Víkurfréttir - 20.12.1984, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 20. desember 1984
VIKUR-fréttir
Jóladansleikur
í Garðinum
Jóladansleikur á 2. í jólum í Samkomuhús-
inu. Hljómsveitin GOÐGÁ sér um fjörið frá
kl. 10-02. - Nú koma allir í Garðinn.
Tæplega sjötug aflakló:
Snurvoðar- og aflaspjall
við Óskar Jónsson
- sem komið hefur með tvo fullfermistúra af þorski nú síðustu vikur
ÆGIR
Engin
jól
án
bóka.
NESBÓK
Hafnargötu 54 - Keflavík - Sími 3066
Gleðileg
jól.
Eins og fram kemur annars staðar iblaðinu idag og einnig ifrétt sama efnis fyrir
stuttu, hefur Reykjaborgin RE 25 landað tvisvar fullfermi af þorski i Sandgerðis-
höfn nú með stuttu millibili. Skipstjórinn á Reykjaborginni er maður sem kominn
er af léttasta skeiðinu, enda vantar hann aðeins 4 mánuði i sjötugsaldurinn. Sá
sem hér er um rætt heitir fullu nafni Jón Óskar Jónsson, en Jóns-nafninu er yfir-
leitt sleppt i allri umræðu um hann. En hvað um það, við tókum hann nýlega i við-
tal um snurvoðina og þennan mikla afla, og hér kemur árangurinn:
Fyrst snúum viö okkur aö
fullfermistúrunum tveimur
og þvi er fyrsta spurningin
sú, hvort þaö sé rétt, aö
þegar þú varst meö 25 tonn-
inog núsíöastmeö31 tonn,
hafi hinir snurvoðarbátarnir
verið meö mun minni afla
og aö þeir hafi ekki fengið
neinar sérstakar glefsur í
haust?
,,Það hefur enginn lent í
þessu nema ég“, sagði Ósk-
ar. ,,Vikar Árnason fékk
einu sinni ágætt, en að ööru
leyti hefur bátunum gengið
fremur illa og enginn annar
en ég fengið glefsur sem
talandi er um“.
Þegar þú komst meö 25
tonnin varst þú meö fulla
lest og miðkassann, sem
var eina uppstillingin á
dekki. Hvernig var þetta þá
núna?
,,Ja, dekkið var hálf fullt,
eiginlega frá lúgu og aftur í
ganga, því báturinn tekur
ekki nema 23tonn í lestina".
Báturinn hefur þá verið
alveg sneisa fullur?
,,Já, þessir trébátar bera
alveg óhemju, enda er hér
um svo nýlegan bát að
ræða, aðeins 9 ára gamlan.
Þetta var engin loðnu-
hleðsla á honum. En ég hélt
að ég myndi aldrei eiga það
eftir að fylla bát á fáum
tímum“.
Voru ekki 20 tonn af
þessu úr einu haii?
„Jú, rúmlega það“.
Er þá ekki erfitt á svona
litlum bát aö innbyrða
svona mikil og stór höl?
,,Ja, manni datt aldrei í
hug að maður hefði það, en
af því að við vorum búnir að
Þessa mynd tók Óskar Ævarsson vélstjóri á m.b. Arney af Reykjaborginni á siglingu til lands meó
sióara fullfermió.
FATNAÐURí
MIKLU ÚRVALI Á
HAGSTÆÐU VERÐI
Karlmannahanskar, vinil ..... kr. 260
Karlmannahanskar, prjóna .... kr. 145
Dúnlúffur ................ frá kr. 195
Barnahanskar................. kr. 130
Barnagrifflur ............... kr. 135
Barnalúffur, vinil .......... kr. 160
Stakir jakkar ...... frá kr. 3900
Úlpur ................. kr. 1950
Kuldajakkar .............. 1462
Lóðfóðraðir samfestingar kr. 2800
' í ýJ Vinnuskyrtur 335
P Sweat shirt kr. 550
Bindi kr. 235
Sokkar, hvitir, frá kr. 65 Leöurbelti í litum .... kr. 120
Sokkar, mislitir . kr. 75 Vesti kr. 576
Hlíranærbolir ... kr. 90 Fínni skyrtur kr. 385
T-nærbolir kr. 110 Dragon buxur kr. 1360
Nærbuxur kr. 126 JAS buxur kr. 1700
VINNUFATABÚÐ
KAUFÉLAGS SUÐURNESJA
Hafnargötu 61 - Sími 1075
lenda í þessu áður og
maður nógu fljótur að
hugsa og ganga frá aflanum
náðist þetta upp. Þá var
veðrið gott, hægur vindur,
en talsverður sjór“.
Hvar fenguö þiö þetta?
„Við fengum þennan afla
á Kalmarstjarnarvíkinni, en
hinn róðurinn þann fyrri, á
Sandvíkinni".
En ef viö snúum okkur aö
ævistarfinu, hvenær byrj-
aðir þú sjómennsku?
„Ég er búinn að vera á
sjónum síðan ég var 9 ára
gamall, fyrst heinia, en
veturinn sem ég var
fermdur var ég á Sandi og
sótti þá um leið skóla, en ég
var vélstjóri á trillu frá
Sandi. Þaðan fór ég svo
beina leið til Ólafsvíkur til
séra Magnúsar, í fermingar-
undirbúning, síðasta hálfa
mánuðinn fyrir ferminguna.
Síðan hef ég verið á sjón-
um alla mína tíð. Hingað til
Keflavíkur kom ég 1931,
byrjaði þá með Gunnari
Sigurðssyni á m.b. Sigurði
Gunnarssyni, svo var ég á
Goðafossi. 1939 keypti ég
fyrsta bátinn og varsamfellt
í útgerð þar til fyrir tveimur
árum. Meira að segja