AÐ NÆRAST Misvísandi upplýsingar um mataræði og flóra af iðnaðarfram- leiddum mat getur gert fólki erfitt fyrir í daglegum ákvörðunum um matarvenjur. Við bjóðum upp á hagnýtan fróðleik í stuttum erindum fyrir alla með áhuga á heilbrigðum lífsstíl. Haldið í sal Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 6. sept- ember kl. 17 til 18:15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir en óskað er eftir skráningu á krabb@krabb.is. Samantekt frá Foodlose ráðstefnunni Guðmundur F. Jóhannsson, læknir og skipuleggjandi Foodlose ráðstefnunnar, fjallar um helstu niðurstöður fyrirlesara á Foodlose ráðstefnunni sem haldin var í maí í Hörpu. Borðar þú með frum- eða framheilanum? Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsufræðum og fræðslustjóri Krabbameinsfélagsins, fjallar um þá þætti sem stjórna fæðuinntöku okkar. Hollir og gómsætir réttir úr eldhúsi Happ í boði fyrir gesti. Máttur matarins Er fiskur ofurfæða? Jóhanna Eyrún Torfadóttir, löggiltur næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum, fjallar um nýja skýrslu sem hún vann um heilnæmi fiskneyslu og áhrifa hennar á heilsu. Á 21. ÖLDINNI Apótek framtíðarinnar er að finna í ísskápnum. Lukka í Happ fjallar um hvernig við getum haft áhrif á heilsu okkar og vellíðan með því að velja gott hráefni til að setja inn fyrir okkar varir. Hugmyndir og uppskriftir að hollum og góðum réttum. Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Baráttan fyrir náttúruvernd er eilífðarverkefni. Eyðingar-öfl mannsins eru sívirk og óþreytandi – menn sem vilja þaulnýta gjafir náttúrunnar með stundargróðann einan að leiðar- ljósi en hirða ekki um hugsanlegar afleiðingar umsvifanna á vist- kerfið. Trúa ekki náttúruvísinda- mönnum – eða er bara hreinlega sama; finnst það skipta meira máli að hafa það þægilegt hér og nú; mestu varði að „skapa atvinnu“. Svo eru alltaf til menn sem líta á náttúruna sem ófullkomna og telja hlutverk sitt að laga hana og leiðrétta, betrumbæta ferla hennar og hámarka not hennar fyrir mannskepnuna. Og loks eru þeir til sem er bein- línis í nöp við náttúruna; mega ekki sjá foss án þess að vilja fjötra hann; fljót án þess að vilja stífla það; fjall án þess að vilja moka úr því; fugl án þess að vilja skjóta hann. Menn sem eru alltaf að eltast við síðasta geirfuglinn. … að það reddist Og nú er tekist á um fiskeldi og stórfelld umsvif norskra fisk- eldisfyrirtækja hér á landi eftir að þrengt hefur verið að starfsemi þeirra í Noregi vegna alvarlegra vandamála sem hún hefur haft í för með sér fyrir norska náttúru. Þá er horft til Íslands til að halda áfram án þess að þurfa að lúta of ströngum reglum og stífu eftirliti. Helst er horft til Vestfjarða. Við munum eftir því að fyrir nokkrum árum komu nokkrir menn í Arnar- fjörðinn – fegursta fjörð landsins – svipuðust þar um og sögðu svo: Hér vantar einmitt olíuhreinsun- arstöð. Og hófust handa við furðu almennan fögnuð en til allrar hamingju þraut þá örendið áður en þeir næðu að gera auðugustu fiskimið Evrópu að olíuflutninga- svæði og fjörðinn fagra að vett- vangi fyrir eina óþrifalegustu iðju sem rányrkja mannsins á jarðar- gæðunum hefur í för með sér. Og enn hafa menn uppi mikil áform á Vestfjörðum. Þegar er búið að veita leyfi fyrir laxeldi í sjó þar vestra í þúsundatonnavís og hefur verið sótt um leyfi fyrir ennþá meira eldi – svo skiptir tugum þúsundatonna hér og þar um landið. Óhætt er að segja að í þessum áformum öllum sjái menn í hyll- ingum mikla peninga en treysti að öðru leyti á guð og lukkuna, en einkum þó norskt