Fréttablaðið - 02.12.2016, Qupperneq 34
skipta unga hönnuði miklu máli.
„Þetta hefur gífurlega mikla
þýðingu fyrir mig. Þarna er
möguleiki á að selja verk og fá
tengiliði í gallerí sem eru með
listtengda skartgripi. Einnig er
mikilvægt að fá hreinlega
að gera það sem ég geri
og fá að sýna verkin.
Það mun svo koma
í ljós hverju þetta
skilar. Aðalmál-
ið að njóta þess
að taka þátt og
gera sitt allra
besta. LOOT er
dálítið sér á báti
hvað varðar
þessa pop-up
stemningu.
Sýningar sem
ég hef tekið þátt í
áður hafa varað í
lengri tíma en færri
verk til sýnis. Þar má
helst nefna sýninguna
From the coolest corner,
sem fór milli fimm landa á
rúmu ári og sýningin V&A
í London en inn á
hana var ég valin
nýútskrifuð. Síð-
asta sýning sem
ég tók þátt í var
hér heima, „Triad“
í H ö n n u n a r -
safni Íslands í mars. Sýningar-
stjóri LOOT var ekki viss hvar
hún hefði séð verk eftir mig,
en ég hugsa að þetta hafi komið
til vegna mynda af verkunum
mínum á Instagram eða öðrum
miðlum,“ segir Helga.
Hvernig myndirðu lýsa þínu
verklagi?
„Ég teikna mjög mikið í ferlinu
og oft líður mér eins og það
sem ég geri sé teikning
í efni. Ég er ekki mikið
fyrir að þvinga efnið
heldur fylgi flæðinu
með efniviðinn og
er ekki föst í að ná
ákveðinni útkomu.
Rekaviðurinn er
mjög sjálfstæð-
ur, þegar ég saga
spýtuna kvarn-
ast kannski upp úr
eða sprunga leynist
einhvers staðar
sem ég gerði ekki ráð
fyrir. Sagan er líka svo
heillandi við rekaviðinn.
Spýtan var tré um langan
tíma í Síberíu, síðan fellt og
því fleytt niður á og út á haf.
Í hafinu hefur tréð svo velkst
kannski hátt í 30 ár áður en það
verður að girð-
ingar staur á Íslandi
í 50 ár og endar
loks sem næla eða
hálsmen sem lifir
áfram í mörg ár,“
segir Helga.
Nánar má forvitnast um hönnun
Helgu á Helga Mogensen Jewell-
ery/Skartgripir á Facebook.
„Þetta er stærsta verkefni sem
ég hef tekist á við. Bæði verð ég
með mikinn fjölda verka og allt
umfang er stærra en í fyrri sýn-
ingum sem hef tekið þátt í,“ segir
Helga Mogensen skartgripahönn-
uður, en hún var valin inn á sýn-
inguna LOOT sem haldin er ár
hvert í Museum of Art and Design
(MAD) í New York.
Sýningin verður haldin í apríl
2017 og stendur yfir í sex daga.
Hönnuðirnir eru á staðnum og tala
við gesti og eru gripirnir til sölu.
Sýningarstjóri velur þátttakendur
alls staðar að úr heiminum og er
markmið sýningarinnar að sýna
sem fjölbreytilegastan efnivið sem
notaður er í skartgripagerð. Helga
mun sýna hálsmen, eyrnalokka
og armbönd, aðallega úr rekaviði
en rekaviður hefur verið rauður
þráður í hönnun Helgu. Hún segir
þátttöku í sýningu sem þessari
Valin inn á
sýninguna
lOOT í new
YOrk
Helga Ragnhildur
Mogensen
skartgripahönnuður mun
taka þátt í sýningunni
LOOT sem haldin er í
MAD safninu í New York
í vor. Markmið
sýningarinnar er að kynna
ólíkan efnivið skargripahönnuða en Helga mun
sýna skart úr rekaviði.
Helga Mogensen skartgripahönnuður tekur þátt í LOOT-sýningunni í New York í vor en hún hannar skart meðal annars úr
rekaviði. MYNd/Gva
Helga mun sýna hálsmen, eyrnalokka og armbönd, aðallega úr rekaviði en reka-
viður hefur verið rauður þráður í hönnun Helgu.
Nánar má forvitnast um hönnun
Helgu á Helga Mogensen Jewell-
ery/Skartgripir á Facebook en
gripina selur hún í Kirsuberja-
trénu, Snúru og Kistu í Hofi.Tilboðið gildir með völdum sjónvarpspökkum 365 til 15. desember 2016.
APPLE TV 4 Á 0 KR.
með 12 mánaða áskrift að völdum pökkum 365
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á 365.IS
Útgáfa 2.0
Íslensk valmynd
og tímaflakk.
ÁSKRIFENDA-
LOTTERÍ 365
Allir áskrifendur að
sjónvarpspökkum 365
í nóv. og des. eiga
möguleika á að
vinna glæsilega
vinninga.
2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r10 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
0
2
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
6
-9
F
6
0
1
B
8
6
-9
E
2
4
1
B
8
6
-9
C
E
8
1
B
8
6
-9
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K