Fréttablaðið - 02.12.2016, Side 42
1804 Napóleon er krýndur
keisari yfir Frakklandi í París.
1939 Starfsemi á La Guardia-
flugvellinum í New York hefst
formlega.
1961 Fídel Castro lýsir því yfir
að hann sé marx-lenínisti og að
Kúbu verði stjórnað í samræmi
við hugmyndafræði kommún-
isma.
1982 Læknar í ríkisháskólanum
í Utah koma fyrir gervihjarta í
brjósti Barneys Clark tannlækn-
is. Hann lifði í 112 daga með
gervihjartað. Þessi aðgerð var
hin fyrsta sinnar tegundar í
sögunni.
1986 Fyrsti alþjóðlegi baráttudagurinn gegn þrælahaldi er haldinn.
1988 Benazir Bhutto tekur formlega við embætti forsætisráðherra
Pakistans og verður þar með fyrsta konan til þess að vera þjóðar-
leiðtogi íslamsks ríkis.
1993 Pablo Escobar, kólumbíski eiturlyfjabaróninn, er myrtur í
Medellín í Kólumbíu.
2001 Fyrirtækið Enron lýsir yfir gjaldþroti.
Merkisatburðir
Benazir Bhutto var kjörin forsætisráð-
herra Pakistans þennan dag árið 1988,
fyrst kvenna í íslömsku landi.
Bhutto fæddist árið 1952 og var dóttir
Zulfikars Ali Bhutto sem var forseti og for-
sætisráðherra Pakistans. Hann stofnaði
Þjóðarflokk Pakistans sem er einn af
áhrifamestu flokkum landsins. Zulfikar
var settur af í valdaráni og tekinn af lífi
eftir umdeild réttarhöld.
Talið er að Muhammad Zia-ul-Haq,
hershöfðingi og forseti landsins, hafi
haldið þar um stjórnartaumana. Eftir lát
Zulfikars var ekkja hans, Nusrat Bhutto,
í forsvari fyrir Þjóðarflokkinn og síðar
Benazir.
Benazir stundaði nám í Bandaríkjunum
og Englandi en sneri heim þegar Zia lést
í dularfullu þyrluslysi. Flokkur hennar
sigraði í þingkosningunum 1988 sem
voru fyrstu opnu kosningarnar í Pakistan
í tíu ár.
Benazir gegndi embætti forsætisráð-
herra aðeins í 20 mánuði en þáverandi
forseti landsins rak hana úr embætti
vegna ásakana um spillingu. Benazir
Bhutto gegndi aftur embætti forsætisráð-
herra árin 1993 til 1996 en var aftur rekin
úr embætti vegna svipaðra ásakana.
Þá fór hún í sjálfskipaða útlegð. Benazir
sneri aftur heim haustið 2007 til að taka
þátt í kosningum sem fara áttu fram í
byrjun árs 2008 en lést í sjálfsmorðsárás
27. desember. 20 til viðbótar létust.
Þ etta g e r ð i st 2 . d e s e m b e r 1 9 8 8
Fyrsti kvenforsætisráðherra í íslömsku landiInnilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Ástu Bryndísar
Guðbjartsdóttur
Seljahlíð – heimili aldraðra.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Seljahlíðar fyrir
góða og hlýja umönnun.
Bryndís Thorarensen
Haukur Holm Guðný Lára Ingadóttir
Margrét Kristjánsdóttir
Bjarni Grímsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Guðna Guðjónssonar
Barbara Stanzeit,
Greta, Gunnar, Gylfi,
Barbara, Bryndís, Berglind,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín og vinur, móðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
Jakobína Björg Jónasdóttir
frá Grænavatni,
Túngötu 7, Hvanneyri,
lést 29. nóvember síðastliðinn á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Trausti Eyjólfsson
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Edda Ingibjörg Eggertsdóttir
Barðastöðum 11,
áður Stigahlíð 91, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Landspítalanum þann 27. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
6. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðný Edda Gísladóttir Guðjón Kr. Guðjónsson
Eggert Árni Gíslason Petra Bragadóttir
Halldór Páll Gíslason Anna Helga Höskuldsdóttir
Gunnar Þór Gíslason Sólveig Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bara vel, það er ekkert annað í stöðunni. maður verður bara að taka þessu,“ segir Logi aðspurður hvernig stórafmælið leggist í hann. „Ég held að öll stórafmæli
séu skrýtin. maður heldur kannski að
maður muni vakna eitthvað skringi-
lega en svo bara gerist ekki neitt,“ segir
Logi sem er spenntur en jafnframt smá
stressaður fyrir afmælisdeginum.
sjálfur ætlar hann að fagna með því að
halda gott partí fyrir vini sína. „mér finnst
það bara alltaf vera besta leiðin. Og svo
ætla vinir mínir reyndar að halda
partí fyrir mig, sem er mjög
óvenjulegt. Ég er með sjón-
varpsþátt í kvöld og ég
fæ ekki að vita hvað er
í honum. Ég fæ ekki að
vita hverjir eru gestir
eða neitt,“ segir Logi og
hlær. „Ég á bara að mæta
og fara í þáttinn, sem er
fyndið en líka pínu hræði-
legt segir Logi sem er aug-
ljóslega smá stressaður
yfir uppátæki vina
sinna. „Ég
veit ekkert hvað gerist þannig að þetta er
mjög spennandi, ég hef ekki lent í þessu
áður. Ég geri ráð fyrir að það verði bara
bókað eitthvað gott fólk. Ég er pínu smeyk-
ur en þetta kemur bara í ljós. Ég meina,
þetta eru vinir mínir,“ útskýrir hann.
Logi er svo búinn að taka smá forskot
á sæluna og fá eina afmælisgjöf. „Ég er
búinn að fá gjöf frá eiginkonu minni. Ég
er mjög ánægður með hana. Hún gaf mér
stól, einhvern ótrúlega fínan stól sem ég
fékk að hjálpa til við að velja. svo gaf
góður vinur minn mér afmælisskó. ann-
ars fæ ég örugglega eitthvert golf-dót líka.
Það er það eina sem ég veit.“
Þegar Logi er spurður út í fyrri afmælis-
daga segir hann fertugsafmælið vera ansi
eftirminnilegt. „Það var haldið á Nasa og
það var rosalega gaman. Þetta var eins og
partí á að vera, fór alveg úr böndunum.
mér finnst alltaf best þegar það endar
þannig.“ gudnyhronn@365.is
Ætlar að fagna með alvöru
partíi í góðra vina hópi
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson fagnar afmæli í dag en hann er 50 ára. Það
bíður hans viðburðarík helgi þar sem hann mun stýra öðruvísi þætti af Loga í beinni í
kvöld og svo verður haldið heljarinnar partí annað kvöld fyrir vini og vandamenn.
Ég veit ekkert hvað
gerist þannig að
þetta er mjög spennandi, ég
hef ekki lent í þessu
áður. Ég geri ráð
fyrir að það verði
bara bókað
eitthvað gott
fólk. Ég er pínu
smeykur en
þetta kemur
bara í ljós. Ég
meina, þetta eru
vinir mínir.
Logi Bergmann sem ungur gutti. Hann er þegar búinn að fá nokkrar afmælisgjafir.
2 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F Ö s T U d A G U r26 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
0
2
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
6
-D
5
B
0
1
B
8
6
-D
4
7
4
1
B
8
6
-D
3
3
8
1
B
8
6
-D
1
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K