Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 14. nóvember 1985
VÍKUR-fréttir
Handknattleikur 3. deild - Reynir UMFN 27:24
• •
Oruggur sigur Reynis
- setn enn eru taplausir
Reynismenn unnu Njarð-
víkinga örugglega í 3. deild
handboltans í Iþróttahús-
inu í Sandgerði sl. föstudag.
Lokatölur urðu 27:24 en
staðan í hálfleik var 13:12
fyrir Reyni. Reynismenn
eru því enn taplausir í deild-
inni eftir fimm leiki, hafa
unnið fjóra en gert eitt jafn-
tefli.
Fyrstu mínúturnar ein-
kenndist leikurinn af tauga-
veiklun leikmanna beggja
liðai Reynismenn komust í
3:0 en þá skoruðu Njarð-
víkingar tvö mörk. Reynir
náði aftur góðu forskoti
10:6, en aftur náði UMFN
að minnka muninn í eitt
mark og þannig var munur-
inn í hálfleik.
Reynismenn virkuðu mun
betri aðilinn, boltinn gekk
vel í sókn og vörnin var
sterk með Sigurð Guðna og
Kristín Ármanns í aðalhlut-
verkum. Sigurður hélt
besta manni UMFN, Arin-
birni Þórhalls, niðri með
því að koma vel út á móti
honum og riðlaði það sókn
UMFN. Einstaklingsfram-
takið réð ríkjum hjá Njarð-
víkingum og Guðjón skor-
aði grimmt úr vinstra horn-
inu, en hann og Ari skor-
uðu sjö af 12 mörkum
UMFN í fyrri hálfleik.
Jafnræði hélst með lið-
unum fyrstu mínúturseinni
hálfleiks. Síðan náðu Reyn-
ismenn fimm marka
forystu, 21:16, og gerðu þar
út um leikinn. Njarðvíking-
ar gerðu allt sem þeir gátu á
lokakaflanum og tóku bæði
Heimi Karls og Daníel Ein-
ars úr umferð, en það hafði
ekkert að segja. Reynis-
menn tóku Arinbjörn úr
umferð mest allan síðari
hálfleik, en hann hélt sínum
mönnum nánast á floti og
var illstöðvandi. UMFN
náði að laga stöðuna áður
en flautað var til leikhlés,
en lokatölur urðu 27:24.
Öruggur sigur Reynis.
Sigur Reynis var mjög
sanngjarn. Þeir voru með
forystu allan leikinn og
léku oft á tíðum mjög góð-
an handbolta. Sókniragað-
ar og leikkerfi gengu mjög
vel upp. Vörnin var góð og
Eiður markvörður átti
góðan leik, varði 13 skot,
þar af 2 víti, bæði frá
Snorra Jóhannssyni. Lið
Reynis var jafnt, og allir
áttu góðan dag. Daníel
l-X-2 l-X-2
Fékk 12 rétta á hvítan seðil:
„Þetta var sko heppni í lagi“
„Jú, ég held að þetta sé frekar fátítt núna. Eftir að kerf-
isseðlarnir ruddu sér til rúms hafa seðlarnir að sama skapi
orðið erfiðari“, sagði Gísli Jón Gústafsson, 15 ára get-
raunaspekingur, sem hlaut 12 rétta nýlega, og það á ein-
falda röð á hvítum seðli.
„Vinningsupphæðin hljóðaði upp á 116.805 kr. ná-
kvæmlega. Ég fæ hana afhenta fljótlega. Kærufrestur er í
fimm vikur.
Kemur sér vel'? Jú, þetta kom á ágætum tíma og kemur
sér vel hjá námsmanni. Annars hef ég ekki hugsað út í það
hvernig ég ætla mér að eyða þessu".
Gísli Jón byrjaði að tippa í fyrra em byrjaði ekki af
krafti fyrr en í haust. „Ég er með einn hvítan í hverri viku.
Uppáhaldslið? Ha, ha, ég veit ekki hvort ég á að segja frá
því. Þeir eru nefnilega neðstir i 1. deild, en það er W.B.A.
En ég hætti þó ekki að halda með þeim fyrir það. Það eru
ekki alltaf jólin í þessu“, sagði Gísli Jón Gústafsson, 15
ára nemi í Fjölbraut.
Heildarspá Gísla:
Leikir 16. nóvember:
Aston Villa - Sheff. Wed. 2
Ipswich - Everton ...... 2
Luton - Coventry ....... 1
Man Utd. - Tottenham . 1
Newcastle - Chelsea .. X
South’pton - Birmingh. 1
West Ham - Watford .. 1
Grimsby - Portsmouth . 2
Leeds - Crystal Palace X
Middlesbro - Oldham .. 2
Sheff. Utd. - Blackburn 1
Stoke - Norwich ........ 1
Júlli með sex rétta
Árangur spekinga er á uppleið á nýjan leik. Júlíus Jóns-
son fékk sex rétta og var óheppinn að fá ekki sjö. - pket.