hugvit. Menn treysta því að ekki þurfi að rannsaka áhrif fram- kvæmdanna á lífríkið, og vilja helst vera búnir að gera sem mest áður en næst að rannsaka áhrifin í sönnum Kröflustíl. Menn treysta því að laxeldið muni ekki hafa áhrif á náttúrulega fiskistofna; treysta því að það sleppi til þó að laxeldið sé á mjög viðkvæmu svæði, og í grennd við þekktar lax- og silungsveiðiár. Menn treysta því að þó að fiskar sleppi út í nátt- úruna þá muni þeir ekki blandast við villta stofna með þeim afleið- ingum fyrir þá stofna sem hér eru að þeir munu glata uppsöfnuðum hæfileikum sínum til að lifa af við einmitt þær aðstæður sem ríkja í þeirri á sem allar laxakynslóðirnar á undan þeim hafa vitjað á hverju ári frá lokum ísaldar. Tökum sénsinn á því. Þeir finna eitthvað út úr því Norðmennirnir. Menn treysta því að laxeldið hafi ekki áhrif á fuglalíf og að mengun verði ekki vandamál kringum þennan rekstur; menn treysta því að áhrif á æðarvarp og skelfisk verði engin. Menn treysta því að sjúkdómar berist ekki með hafstraumum og menn treysta því að laxalús, sem verið hefur mikið vandamál í Noregi, muni ekki þrífast hér við land. Um að gera að taka bara sénsinn á því. Landnámsmenn Menn eru með öðrum orðum bjartsýnir og að sama skapi sinnu- litlir um allt það sem í húfi kann að vera, gangi öll þessi áform eftir. Í fyrsta lagi er náttúran verðmæt í sjálfri sér; það er grundvallar- regla að maðurinn hagi ævinlega verkum sínum þannig að náttúran skaðist ekki eða skerðist, sem er raunar alls ekki erfitt því að nógar eru gjafir jarðar til að fæða allar skepnur. Í öðru lagi hefur Ísland sérstaka – og viðkvæma – ímynd sem þarf að gæta sérstaklega. Þetta er ímynd óspilltrar náttúru, sem verður því sterkari og verðmætari sem náttúran er – óspilltari. Matvælaframleiðsla er göfug iðja í sveltandi heimi en þegar um er að ræða svo viðkvæma starf- semi sem fiskeldi er ekki hægt vaða áfram með úreltum aðferð- um frá Noregi, sem hafa skilið eftir sig óafturkræf umhverfisspjöll, mengaða firði þar sem lítið líf þrífst og villta laxastofna sem eru nú þegar byrjaðir að blandast eldisfiskinum þannig að þeir munu halda áfram að veiklast á næstu áratugum. Nú þegar fiskeldi Samherja undir merki Íslands- bleikju segir frá því að þeir ætli að stórauka umsvif sín í lítt mengandi landeldi á bleíkju og laxi, með starfsstöðvum í Axarfirði og Grindavík, hafa Norðmenn hins vegar mestan áhuga á að komast ódýrt í ósnortna firði við Íslands- strendur og gjöreyða þeim eins og þeir hafa nú þegar gert heima fyrir – með dyggum stuðningi íslenskra sveitarstjórna og hins opin- bera sem taka allri fjárfestingu á landsbyggðinni fegins hendi. Og íslenskir athafnamenn kætast yfir því að fá loks til liðs við sig erlend fyrirtæki sem kunni til verka eftir langa sorgarsögu gjaldþrota í fisk- eldi hér við land. Næst verður það líklega Grænland – eins og þegar norsku landnámsmennirnir eyddu fyrst birkiskógunum á Íslandi með aðstoð sauðkindarinnar og héldu síðan áfram á Grænlandi þegar allt var upp urið hér á landi. Menn treysta því... Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Menn treysta því að ekki þurfi að rannsaka áhrif fram- kvæmdanna á lífríkið, og vilja helst vera búnir að gera sem mest áður en næst að rannsaka áhrifin í sönnum Kröflustíl. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 5 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 0 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 7 5 -7 B B C 1 A 7 5 -7 A 8 0 1 A 7 5 -7 9 4 4 1 A 7 5 -7 8 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.