Víkurfréttir - 14.11.1985, Síða 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 14. nóvember 1985 15
Aðalfundur SSS ályktar
um sjávarútvegsmál
Ályktun aðalfundar
Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum í Höfnum, 9.
nóvember 1985.
Enn, sem frá upphafi
byggðar á íslandi, er sjáv-
arútvegur meginundirstaða
byggðar á Suðurnesjum og í
nokkrum byggðum er
naumast um aðra atvinnu-
starfsemi að ræða.
Slök afkoma atvinnu-
greinarinnar ásamt póli-
tískri stýringu á fjármagni í
útgerð og fiskvinnslu hefur
valdið því, að íbúar á Suð-
urnesjum mega horfa á
flutning fiskiskipaflotans
til annarra landshluta í
þeim mæli, að afkomu-
brestur fjölda heimila blas-
ir nú við.
Hvetur fundurinn stjórn-
völd til að endurmeta af-
stöðu sína til sjávarútvegs-
mála og verði framhald á
pólitískri íhlutun, að minn-
ast þess þá, að enn bjóða
Suðurnes upp á hagstæð
rekstrarskilyrði og meiri
von um arðsemi í sjávarút-
vegi, en víða þar sem verið
er að byggja upp ný og efla
útgerðarsvæði á kostnað
heildarafla allra lands-
manna.
Sjómenn á Suðurnesjum
telja fullvíst að auka megi
rækjuafla Suðurnesja-
manna með aukinni leit, en
til þessa hefur Hafrann-
sóknarstofnun lítt sinnt
óskum þeirra. Urbætur á
þessu og frelsi smábáta og
þeirra sem stunda línuveið-
ar til veiða án skömmtunar,
yrði strax til bóta.
Fundurinn varar alvar-
lega við því ástandi, sem nú
blasir við í sjávarútvegi á
Suðurnesjum og hvetur til
þess að stjórnvöld endur-
skoði afstöðu sína tafar-
laust.
Samþ. með þorra at-
kvæða gegn 1.
Úttekt á sjávarútveg-
inum á Suðurnesjum
verði hraðað
I framhaldi af samþykkt
ályktunar um sjávarútvegs-
mál á Suðurnesjum, skorar
aðalfundur SSS á þing-
menn Reykjaneskjördæmis
að þeir í sameiningu ásamt
hagsmunaaðilum í sjávar-
útvegi og sveitarstjórnar-
mönnum hér á Suðurnesj-
um beiti sér fyrir því að
hraðað verði svo sem frek-
ast er kostur þeirri úttekt á
stöðu þessarar undirstöðu-
atvinnugreinar á Suður-
nesjum, sem þegar hefur
verið ákveðið að vinna, með
það í huga að róttæk endur-
uppbygging geti átt sér stað
á allra næstu árum og jafn-
framt að rekstrargrund-
völlur útgerðar og fisk-
vinnslu verði tryggður.
Stjórn SSS verði falið að
fylgja þessari áskorun fast
eftir.
Jón Norðfjörð (sign)
Jón H. Júlíusson (sign)
Ellert Eiríksson (sign)
Jens S. Guðbergsson (sign)
Eðvard Júlíusson (sign)
Olafur Björnsson (sign)
Þórarinn St. Sigurðss. (sign)
Ingólfur Bárðarson (sign)
Steinþór Júlíusson (sign)
Karl Njálsson (sign)
Kristinn Guðmundsson (sign)
Guðfinnur Sigurvinss. (sign)
Kristján Einarsson (sign)
Samþykkt samhljóða.
Suðurnesin bjóða upp á
marga möguleika
Aðalfundur Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesj-
um haldinn í Höfnum 8. og
9. nóv. 1985, vekur athygli
atvinnurekenda á hinum
miklu möguleikum sem
Suðurnes hafa upp á að
bjóða til margháttaðrar at-
vinnustarfsemi.
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum, sveitarfélög-
in á Suðurnesjum og Iðn-
þróunarfélag Suðurnesja,
bjóða aðstoð sína öllum
þeim sem áhuga hafa á að
kynna sér þessa margvís-
legu möguleika.
Samþykkt samhljóða.
epj.
ÓFAGRAR LÝSINGAR
Framh. af baksíðu
vcgað fjármagn til þeirrar
byggingar.
Sameiginlegur
fundur
Leggjum til að haldinn verði
sameiginlegur fundur þeirra
sveitarstjórna sem standa að
rekstri Hlévangs og Garð-
vagns það fyrsta.
Olafur Björnsson (sign)
Jóhann Geirdal (sign)
Elsa Kristjánsdóttir (sign)
Kristján Einarsson (sign)
epj.
muR
\(uWt
Vort vikulega brauð.
HVERN FIMMTUDAG
Til styrktar Þroskahjálp
Þessi þrjú ungmenni héldu nýlega hlutaveltu að Hólabraut 10 í
Keflavík, og varð ágóðinn kr. 1140, sem þau hafa afhent til Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum. Þau heita f.v.: Karen Hilmarsdóttir, Víðir
Guðmundsson og Elína Asa Einarsdóttir. - epj.
Til styrktar Dvalarheimilis aldraðra
Þessar ungu dömur, sem heita Dagbjört K. Bárðardóttir og Brynja
Magnúsdóttir, héldu hlutaveltu fyrir skömmu og gáfu þær ágóð-
ann sem var kr. 350, til Dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum.
Járniðnaðarmenn
Viljum ráða nokkra járniðnaðarmenn, raf-
suðumenn, verkamenn og nema. - Upplýs-
ingar hjá verkstjóra.
SKIPASMIÐJAN HÖRÐUR HF.
Fitjabraut 3-6 - 260 Njarðvík
Símar 92-3630, 3601
Lionsmenn,
Suðurnesjum
HERRAKVÖLD Lionsklúbbsins ÓÐINS
verður haldið á Glóðinni miðvikudaginn
20. nóv. og hefst kl. 18.30.
Fjórréttaður glæsilegur kvöldverður.
Ræðumaður kvöldsins:
Jón B. Hannibalsson
Tvísöngur
Ómar Ragnarsson skemmtir
Áhugamenn um Lion og aðrir gestir vel-
komnir. - Vinsamlega tilkynnið þátttöku í
síma 2577(lngi) virka daga, og 3715 um
helgina, fram til 18. nóv. - Miðaverð 1500 kr.
NOACK rafgeymar
Hleðslutæki, 6-12- 24 v.
Startkaplar
Frostlögur
Mótorolía - Olíusíur - Loftsíur
Varahlutadeiid - Sími 1730 (2 línur)
Suðurnesjabúar,
athugið!
Nú er rétti tíminn til að fá sér permanent
fyrir jólin. - Gefum 15% afslátt fram að
mánaðamótum. - Mikið úrval af Kerastase
hársnyrtivörum.
OPIÐ ALLA DAGA
frá kl. 9-6.
Laugardaga
frá kl. 10.
ÞEL-hárhús
Sími 3990