Víkurfréttir - 14.11.1985, Page 12
12 Fimmtudagur 14. nóvember 1985
VIKUR-fréttir
Skilafrestur auglýsinga er
til kl. 14 á þriðjudögum.
Greinar og fréttatilkynningar
skulu berast í síðasta lagi
á mánudögum.
muR
Sjóefnavinnslan hf.
Skrifstofa Sjóefnavinnslunnar hf. er flutt á
athafnasvæöi félagsins á Reykjanesi og
hefur skrifstofunni í Keflavík verið lokaö.
Símanúmer eru nú 92-6955 og 6956.
Bréf til fyrirtækisins sendist á eftirfarandi
heimilisfang:
SJÓEFNAVINNSLAN HF.
Pósthólf 222 - 230 Keflavík
Aðalfundur
Þingeyingafélags Suðurnesja veröur hald-
inn í Framsóknarhúsinu, sunnudaginn 17.
nóv. n.k. kl. 17. - Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, takiö með ykkur nýja félaga.
Stjórnin
ATVINNA
Óskum eftir starfskrafti til afleysinga við
dagvistunarheimilið Tjarnarsel í Keflavík.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. nóv. '85
til forstöðumanns í síma 2670.
Félagsmálastjóri Keflavíkurbæjar
Iðnsveinafélag
Suðurnesja
óskar að ráða starfsmann (karl eða konu)
til sérstaks tímabundins verkefnis á skrif-
stofu félagsins.
Um er að ræða hálft starf í nokkra mánuði.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu Iðnsveinafélags
Suðurnesja, merkt: Hlutastarf.
Sigurður Þorkelsson skrifar:
Að leggja orð í belg
í þremur tölublöðum
Víkur-frétta hefur Gylfi
Guðmundsson ritað mikið
um heildstæðan skóla og
talið þann kost bestan.
I skrifum þessum hefur
mér sýnst bera meira á
kappi en forsjá. Eg undir-
ritaður hef ekkert á móti
heildstæðu skólakerfi, ef
frambærileg rök mæla með
þvi að það henti betur.
Aður en lengra er haldið
vil ég mótmæla ummælum
Gylfa um hræðslu nemenda
í sjötta bekk Holtaskóla og
kvíða þeirra í fimmta bekk
Myllubakkaskóla vegna
skólaskipta sem misskiln-
ingi. Umsjónarkennarar
sjöttubekkinga kannast
ekki við þetta og á foreldra-
dögum undanfarinna ára
hefur það komið skýrt fram
hjá foreldrum, að nemend-
um líður vel og eru ánægð-
ir í skólanum. I viðtali við
Vilhjálm Ketilsson, skóla-
stjóra Myllubakkaskóla,
kannast hann ekki við
kvíða hjá nemendum
fimmta bekkjar, frekar
smávegis spenning og til-
hlökkun, sem er ósköp eðli-
legt. Annað heyrir til und-
antekninga.
Ef athugaðir eru skólar
annars staðar á landinu
kemur í ljós að margs kon-
ar fyrirkomulag er við lýði
og fer það eingöngu eftir
aðstæðum á hverjum stað. I
minni byggðarlögum hefur
aldrei verið nema einn skóli
á hverjum stað og oft á tíð-
um hafa nemendur elstu
bekkjanna farið í annan
stærri skóla síðustu ár
grunnskólans, vegna þess
að litlu skólarnir hafa ekki
aðstæður til að uppfylla þær
kröfur sem gerðar eru til
efsju bekkja grunnskólans.
I Reykjavík eru hverfa-
skólarnir nú eingöngu
byggðir heildstæðir, m.a.
vegna þess að það er gífur-
legur kostnaður að byggja
tvo skóla í sama hverfi. í
Garðabæ er nákvæmlega
sama skipting eins og hér.
A Seltjarnarnesi, í Mos-
fellssveit og sums staðar í
Reykjavík, t.d. í Melaskóla
og Hagaskóla, eru skólarn-
ir skiptir í eldri og yngri
bekki grunnskóla. A
Norðurlöndum er einnig
ýmis konar skipting og fer
það eingöngu eftir aðstæð-
um.
Allir þessir skólar eru
sérhannaðir fyrir efri eða
neðri bekki grunnskóla
alveg eins og Holtaskóli og
Myllubakkaskóli og ég hef
aldrei heyrt annað en að
þetta fyrirkomulag reynist
vel þar sem hægt er að
koma því við.
I heildstæðum skólum
verður að hólfa nemendur
niður innan skólans og
einnig á leiksvæði, vegna
þess að sex, sjö og átta ára
nemendur hafa ekkert sam-
eiginlegt með t.d. þrettán,
fjórtán og fímmtán ára
nemendum. Þau geta ekki.
notað sömu húsgögn, þau
geta ekki notað sömu út-
eða inngöngudyr ef frímín-
útur eru á sama tíma og
ýmislegt annað, vegna
stærðarmunar og mismun-
andi hegðunarmynsturs
þessara aldurshópa.
