Víkurfréttir - 12.12.1985, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 12. desember 1985
VÍKUR-fréttir
Slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja:
Bílarými tvöfaldað
Athugun stendur yfir ð kaupum ð fullkominni
tækjabifreið f stað þeirrar sem nú er ðnýt
JÓLAKLIPPING
er nauðsynleg
Pantið tímanlega fyrir jólin.
HÖFUM MIKIÐ ÚRVAL AF
SFiampoo - Hármaska
Froðugeli og Glansskoli
frá KERASTASE OG JOICO |
Verið velkomin.
ccrf- á.cLCí oc) <cA/[arta
Þessa dagana er verið að
leggja lokahönd á fram-
kvæmdir við viðbyggingu
slökkvistöðvar Brunavarna
Suðurnesja í Keflavík.
Hefur bílarýmið verið
stækkað um helming og er
það því komið í upphaflega
mynd skv. teikningu, en
núverandi stöð var tekin í
notkun 1967.
I gamla hlutanum hafa
verið geymdar 6 bifreiðar
slökkviliðsins auk annars
sjúkrabílsins, sem þjónar
öllu Suðurnesjasvæðinu að
undanskyldri Grindavík.
Hinn bíllinn sem notaður er
fyrir sama svæði fær nú
einnig inni í nýju stöðinni.
Auk þess eru þar geymd
önnur tæki slökkviliðsins
og hefur því oft verið all
þröngt í bílageymslunni.
En Brunavarnir Suður-
nesja eru með fleiri járn í
eldinum þessa dagana. í
sumar heltist tækja- og;
mannabifreið liðsins úr
lestinni og hefur ekki verið
talið borga sig að gera viði
hana, enda um að ræða bif-
reið afárgerðinni 1961, sem
keypt var gömul til þessara
nota. Hefur því farið fram
athugun á kaupum á heppi-
legri bifreið til þessara
T'RES-
SALA
Kiwanisklúbbsins KEILIS
er hafin.
Kæru viöskiptavinlr! Athugið breyttan
sölustað, sem er nú ÁHALDAHÚS
KEFLAVÍKURBÆJAR VIÐ VESTURBRAUT-
Opið frá kl. 17-20 mánud.-fimmtud.
og frá kl. 14-22 föstud.-sunnud.
JÓLATRÉ - GRENI - KROSSAR
BORÐSKRAUT - JÓLAPAPPÍR
JÓLATRÉSFÆTUR
Kiwanisklúbburinn
KEILIR
nota. Hafa slökkviliðsstjóri
og varaslökkviliðsstjóri
lagt fyrir stjórn Bruna-
varna Suðurnesja bréf, þar
sem þeir leggja til að keypt
verði ný bifreið sem yrði
bæði slökkvi- og tækjabíll
og gæti tekið 9 manns í sæti.
Þessi bifreið yrði vel búin
tækjum sem nota mætti
bæði við eldsvoða eða
björgun t.d. úr umferðar-
óhappi. Yrði viðkomandi
bifreið ætíð fyrst á vettvang
og síðan kæmu önnur
björgunartæki eftir þörf-
um.
Hefur stjórn BS sam-
þykkt fyrir sitt leyti kaup á
slíkri bifreið, enda komi til
samþykki viðkomandi
sveitarstjórna. A.m.k. ein
sveitarstjórn, þ.e. Kefla-
víkurbær, hefur tekið er-
indið fyrir og var þar sam-
þykkt að vísa því til næstu
fjárhagsáætlunargerðar
sem ætti að liggja fyrir í
febrúar.
í síökkviliðinu eru í dag
30 menn, sem kallaðir eru
til ef útkall verður, en engar
vaktir eru á slökkvistöð-
inni, þar vinna þó 3 menn
alla virka daga frá kl. 8 til
17, er þar um að ræða
slökkviliðsstjóra og eld-
varnareftirlit auk daglegs
eftirlits með tækjakosti BS.
Slökkviliðsstjóri Bruna-
varna Suðurnesja er Ingi-
þór Geirsson en svæði
slökkviliðsins nær yfir 5
sveitarfélög af 7 á Suður-
nesjum þ.e. allra nema
Sandgerðis og Grindavík-
ur. Þessi tvö sveitarfélög
eru með sérslökkvilið hvort
fyrir sig.
epj-
Pítubær -
Nýr skyndibitastaður
Nýlega opnaði nýr
skyndibitastaður að
hafnargötu 37 í Keflavík og
ber hann heitið PÍTU-
BÆR. Eigendur eru Jónas
Snorrason, Jóhanna Bald-
vinsdóttir, Helgi Hanni-
balsson og Helga Sigurðar-
dóttir.
A boðstólum eru allar
tegundir af pítum eins og
þær gerast bestar. Einnig er
á boðstólum Taco, kjúkl-
ingar, kótelettur, franskar
og allt meðlæti sem því
fylgir. I framtíðinni er
áætlað að vera með fjöl-
breyttar fisktegundir,
aðeins meira en gengur og
gerist.
Opnunartími verður frá
kl. 11.30 til 24.00 til að
byrja með, og um helgar
verður heimsendingarþjón-
usta og verður matnum
keyrt út með leigubílum.
Þetta gildir líka fyrir aðra
almenna frídaga, en ekki á
virkum dögum til að byrja
með.
Staðurinn er mjög rúm-
góður og er góð aðstaða
fyrir bömin, þ.e. video og
sjónvarpsherbergi.
ghj-
Eigéndur Pítubæjar f.v.: Jónas, Jóhanna, Helga og Helgi.
Ljósm.: epj.