Víkurfréttir - 01.06.1984, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 1. júní 1984
VÍKUR-fréttir
Næsta blað kemur út 7. júní
NÝTT! NÝTT!
Moldarbanki á Suðurnesjum
Til sölu úrvals gróður-
mold, bæði óblönduð
og blönduð skít o.fl.
Einnig önnumst við
hvers konar uppgröft
og fyllingar.
Simar: 2864 - 2495
2916 - 1911
„Alltaf verið að leggja og
draga og aldrei stoppað"
- segir Árni Þ. Árnason, sem stundar línuveiðar með 150
bjóð og er róið í um 8 klukkustundir á miðin
Niðri á bryggju í Sandgerði hitti blaðamaöur Árna Þ.
Árnason úr Keflavik, þar sem hann var að skoða bátana
sem lágu við bryggju. Árni er flestum er starfa við sjávar-
siðuna kunnur, hann var i vetur á m.b. Jöfri KE á loðnuveið-
um, en er nú á Freviunni úr Garði á línuveiðum, og hafa þeir
aö undanförnu róið frá Þorlákshöfn. Fyrsta spurningin er
blaðamaður lagði fyrir Arna var þvi, hvernig væri að róa frá
Þorlákshöfn?
Sendum sjómönnum
bestu hátíðaróskir
í tilefni sjómannadagsins.
Valbjörn hf.
Sandgerði
Sendum sjómönnum
bestu hátíðaróskir
í tilefni sjómannadagsins.
Netagerðin
Garði
,,Það er ágætt", sagði
Árni, ,,það er bara svolítið
langt að fara þarna austur í
Reynisdýpi, þetta eru 8
tímar hvora leið“.
Hafa aflabrögðin verið
góð þarna?
,,Já, það hefur verið þetta
frá 25-26 tonn í róðri, uppi-
staðan hefur náttúrlega
verið skata og keila".
Er erfiðara að stunda
þetta þarna heldur en hér
heima?
,,Já, þó aflanum sé ekið
hingað suður og við komum
hingað heim i helgarfrí um
hverja helgi, þá er þetta
erfiðara, því það er róið með
þrjár setningar eða 150 bala
og Við náum tveimur lögn-
um í vikum, eða300 bölum í
það heila“.
Nú var það umdeilt þegar
bátar fóru að róa með svona
tvær tii þrjár setningar,
hvernig finnst þér þetta
miðað við það þegar bátar
róa með eina setningu, eða
45 bjóð?
,,Ég segi fyrir mig, mér
líkar þetta ekki, frá því sem
var í gamla daga, þá var
maður bara með 45 bjóð á
vertíðinni. Þá var maður
kominn að landi á góðum
tíma alltaf, en nú er þetta
nokkurs konar útilega.
Þetta er miklu meiri vinna,
það eru standandi vaktir á
þessu allan sólahringinn
því það er alltaf verið að
leggja og draga".
Er þá iögð ein setning í
einu eða er allt lagt í fram-
haldi, hvert af öðru?
„Sko, það er alltaf verið
Humarbáturinn Binni i Gröf KE 127
Sendum sjómönnum bestu hátíðarkveðjur
í tilefni sjómannadagsins:
Fiskverkunarstöð Guðmundar Axelssonar, Keflavík
Fiskverkunarstöð Hákons og Reynalds, Keflavík
Sjöstjarnan hf, Njarðvík
R.A. Pétursson hf, Njarðvík
Hraðfrystihús Keflavíkur hf, Keflavík
Olíufélagið Skeljungur, umboð Keflavík
Olíuverslun Islands, umboð Njarðvík
Olíusamlag Keflavíkur og nágrennis, Keflavík
Skipasmiðjan Hörður hf, Njarðvík
Fiskverkunarstöð Magnúsar Björgvinssonar, Garði
Fiskverkunarstöð Karls Njálssonar, Garði
Fiskverkun Jóns Eðvaldssonar hf, Sandgerði
Vogar hf, Vogum
að leggja og draga, það er
aldrei stoppað. Þetta er lagt
svona í bútum, 25-30 balar í
einu og næsti bútur tekinn
þegar svona 10 bjóð eru
eftir“.
Verðið þið eitthvað áfram
á þessu?
,,Ég býst við þvi, svona
fram yfir mánaðamótin, ef
það verður áfram einhver
reytingur á þessu þarna
austur frá“.
Árni Þ. Árnason
Hvernig gekk á loðnunni i
vetur?
„Það gekk alveg Ijóm-
andi vel, við náðum þess-
um skammti sem okkur var
úthlutað, þessum 7400
tonnum".
Hvað tekur við hjá þér ef
línuveiðum lýkur nú um
mánaðamótin?
„Ja, ætli bátnum verði
ekki lagt, að visu hefur eig-
andanum borist tilboð varð-
andi leigu á bátnum til
rækjuveiða fyrir vestan í
sumar, en ég veit ekki hvort
hann tekur því, þá færi eng-
inn úr áhöfninni með, nema
kannski vélstjórinn, svo ég
reikna með að stunda lausa-
róðra yfir sumarmánuðina,
t.d. á rækjunni, en þannig
var það einmitt í fyrra, að
maður skipti við þá hér á
rækjunni þegar þeir voru
orðnir þreyttir á þessu“.
Hvernig heldur þú að
þessi umdeildi kvóti komi út
varðandi vertíðarbátana?
„Ég veit það ekki, það er
voðalega misjafnt hvernig
þetta hefur komið út, varð-
andi úthlutun, og þvi eru
margir óánægðir með þenn
an kvóta. Þessi kvóti hefði
nefnilega átt að koma fyrir
10 árum, en ekki nú, þegar
afli var orðinn Iftill, því þetta
kemur harðast niðurá báta-
flotanum svona gegnum
sneitt. Mér finnst ekki rétt
að þessu staðið, það hefði
átt að taka kvóta fyrr upp og
þá meðan nægilegur fiskur
var, það hefði verið betra en
svona allt í einu þegarfiskur
var að mestu horfinn".