I flestum skólum veljast
kennarar til kennslu eftir
hæfileikum og áhuga. Al-
gengt er að fóstrur kenni
sex ára nemendum. Aðrir
kennarar sinna frum-
kennslu í lestri og skrift hjá
yngstu nemendunum og
enn aðrir fylgja bekknum
áfram þegar fleiri greinar
bætast við, og loks koma
sérgreinakennarar sem
kenna á efri stigum grunn-
skólans. Samvinna meðal
kennara er mjög mismun-
andi og fer það eftir kenn-
urunum sjálfum. Samvinna
er helst á milli þeirra sem
kenna sömu greinar eða
sama árgangi. Þetta er meg-
inregla við alla skóla, hvort
heldur þeir eru heildstæðir
eða ekki.
Það gefur auga leið að
kennari, sem kennir sama
bekknum ár eftir ár, hefur
mjög sterk einhliða áhrif á
bekkinn sem heild, auk
þess sem alls ekki er víst að
hann nái til allra einstakl-
inga í bekknum. Fyrir
suma einstaklinga getur
jafnvel verið nauðsynlegt
að skipta bæði um kennara
og umhverfi til þess að
njóta sín í námi og starfi.
Sú kennsluaðferð sem
hentar einum nemanda í
dag getur verið ómöguleg
eftir 3 ár þegar nemandinn
hefur þroskast og tileinkað
sér önnur vinnubrögð í
námstækni.
Sumir aðilar eru sífellt að
hamra á einhverjum skörp-
um skilum milli Myllu-
bakkaskóla og Holtaskóla.
Eg vil benda viðkomandi á
að lesa grein mína sem birt-
ist í Víkur-fréttum ekki alls
fyrir löngu undir fyrirsögn-
inni: SVAR TIL FOR-
ELDRIS. Ef fólk heldur
því samt fram, eftir lestur
þeirrar greinar, að skilin
séu óeðlilega skörp, þá er
eingöngu um þráhyggju að
ræða.
Með tveimur heildstæð-
um grunnskólum í Kefla-
vík geri ég mér alveg ljóst
að stjórnun sjöunda og átt-
unda bekkjar léttist veru-
lega og er það kostur, því
þessir árgangar eru að mínu
viti erfiðastir í öllu grunn-
skólakerfinu og kemur þar
margt til. Á þessum árum
eru nemendur að breytast
úr barni í ungling og síðar
meir í fullorðið fólk og á
sama tíma eru þau að verða
sjálfstæðir einstaklingar og
rífa sig frá foreldravaldinu
sem oft á tíðum getur verið
stormasamt. En á móti
kemur, að í Keflavík, sem
hefur fimm bekkjadeildir í
árgangi fara nú allir nem-
endur í gegnum sama
skólakerfi, allir nemendur
þekkjast og hver árgangur
speglar bæjarbraginn. Alls
staðar þar sem þeir koma,
koma þeir fram sem heild-
stæður hópur.
Með tveimur heildstæð-
um grunnskólum rofnar
þessi samstaða og þá munu
alast upp tveir hópar nem-
enda sem þekkjast varla,
eða hafa lítil samskipti
hvorir við aðra eins og t.d.
nemendur úr Njarðvík og
Keflavík, sem hafa mjög
lítil samskipti eftir að ungl-
ingar úr Njarðvík hættu að
sækja 9. bekk í Holtaskóla.
Húsnæði Holtaskóla er
mjög gott og er hann einn
af best búnu skólum lands-
ins hvað varðar aðstöðu
alla til kennslu á efri stigum
grunnskólans og er einn af
fáum skólum landsins sem
getur kennt allar náms-
greinar grunnskólans auk
þess sem hann býður nem-
endum sínum upp á fjöl-
breytilegt námsval í9. bekk
og ætti það að auðvelda
þeim frekara val í fram-
haldsskóla.
Fyrir nokkrum árum
komu nokkrir spekingar
fram með þá hugmynd að
byggja einn skóla fyrir alla
þá nemendur í Reykjanes-
umdæmi, sem einhverra
hluta vegna lentu í vand-
ræðum. Þessi hugmynd
náði svo mikilli lýðhylli að
hafist var handa um að
byggja Krísuvíkurskóla
sem einhverja allsherjar-
lausn. Þegar sá skóli var til-
búinn undir tréverk sáu
allir sem vildu sjá, að hug-
myndin var einhver sú vit-
lausasta sem komið hefur
fram um uppeldismál.
Enda hefur téður skóli
aldrei þjónað öðru hlut-
verki en að hýsa nokkur
svín um vetrartíma og
stendur síðan sem minnis-
varði um fádæma frum-
hlaup skólaspekinga.
Eg minnist á þetta hér
vegna þess að sú kerfis-
breyting sem til umræðu er
þarf virkilegrar athugunar
við, svo ekki sé hægt að
segja eftir á: Nei, þetta voru
mistök, hitt var betra.
Sigurður E. Þorkelsson,
skólastjóri Holtaskóla.
Hljómleikar
I kvöld, fimmtudaginn
11. nóv., mun hljómsveitin
OFRIS halda hljómleika í
Holtaskóla kl. 20. Miða-
verð er kr. 100.
(Frcttatilkynning)