Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 1. júní 1984 VÍKUR-fréttir r 3500 eintök vikulega. VÍKUR 4uUii Trésmiðja Njarðvíkur auglýsir: Tökum aðokkuralhliðatrésmíðavinnu inn- an- og utanhúss, nýsmíði og viðgerðir, s.s. gluggaviðgerðir, uppslátt, þakviðgerðir, hurðaísetningar o.fl. - Tökum einnig að okkur viðgerðir á bátum. - Gerum föst verð- tilboð ef óskað er. TRÉSMIÐJA NJARÐVÍKUR SF. Reykjanesvegi 50, Njarövík Símar 3160 og 3687 PASSAMYNDIR tilbúnar strax. Myndatökur við allra hæfi. nymynD Hatnargötu 26 - Keflavík • Simi 1016 Gengið inn frá bilastæöi. V_______________/ í tilefni sýningar á öryggisbúnaði fyrir börn í bílum, á nýju heilsugæslustöðinni: Börn í bílum þurfa vörn Sýning á öryggisbúnaði fyrir börn í bílum, stendur nú yfir í nýju Heilsugæslu- stöðinni í Keflavík, Skóla- vegi 8. Hún er haldin á veg- um Umferðarráðs í samráði við heilsugæslustöðina og með aðstöð lögreglunnar í Keflavík. Innflytjendur ör- yggisbúnaðarins lánuðu vörur sínar á sýninguna. Samhliða sýningunni verða foreldrar 3ja mánaða til 5 ára barna beðnir að fylla út könnunareyðublað um það, hvernig búið er að börnunum sem farþegum i bílum. Árið 1983 slösuðust hér á landi 34 börn yngri en 14 ára, sem farþegar í aftur- sætum bifreiða. 11 þessara barna voru undir 7 ára aldri. Auk þess má ætla að fleiri börn hafi slasast án þess að það hafi verið skráð sem umferðarslys. Allir sem vinna að slysa- vörnum eru sammála um að frumskilyrði sé að allirsem í bilum eru noti bilbelti í einni eða annarri mynd. Sömu reglur eiga að gilda um börn og fullorðna. Góður öryggisbúnaður fyrir börn á öllum aldri ertil. Þess vegna þarf enginn að vera laus í bilnum. Til þess að tryggja öryggi barna sem eru farþegar i bílnum leggur Umferðar- ráð eftirfarandi til: • Ungbörn eiga að liggja í traustu burðarrúmi eða efri hluta barnavagns í aftursæti bifreiðarinnar. Mjúker körfur gera ekki sama gagn. Mikilvægt er að höfuð barnsins snúi inn að miðju bílsins. • Þegar barnið getur setið eitt og óstutt er óhætt að láta það sitja í barnabíl- stól. • Þegar barnið hefur vaxið upp úr bílstólnum getur það annað hvort notað barnabílbelti eða setið á upphækkun (bílpúða) og notað bílbelti í aftursæti bifreiðarinnar. • Flest börn geta síðan not- að venjuleg bílbelti þegar þau hafa náð 30 kg þyngd og eru u.þ.b. 140-150 cm á hæð. Aðalatriðið er að enginn sé laus í bílnum. Hér gefur að lita sýnishorn af öryggisbúnaði fyrir börn, á sýningunni i nýju Heilsugæslustöðinni. B.v. Grútur Þeir eru spaugsamir iSandgerði, þvier ijósmyndari blaös- ins var þar á ferð um siðustu helgi rakst hann á skipsnafnið ,,Grútur" GK 224. En jafnframt minntist hann þess að isið- asta tölublaði var rætt um b.v. Gaut, enda þegar betur var að gáð kom i Ijós, að hér var um sama skip að ræða. Ein- hverjir spaugsamir náungar höfðu hins vegar breytt nafni skipsins á þennan hátt, eins og sést á meðfylgjandi mynd. epj. Glæsileg raðhús í Keflavík Norðurvellir: Stærð m/bílskúr 188.14 ferm. Verð: 1.745.000. Þessi hús eru í byggingu viö Norö- urvelli og viö Heiðarholt í Keflavík. Húsunum verður skilað fokheldum en full frágengnum aö utan meö stéttum og torfi á lóð. Teikningar eru eftir Kjartan Sveins- son. Allar upplýsingar gefur Fasteigna- salan, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420, og Viðar Jónsson í síma 2625. Heiðarholt: Stærð m/bilskúr 140 ferm. Verð: 1.345.000. ‘_fv| T w ^ I . -0- -t. r - 4' 41, ,

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.