Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 14.11.1985, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 14. nóvember 1985 VÍKUR-fréttir ORÐSENDING frá verkalýðsfélögunum, Hafnargötu 80 Skrifstofutími félaganna er: mánud.-fimmtud. kl. 9:00-17:00 föstudaga kl. 9:00-15:00 Sími 2085 Ath: Opnunartimi í símaskrá er ekki réttur. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur Fjölbrautaskóli Suðurnesja Stærðfræði__________ Stærðfræði fyrir grunnskólapróf. Undir- búningur fyrir samræmt próf í stærðfræði. Kennsla hefst 18. nóv. og lýkur 12. des. 1985, samtals 24 kennslustundir. Kennari: Gylfi Guðmundsson. Innritun gegn þátt- tökugjaldi kr. 2.400 á skrifstofu F.S. frá kl. 9-12. _Réttindanám vélstjóra_ verður haldið á vorönn 1986 ef næg þátt- taka fæst. Umsókn skal fylgja vottorð um minnst 24 mánaða siglingartíma sem vél- stjóri. Þátttökugjald kr. 2.900. Innritun á skrifstofu F.S. frá kl. 9-12 til 1. des. 1985. _____Bifvélavirkjar__________ Framhaldsnám í bóklegum greinum fyrir bifvélavirkja. Kennsla fer fram í Öldunga- deild. Innritun á skrifstofu F.S. frá kl. 9-12 til 15. des. 1985. _MálmiðnaðardeilcL Grunnnám málmiðngreina hefst á vorönn 1986 ef næg þátttakafæst. Kennslugreinar: Handavinna 20 st/v, suða 4 st/v auk 2 al- mennra áfanga. Innritun á skrifstofu F.S. frá kl. 9-12 til 15. des. 1985. ______Jólaföndur_________ Kennsla hefst þriðjudaginn 26. nóv. kl. 20. Innritun á skrifstofu F.S. Þátttökugjald kr. 1.000. _______Skattframtöl_____________ Kennsla í skattframtölum fyrir einstaklinga hefst um miðjan jan. '86. Innritun á skrif- stofu F.S. Þátttökugjald kr. 800. Aðstoðarskólameistari , Frá fyrstu tónleikum íslensku hljómsveitarinnar Islenska hljómsveitin: í Kenavíkurkirkju í okt. a. Tónleikar í Félagsbíói 20. nóv. n.k. - Bera yfirskriftina ,,Konur í íslensku tónlistarlífi“ Nú líður senn að öðrum tónleikum Islensku hljóm- sveitarinnar hér í Keflavík i vetur. Eins og áður hefur komið fram mun hljóm- sveitin halda alls 10 tón- leika og bera efnisskrárnar mismunandi yfirskriftir. „Konur í íslensku tónlistar- lífi“ er heiti þessara tón- leika og verða þar leikin verk eftir þrjár íslenskar konur, auk þess sem ein- leikari tónleikanna er kona. Það er Anna Guðný Guðmundsdóttir og mun hún leika píanókonsert í C- dúr eftir W. A. Mozart.Ein- söngvari á þessum tónleik- um verður Anders Josephs- son, bariton. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður Jean-Pierre Jacquillat, en hann er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Is- lands. Tónleikarnir verða í Fé- lagsbíói n.k. miðvikudags- kvöld 20. nóv. og hefjast kl. 20.30. Sala áskriftarkorta tók kipp eftir fyrstu tón- leikana, en þeir tókust mjög vel og voru áheyrend- r Arnað heilla Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Y-Njarðvík- urkirkju af sr. Þorvaldi Karli Helgasyni, Guðflnna Jónsdóttir og Eggert Snorrason. Heimili þeirra er að Fífumóa 6, Ytri- Njarðvík. ur mjög ánægðir. Enn geta menn keypt kort og þurfa þeir sem það vilja aðeins að hringja í síma 91-22035 og gefa upp nafn. Um greiðsl- ur á kortunum er hægt að semja og eru einu skilyrðin þau að kortin verði greidd fyrir vorið. Hljómsveitin vill með þessum tónleikum heiðra íslenskar konur í lok kvennaáratugarins og er skorað á konur að fjöl- menna á þessa tónleika þar sem kynsystur þeirra verða í sviðsljósinu, ýmist sem tónskáld eða hljóðfæra- leikarar. - kmár. Fjörugar fréttir! - Fjörheimalistinn - 1. White Wedding................... Billy Idol 2. Gambler............................ Madonna 3. Yesterday’s Man ................... Madness 4. Rock’n roll children .................. Dio 5. This is the night .............. Mezzoforte 6. Cheri cheri Lady ......... Modern Talking 7. Eatin Alive ................... Diana Ross 8. Pop Life .......................... Prince 9. Take on me......................... A - ha 10. Lean on me ....................... Red Box - Listinn gildir fyrir vikuna 10. -17. nóv. 1985 - Skrifstofustarf - Keflavík Lausar eru til umsóknartværstöðuráskrif- stofu embættisins í Keflavík. Laun samkvæmt launakerfi BSRB. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf óskast sendar undirrituð- um fyrir 1. desember n.k. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu 12. 11. 1985. Jón Eysteinsson (sign) STUDIO HEIMIS

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.