Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 20
\fimn Fimmtudagur 14. nóvember 1985 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Hafnargötu 32, II. hæð. - Simi 4717 8. aðalfundur SSS haldinn í Höfnum um sl. helgi: Áki Gránz formaður Sl. föstudag og laugar- dag var haldinn aðalfund- ur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, i félags- heiminu í Höfnum. Fund- arstjóri var kosinn Ólafur í. | Hannesson, Njarðvík, og fundarritarar Sigrún G. | Jónsdóttir, Höfnum, og Helga Guðmundsdóttir, ritari SSS. Margir málaflokkar voru teknir fyrir og verða þeir tíundaðir hver fyrir sig í sértsökum fréttum í blað- inu. I næstu stjórn voru til- nefndir sem aðalmenn: Tómas Tómasson, Kefla- vík; Aki Granz, Njarðvík; Jón Gunnar Stefánsson, Grindavík; Jón Júlíusson, Sandgerði; Ellert Eiríks- son, Garði; Kristján B. Ein- arsson, Vogum og Þórar- arinn St. Sigurðsson, Höfn- um. Fráfarandir formaður var Þórarinn St. Sigurðs- son, en næsti formaður er Aki Granz. - epj. Frá aðalfundi SSS í Höfnum um síðustu helgi. „Sameinumst um að klæða krógann“ Mikil húnæðisvandkvæði hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja Mikil húsnæðisvand- kvæði eru nú við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Fer kennslan því fram á 8 stöðum víðs vegar um Kefla vík, en sjálft skólahúsið býður aðeins upp á 11 kennslustofur fyrir þá rúm- lega 1000 nemendur sem við skólann eru. Kom jretta fram í máli Hjálmars Arna- sonar skólameistara, á að- alfundi SSS á dögunum. Þar líkti hann skólanum við lítinn króga með eftir- farandi hætti: „Fyrir u.þ.b. 8 árum, þegar hann var 2ja ára gamall þá voru keypt á hann föt. Núna, 8-10 árum síðar, þá gengur króginn í sömu fötunum, þ.e.a.s. beltisstrengurinn rétt nær upp fyrir hné og skálm- arnar rétt aðeins niður fyrir hné, og það er ekki sjón að sjá barnið". Er þetta ekki fögur lýsing Hjálmar Arnason, skólameistari, flytur ræðu sína á aðalfundi SSS á barni okkar, Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Að lokum skoraði Hjálmar á sveitarstjórnar- menn að sameinast um að klæða barnið, þetta stolt okkar Suðurnesjamanna, og sjá um að það sé sæmi- lega til fara. - epj. Aðalfundur SSS: Ofagrar lýsingar á Hlévangi Sérfundur verður haldinn um rekstur Hlévangs og Garðvangs í almennum umræðum um málefni aldraðra á Suð- urnesjum, á aðalfundi SSS, urður all harðar umræður um málefni Elliheimilisins Hlévangs í Keflavík. Voru það þeir Jóhann Geirdal og Ólafur Björnsson sem stóðu að þessum umræð- um. Voru það ófagrar lýsing- ar sem sagðar voru um að- stöðuna á Hlévangi. Lauk umræðunum með því að felld var út úr drögum að ályktun um þessi mál setn- ing þar sem lýst var ánægju með samstarf það sem tekist hefur milli sveitarfé- laganna um þessi mál og hvatt var til áframhalds á því. Jafnframt var samþykkt tillaga um að halda sem fyrst fund um málefnum Hlévangs og Garðvangs. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar sam- hljóða: Fyrirsjáanleg aukin þörf á vistrými Aðatfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, haldinn í Höfnum 8. og 9. nóv. 1985, bendir á að með nýbygg- ingu við Garðvang, dvalar- heimili aldraðra í Garði, sem tekin var í notkun á þessu ári, var aðeins bætt úr brýnustu þörf, en enn er langur biðlisti aldraðs fólks, sem þarfnast vistunar. Sum sveitarfélögin hafa ennfremur byggt og stuðlað að byggingu leigu- og söluíbúða fyrir aldraða, auk þess sem þau hafa aukið þjón- ustu við þá aldraða, sem búa í eigin húsnæði, en betur má ef duga skal. Á næstu árum er fyrirsjáan- leg aukin þörf á vistunarrými fyrir aldraða á Suðurnesjum, sem verður að fullnægja. Áðal- fundurinn telur að þessari auknu þörf verði best og fljót- ast mætt með því að ljúka sem fyrst legudeild (D-álmu) við Sjúkrahús Keflavíkurlæknis- héraðs. Aðalfundurinn hvetur til þess að nú þegar verði út- Framh. á 15. síðu Spumingin: Hefur þú kynnt þér notkun slökkvitækja? Jón Kristinsson: ,,Já, ég er búinn að fara á mörg námskeið“. Oddný Leifsdóttir: „Já, og ég vona að ég kunni að bregðast við eldi“. Friðrik Þorbergsson: „Nei, og mér myndi bregða rosalega ef upp kæmi eldur“. Einar Stefánsson: „Já, ég er bæði með slökkvitæki á vinnustað og heima og hef kynnt mér notkun þeirra, þó ég hafi ekki farið á námskeið“.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.