Víkurfréttir - 29.09.1983, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 29. september 1983
VÍKUR-fréttir
Verkstjóri
Óskum eftir að ráða verkstjóra. Upplýs-
ingar í síma 7473.
Fiskverkun Jóns Eðvaldssonar hf.
Sandgerði
Verkalýðs- og sjómanna-
félag Keflavikur og
nágrennis
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur og nágrennis, um
kjör aðal- og varafulltrúa á 11. þing Verka-
mannasambands íslands. Tillögur um 5
fulltrúa og jafn marga til vara, skulu sendar
skrifstofu félagsins í síðasta lagi fyrir kl. 19,
fimmtudaginn 6. október n.k.
Hverri tillögu skal fylgja stuðningsyfirlýs-
ing a.m.k. 100 fullgildra félaga.
Kjörstjórnin
Auglýsing frá
Styrktarfélagi
aldraðra á
Suðurnesjum
Vetrarstarfið hefst mánudaginn 3. okt. n.k.
að Suðurgötu 12-14, Keflavík.
Tímabilið 3/10 - 12/12’83
Tímabilið 16/1 -30/4 '84
Sjá nánar Vetrardagskrá 1983-84.
Óskað er eftir ungu fólki til starfa.
Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum
Hvað með iðnþróunarsjóð
fyrir Suðurnes?
Þann 19. maí sl. boðaði
atvinnumálanefnd Suður-
nesja til ráðstefnu um
möguleika á stofnun
iðnþróunarsjóös fyrir Suð-
urnes. öllum bæjar- og
sveitarfélögum var boðið að
senda minnst þrjá fulltrúa til
ráðstefnu þessarar. Fjöl-
mennt var á ráðstefnunni
og í lok hennar var samin
áskorun til bæjar- og sveit-
arfélaga um að þau hvert í
sinu lagi, fyrir 1. okt., tækju
ákvörðun um hvort stefna
bæri að sameiginlegum
iðnþróunarsjóði fyrir Suð-
urnes. Þar sem þessi
umþóttunartími er senn á
enda er rétt að minna enn á
þetta mjög svo mikilvæga
mál.
Tveir landsfjórðungar,
þ.e. Austurland og Suöur-
land, hafa nú þegar hver um
sig stofnað iðnþróunarsjóð,
sem er í eigu sveitarfélag-
anna. Eyfirðingar hafa
stofnað hlutafélag um sjóð
eða iönþróunarfélag Eyja-
fjarðar, sem þó er meö öðru
sniði en hinir tveir fyrr-
nefndu landsfjórðunga-
sjóðir. Við þetta má bæta,
að Keflavíkurkaupstaður
stofnaöi sérstakan iðnþró-
unarsjóð 1982, en úthlutun
úr sjóðnum hefur ekki átt
sér stað, þar sem rétt þótti
aö kanna afstöðu hinna
sveitarfélaganna til sameig-
inlegs iðnþróunarsjóðs
fyrir Suðurnes. Umræður
um iðnþróunarsjóð fyrir
Suðurnes hafa alloft áður
veriðtil umræðu hjásveitar-
félögunum á Suðurnesjum
en er enn á ný tekiö til um-
ræðu þar sem allgóðar
lýsingar liggja fyrir og góð
reynsla hefur fengist hjá
Iðnþróunarsjóði Suður-
lands, en sá sjóður hefur
starfað lengst, eða allt frá
árinu 1981.
Hvers vegna ber að
stofna iðnþróunarsjóð Suð-
urnesja?
FUNDURí STAPA
Lýðræðið og lífskjörin
Q
Svavar
Geir
Elsa
Baráttan gegn ríkisstjórninni
mánudaginn 3. okt. kl. 20.30. - Allir velkomnir.
Fyrir því liggja margar at-
hyglisverðar ástæður.
1. Suðurnes er eitt at-
vinnusvæði og sameigin-
legur sjóður fyrir Suðurnes
hefur meiri tekjumöguleika
en ef sjóðir væru í eigu
hvers bæjar- eða sveitarfé-
lags fyrir sig. í lögum um
með stuðlað að fjölbreytt-
ara mannlífi á Suðurnesj-
um.