Daníel Einarsson reynir línusendingu. Njarðvíkingarnir Pétur og Karvel verjast. Heimir Morthens og
Arinbjörn fylgjast með.
geysi sterkur og ógnandi
í sókninni. Heimir Karls
stjórnar spili liðsins af
miklu öryggi og hefur náð
miklu út úr litlum mann-
skap. Nafni hans Morthens
átti mjög góðan leik.
„Gamla brýnið" stendur
svo sannarlega fyrir sínu og
var með 80% skotanýtingu
í leiknum. Siggarnir -
Guðnason og Sumarliða-
son, báðir mjög traustir, og
eins Kristinn Ármanns,
hreint frábær í vörninni.
Arinbjörn og Guðjón
voru bestir hjá UMFN og
skoruðu saman rúman
helming marka liðsins.
Snorri og Jón Magnússon
voru einnig þokkalegir. Lið
UMFN er mun yngra en
Reynis og reynsluminna,
sem sást berlega í þessum
leik. Sóknir stuttar og vörn
gloppótt. Oft var ég með á
tilfinningunni að þeir ætl-
uðu að skora 2-3 mörk í
sókn. Liðið hefur áaðskipa
mörgum mjög ungum og
efnilegum leikmönnum
sem eiga framtíðina fyrir
sér. Ef rétt er haldið á spil-
um á þetta lið eftir að vinna
marga sigra í framtíðinni.
Mörk Reynis: Heimir K.
6, Daníel 6, Heimir M. 5,
Sig. Guðna 3, Sigurður Óli
3, Kristinn 3 og Ólafur
Óskars 1.
Mörk UMFN: Ari 8,
Guðjón 5,' Jón Magg. 4,
Snorri 4, Ölafur Thord. 2,
Guðbjörn 1. - pket.
(----------------------
Daníel Einarsson,
Reyni:
„Höfum alla
burði til að
vinna
deildina“
„Þetta var góður sigur.
Leikkerfin gengu vel upp
og vörnin var ágæt. Við
vorum betri aðilinn í þess-
um leik en vorum klaufar
að hrista þá ekki af okkur.
Þeir náðu yfirleitt að
minnka muninn þegar við
vorum einum færri. En svo
V
stungum við þá af í seinni
hálfleik".
Nú hafið þið ekki enn
tapað leik. Hvað með fram-
haldið?
„Við förum norður um
næstu helgi og leikum við
Völsung og Þór, Akureyri.
Þórsarar eru mjög sterkir
og ef við vinnum báða Ieik-
ina stöndum við vel að
vígi“.
Gerir þú þér jafnvel vonir
um að vinna deildina?
„Já, við höfum alla
burði til þess“, sagði stór-
skytta Reynismanna,
Daníel Einarsson. - pket.
Karfa kvenna - ÍBK-KR 45:48
KR sigraði í hörkuleik
ÍBK lék gegn KR í 1.
deild kvenna í körfuknatt-
leik um sðustu helgi.
Leikurinn einkenndist
af mikilli baráttu og leik-
gleði, sem kom m.a. fram í
sterkum varnarleik. Það er
orðið langt síðan önnur eins
leikgleði hefur sést hjá ÍBK-
stelpunum. Þó að KR hafi
leitt mest allan leikinn voru
þær keflvísku aldrei langt
undan, enda skildu sjáldan
meira en 3-5 stig. Staðan í
hálíleik var síðan 18:17 KR
í vil.
Strax á fyrstu 4 mín.
seinni hálfleiks náðu KR-
stúlkurnar mjög góðu for-
skoti með því að skora 6 stig
án þess að Keflavík næði að
svara fyrir sig. Þær kefl-
vísku náðu síðan að jafna
leikinn, 45:45, þegar 3 mín.
voru til leiksloka. ÍBKfékk
þá góð færi á að komast
yfir, en klúðruðu í tvígang
mjög illa. Náði þá KR að
komast í hraðaupphlaup og
var brotið á einni þeirra
þegar hún var í skoti, hún
hitti úr skotinu og fékk eitt
aukaskot og hitti. Og þar
við sat, KR 48 - Keflavík 45.
Enn eitt naumt tapið.
Stig ÍBK: Guðlaug 25,
Björg H. 10, Fjóla 3.
Stig KR: Linda 14, Erna
10, Kristjana 10. - gjóh.
Það eru oft átök í kvennaboltanum. Björg Hafsteinsdóttir lætur sig
þó ekki muna um að gefa boltann, þó hún liggi kylliflöt.