Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.07.1984, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 12.07.1984, Blaðsíða 19
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 12. júlí 1984 - 19 Föstudagur 13. júlí: 19.35 Umhverfis jöröina á 80 dögum 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni 20.50 Grinmyndasafnið 3. Barnfóstran Skopmyndasyrpa frá dögum þöglu myndanna með Charlie Chaplin og Larry Semon. 21.05 Nýja-Sjáland úr lofti Fræðslumynd frá ný-sjálenska sjónvarpinu um náttúru lands- ins, atvinnuvegi og menningu. 21.55 ( grelpum dauðans (Kiss of Death) Bandarísk sakamálamynd frá 1947. Aðalhlutverk: Victor Mature, Richard Widmark, Brian Donlevy og Coleen Gray. - Dæmdursakamaðurneitarað koma upp um félaga sina í bófa- flokknum þar til hann kemst á snoðir um að þeir hafi reynst konu hans illa. 23.30 Fréttir í dagskrárlok Laugardagur 14. júlí: 16.30 fþróttir 18.30 Börnin við ána 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 f blíðu og striðu Lokaþáttur. 21.00 Lif í tuskunum (On The Town) Bandarísk dans- og söngva- mynd frá 1950. Aðalhlutverk: Gene Kelly, Frank Sinatra, Betty Garrett, Ann Miller, Jules Munshin og Vera Ellen. - Þrír sjóliðar fá dagsleyfi í New York. Einn þeirra verður viðskila við elskuna sína og upphefst þá eltingarleikur um alla borgina. 22.35 Raddirnar (The Whisperers) Bresk bíómynd frá 1967. Aðal- hlutverk: Edith Evans og Eric Portman. - Gömul kona býrvið bág kjör í fátækrahverfi. Hún er einstæðingur og lifir að nokkru leyti í eigin hugarheimi. 00.20 Dagskrárlok Sunnudagur 15. júli: 18.00 Sunnudagshugvekja 18.10 Geimhetjan 18.35 Fjallafé 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður Hitaveitugjöld hækka um 12% Hitaveitugjöld hækkuöu um 12% frá 1. júlí, en þau hafa verið óbreytt frá 1. ágúst 1983. Að sögn Ingólfs Aðal- steinssonar, framkvæmda- stjóra Hitaveitu Suðurnesja hefur allt frá stofnun hita- veitunnar verið reynt að halda gjalskránni i lág- marki, og er þá miðað við nauðsynlegar rekstrartekj- ur. „Lengst af hefir gjald- skráin hækkað með bygg- ingavísitölu, sem hefir eins og allir vita hækkað svo ört, að ekki hefir dugað minna en hækkun á þriggja mán- aða fresti. Nú hefir vísitala byggingakostnaðar hins vegar ekki hækkað nema 15% á heilu ári. Það er von okkar að stöðugt verðlag í landinu geri það mögulegt að halda gjaldskrá sem lengst óbreyttri", sagði Ing- ólfur Aðalsteinsson. - pket. Orðsending til FR-félaga Á Landsmóti UMF( nú um helgina hefur FR-deild 2 tekið að sér viðamikið verk- efni sem er í því fólgið að staðsetja talstöðvarbíl á hverju mótssvæði og nota síðan talstöðvarnar til að koma tilkynningum milli mótssvæða svo og aðal- stöðvar. Til þess að verk þetta taki að jafnaði ekki nema 2-3 klst. hjá hverjum félags- manni FR, sem tæki að sér vinnu við þetta, hefur nefnd sú sem annast mál þetta nú skorað á sem flesta félaga í FR að leggja þessu lið, því margt smátt gerir eitt stórt og eftir því sem fleiri koma til starfa verður verkið létt- ara. Er þessari orðsendingu hér með komið á framfæri til félagsmanna FR-deildar 2, og eru þeir sem áhuga hafa fyrir því að leggja Víkur-fréttir hvetja les- endur til að skrifa blaðinu um hvaðeina sem hugur þeirra stendur til - eða hringja í síma 1717, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð þó það sé ákjósan- legra, en séu þau skrifuð þurfa þau að vera snyrtileg og með góðri rithönd. Nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til blaðsins, þó að höfundur óski nafnleyndar, sem yrði þá að sjálfsögðu veitt. Sérstaklega þykirástæða til að beina því til lesenda búsettum í hinum ýmsu byggðum Suðurnesja utan þessu máli lið, beðnir að hafa samband við Hrafn Sveinbjörnsson FR 4787, eða Svan Jóhannsson FR 679. - epj. Keflavíkur, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í blaðinu. Ekki Bílasprautun Fitjar Við undirritaðir viljum taka fram eftirfarandi vegna greinar í Víkur-fréttum, 25. tbl., 28 júní sl., undir heit- inu „Léleg þjónusta", að þar er ekki átt við Bíla- sprautun Fitjar, Fitjabraut2 Njarðvík. Það skal líka tekið fram, að ekki er um kæruleysi eða svínsleg vinnubrögð að ræða, heldur að liklegt sé um galla að ræða í efnum þeim sem notuð voru, stæðum en því sem átt er við í umræddri grein. Þar með er ætlast til að máli þessu sé lokið. B.H.P. - Þ.B.F. Næsta blað kemur út 19. júlí. Laus staða Starfsmaður óskast við Sundhöll Keflavík- ur. Upplýsingar um starfið gefur sundhall- arstjóri í síma 1145. Umsóknum sé skilað til undirritaðs fyrir 1. ágúst n.k. Bæjarstjórinn í Keflavík Skrifið eða hringið til Víkurfrétta 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku 20.50 Sögur frá Suöur-Afriku 6. Litli betlarinn Ensk kona tekur ástfóstri við bláfátækan dreng, sem betlará götum Jóhannesarborgar, og vill koma honum til mennta. 21.50 Kiri Te Kanawa Bresk heimildamynd um hina heimsfrægu nýsjálensku óperusöngkonu Kiri Te Kanawa, söngferil hennar og einkalíf. 22.55 Dagskrárlok Sundlaug Njarðvíkur Opnunartími Landsmótsdag- ana verður sem hér segir: Fimmtudaginn 12. júlí kl. 8-9 og 12-21 Föstudaginn 13. júlí kl. 8-9 Laugardaginn 14. júlí kl. 8-12 Sunnudaginn 15. júlí LOKAÐ. Skrifstofustarf Keflavík Laust er hálfs dags starf (fyrir hádegi) á skrifstofu embættisins í Keflavík. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi BSRB. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, óskast sendar undirrituð- um fyrir 24. júlí n.k. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaður Gullbringusýslu Vatnsnesvegi 33, Keflavík Breyttur opnunartími Vegna sumarleyfa reynistekki unntað hafa opið í hádeginu í júlí og ágúst, og verðurþví opið frá kl. 9-12 og 13-15.30, mánudaga til föstudaga. BÆJARFÓGETINN í KEFLAVÍK HAFNAHREPPUR Lögtaks- úrskurður Að beiðni sveitarsjóðs Hafnahrepps úr- skurðast hér með að lögtök fyrir ógreidd- um útsvörum og aðstöðugjöldum til Hafna- hrepps fyrir gjaldárið 1982 og 1983, geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Keflavík, 6. júlí 1984. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu Jón Eysteinsson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.