Víkurfréttir - 17.10.1985, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 17. október 1985
VÍKUR-fréttir
Handbolti - UMFN-Týr 20-25
EYJAPEYJINN
lokaði markinu
Njarðvíkingar undir
stjórn Arinbjarnar Þór-
hallssonar náðu ekki að
fylgja eftir tveim sigurleikj-
um er þeir mættu Tý frá
Vestmannaeyjum í Njarð-
vík sl. laugardag. Lokatöl-
ur urðu 25:20 fyrir Tý eftir
að staðan í hálfleik hafði
verið 13:7 fyrir Týsara.
Vestmannaeyingarnir
komu eins og grenjandi
ljón til leiks gegn Njarðvík-
ingum. Á föstudagskvöld
töpuðu þeir nefnilega mjög
óvænt gegn IH eftir að hafa
verið með yfirburða forskot
allan leikinn. Fremstur í
flokki þeirra ver markvörð-
urinn, Ingólfur Arnarson.
Hann varði hvað eftir
annað dauðafæri Njarðvík-
inga af línu, úr hornum og
utan af velli. Lokaði nán-
ast markinu. Týsarar náðu
6 marka forskoti fyrir leik-
hlé. Heimamenn áttu
ekkert svar við frábærum
leik Ingólfs.
I seinni hálfleik komu
heimamenn tvíefldir til
leiks, staðráðnir í að jafna
leikinn. Með mikilli bar-
áttu í vörn og sókn tókst
þeim að minnka muninn í 2
mörk og hélst sá munur
mest allan seinni hálfleik.
Það vantaði aðeins herslu-
muninn til að jafna. Á síð-
ustu mínútunum juku
Týsarar muninn aftur og 5
mörk skildu í lokin, 25:20.
Enginn skaraði framúr í
liði UMFN. Guðbjörn Jó-
hanns átti þó mjög góðan
leik þegar hann kom inn á í
seinni hálfleik. Óli Thord.
skoraði falleg mörk úr
horninu og var ósmeykur
við frábæran markvörð
Týs. Á heildina litið var
þetta of köflóttur leikur
UMFN. Liðið fékk aðeins
eina brottvísun og 2 áminn-
ingar. Týs-menn miklu
.fleiri. Það er oft stimpill á
mikla baráttu sem nauð-
synleg er í handbolta.
Mörk UMFN: Arinbjörn
4, Óli Th. 4, Snorri 3,
Guðjón 3, Guðbjörn 2,
Karvel 2, Pétur og Jón M.
1 hvor. - pket.
l.deild kvenna í körfu - ÍBK-HAUKAR 54-55
Naumt tap í góðum leik
ÍBK-stúlkurnar töpuðu 55-
54, fyrir Haukum í l.deild
kvenna í körfuknattleik, sl.
laugardag.
Keflvíkingar byrjuu leikinn
af miklum krafti og spiluðu
fyrri hálfleik mjög yfirvegað
og skynsamlega, nema hvað
stúlkurnar lentu snemma í
villuvandræðum og misstu
Kristínu Sig. útaf með 5 villur
undir lok fyrri hálfleiks. Stað-
an í hálfleik var 26-28, Hauk-
um í hag. Hauka-stúlkurnar
mættu ákveðnar til leiks í
seinni hálfleik og náðu að auka
forystu sína í 7 stig á 5 mín. Þá
loks tóku þær keflvísku viðsér
og náðu að jafna. Að loknum
venjulegum leiktíma var enn
jafnt, 50-50, og því framlengt.
í framlengingunni áttu IBK-
stúlkurnar óskabyrjun og
skoruðu 4 fyrstu stigin. Hauk-
ar komast svo yfir, 55-54 og
ÍBK fékk boltann þegar 25
sek. voru til leiksloka. Reynt
var skot en það geigaði, því
miður. Lokatölur,- Haukar
55, ÍBK 54.
Maður leiksins var án efa
Fjóla Þorkelsdóttir. Hún
skoraði 8 stig og tók 11 fráköst
þar af 7 sóknarfráköst. Anna
María (9 stig), Guðlaug (12
stig) og Björg (10 stig) voru
einnig mjög góðar.
Hjá Haukum voru Ásta (18
stig) og Sóley (17 stig) bestar.
Dómarar voru þeir Omar
Schewing og Jón (king) Guð-
brandsson og stóðu þeir sig
mjög vel í erfiðum leik.
Leikur þessi er einn besti
og skemmtilegasti kvennaleik-
ur sem undirritaður hefur séð í
Keflavík og sýnir best að ÍBK-
stelpurnar eru til alls líklegar í
vetur. -gjoh.
íþróttir um
helgina
í kvöld kl. 20 leika ÍBK og
KR í úrvalsdeildinni í
íþróttahúsi Keflavíkur og
hefst leikurinn kl. 20.
Á morgun, föstudag kl.
20, leika Njarðvíkingar og
ÍR í Njarðvík. Hefst
leikurinn kl. 20.
Á laugardag eigast við
UMFN og Haukar í 1. deild
kvenna og hefst leikurinn
kl. 14 í Njarðvík. Á sama
tíma á sunnudag leika
UMFN-stúlkurnar við
Hauka.