3. Það ferekki á milli mála
að til eru margir sjóðir á
Reykjavíkursvæðinu, sem
lána til fjárfestingar, rekst-
urs, birgða, vörukynninga
o.s.frv. á íslandi. En hverjir
Jón Unndórsson, iónráógjafi Suðurnesja
Byggöasjóð er heimild fyrir
styrkveitingu til landshluta-
sjóða. Þessi heimild hefur
ekki verið notuð þar sem
aðeins einn landshlutasjóð-
ur hefur starfað. Þann 20.
maí sl. var stofnaður Iðn-
þróunarsjóður Austurlands
og ef Suðurnes bætast við
með sjóð er það skoðun
mín að möguleikar á styrk-
veitingu til landshlutasjóða
muni aukast verulega.
2. Á Suðurnesjum starfa
mörg verktakafyrirtæki á
varnarliðssvæðinu við Kefla
víkurflugvöll, sem eru
meðal tekjuhæstu fyrir-
tækja á (slandi. Ágóði fyrir-
tækja þessa rennur að öllu
leyti útaf svæðinu.endaeru
þau vel flest í eigu annarra
en Suðurnesjamanna
sjálfra. Miklar umræður
hafa orðið um þessi mál,
þar á meðal hvernig verk-
takafyrirtækin geti stutt al-
menna atvinnuuppbygg-
ingu og iðnþróun á Suður-
nesjum ístaðþessað keppa
sífellt um vinnuafl við fyrir-
tækin á Suðurnesjum, og á
þann hátt hefta eðlilega
framþróun svæðisins. Með
stofnun Iðnþróunarsjóðs
Suðurnesja gefst verktaka-
fyrirtækjunum á Keflavíkur-
flugvelli og orkuveitum, s.s.
Hitaveitu Suðurnesja, kost-
ur á að greiða ákveðiö hlut-
fall af veltu og sýna þar með
sinn góða vilja i verki til at-
vinnuuppbyggingar og þar
ráða þessum lánveitingum
og hversu hátt er lánshlut-
fallið af lánsþörfinni? Hér
erum við e.t.v. komin að
kjarna málsins. Suðurnesja-
menn ráða ekki lánveitingu
úr þessum opinberu
sjóðum og lánshlutfalliðer í
hæsta lagi um helminguraf
lánsþörfinni.
Ef stofnaður yrði Iðnþró-
unarsjóður Suðurnesja
gefst Suðurnesjamönnum
sjálfum beinlínis tækifæri
að ráða atvinnuuppbygg-
ingu Suðurnesja. Lánsveit-
ing úr Iðnþróunarsjóði Suð-
urnesja virkaði í reynd sem
umsögn um ágæti lánsmál-
efnisins og flýtti fyrir um-
fjöllun hinna sjóðanna.
Lánshlutfallið ykist og þar
með rýmkast rekstrarfjár-
munir umsækjendanna,
sem oft getur ráðið úrslit-
um, þarsem þeirsíðurþurfa
aö afla sér dýrra skamm-
tima viöbótarlána.
4. Er fram líða stundir hef-
ur iðnþróunarsjóður á Suð-
urnesjum alla möguleika á
að eflast og verða umtals-
verður sjóður, sem um
munar. Þegar þvi marki er
náð stjórna Suðurnesja-
menn sjálfir sinni atvinnu-
uppbyggingu og iðnþróun.
Er ekki kominn tími til að
taka hendur úr vösum og
taka til óspilltra málanna?
Með kveðju.
Jón Unndórsson
iðnráðgjafi Suöurnesja
Garðyrkjufélag íslands
er félag áhugamanna, og
áhugamálið er ræktun
blóma, runna, trjáa og mat-
jurta, svo og uppgræðsla og
fegrun landsins. Allirerufé-
lagar með græna fingur.
Deild úr félaginu er starf-
andi í Keflavík og eru félag-
aráannaðhundrað. Fundur
verður haldinn i deildinni
laugardaginn 1. okt. kl. 15 í
húsi Verslunarmannafélags
Suðurnesja að Hafnargötu
28. Gestur verður Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, og mun
hann leiðbeina okkur með
hauststörf í garðinum og
svara fyrirspurnum fundar-
gesta.
Hérergulliðtækifæri fyrir
ræktendur, og ættu sem
flestir að nota það.
Allir eru velkomnir.
Stjórnin