Á sunnudag kl. 14 leika
Sandgerðingar gegn
Grindavík í 1. deildinni, í
nýja íþróttahúsinu í
Grindavík, og verður það
vígsluleikur í húsinu.
Heimir Karls svífur hér.inn í teiginn á síðustu mínútunni og skorar jöfnunarmark Reynis.
JAFNTEFLII
SPENNULEIK
-Reynismenn jöfnuðu rétt fyrir leikslok
„Þetta var ekki nógu gott.
Við gerðum mistök þegar við
vorum með 3 marka forskot
að „hanga” ekki meira á
boltanum, - lengja sóknirnar.
En það var gott að jafna og
það hefði verið mjög ósann-
gjarnt ef við hefðum tapað
leiknum eftir að hafa leitt
svo til allan tímann” sagði
Heimir Karlsson, þjálfari
Reynismanna eftir leik
þeirra við Skagamenn í 3.
deild handboltans s.l. föstu-
dagskvöld í Sandgerði.
Sannarlega orð að sönnu
hjá þjálfara Reynis. Hann
jafnaði leikinn 24-24, þegar
30 sek. voru til leiksloka.
Markmaðurinn hafði
hendur á skoti Heimis en
missti boltann í markið.
Skagamenn reyndu árang-
urslaust að skora en tókst
ekki. Fengu aukakast þeg-
ar leiktíminn var úti en skot
„Þetta var agalegt. Að tapa
gjörunnum leik og haft 14
stiga forskot um tíma“sagði
Gunnar Oskarsson, Reynis-
maður um leik leik liðsins við
UBK sl. laugardag. Þegar 13
sek. voru til leiksloka höfðu
Reynismenn 5 stiga forskot. Á
ÍA-mannsins fór í varnar-
múr Reynis.
Reynismenn leiddu mest
allan leikinn. IA skoraði
fyrsta markið en síðan voru
heimamenn alltaf yfir, 1-3
mörk, þar til 5 mín. voru til
leiksloka. Þá komst IA í 23-
22. Þá höfðu IA-strákarnir
skorað 4 mörk í röð án
svars frá Reynismönnum.
Besti maður Reynis í leikn-
um, Daníel Einarsson, lét
verja frá sér víti og stuttu
seinna klúðraði Sigurður
Guðna dauðafæri á línu. í A
jók forystuna í 2 mörk
þegar 2 mín. voru eftir.
Danni skoraði 23. mark
Reynis að bragði og síðustu
mínútunni hefur verið lýst.
Ótrúleg spenna í lokin.
Gæði handboltans að sama
skapi léleg.
Daníel var lang bestur
Reynismanna. Skoraði
þessum tíma tókst Blikum að
jafna,- með 3ja stiga skoti og 2
vítaskotum, 58-58. Þeir unnu
svo í framlengingu. Lokatölur
70-62 fyrir UBK. Grátleg úrsl-
it fyrir Sandgerðinga sem voru
yfir allan leikinn en héldu ekki
haus í lokin. -pket.
grimmt og lék vel í vörn.
Gísli Garðars stóð sig vel
og hefur farið mikið fram.
Heimir stjórnaði spili
liðsins vel og er maður
þegar farinn að sjá Bogdan-
takta á liðinu. Leikkerfi
mikið reynd, minna um
frjálst spil. Mörg marka
Reynis í þessum leik komu
þannig. Vörn Reynis var
ekki nógu þétt fyrir. Skaga-
menn skoruðu of mikið úr
hornunum. Stórskytta
þeirra Pétur Ingólfsson var
tekinn úr umferð mest allan
leikinn, en hann er þeirra
„prímus mótor”.
Mörk Reynis: Daníel 9,
Gísli og Siguróli 4 hvor,
Elvar, Sig. Guðna og Heim-
irK. 2hverogHeimirM. 1.
Pétur Ingólfs skoraði mest
fyrir IA, 7 mörk.
pket.
EINARA
LOÐNU
Það vakti athygli að
Einar Benediktsson,
markvörður Reynis, jék
ekki í markinu gegn IA.
Einsi karlinn er farinn á
loðnu og er því óvíst
hvort hann leikur meira
með liðinu á þessu
tímabili. Reynismenn
vona bara að Einar og
félagar hans á Jöfri KE
Verði fljótir með
kvótann svo Einar kom-
ist í baráttuna á nýjan
leik. - pket.
ÍBK VANN
3.deildarlið ÍBK í handbolt-
anum sigraði Fylki sl.laugar-
dag, 21-20 eftir að hafa leitt í
hálfleik 10-7.
Flest mörk ÍBK skoraði
Elvar, alls 11. Gísli Jóh. og
Theódór komu næstir með 4
mörk hvor. -pket.
Verslun Varnarliðsins bar sigur úr býtum í firmakeppni UMFK
um sl. helgi. „Navy-ið“ sigraði Hraðfrystihús Keflavíkur í úrslit-
um 9-2! í 3ja sæti urðu lið kennara og fjórða lið Keflavíkurbæjar.
Á meðfylgjandi mynd eru liðsmenn verslunar Varnarliðsins.
„Þetta var agalegt“