Víkurfréttir - 12.12.1985, Page 21
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 12. desember 1985 21
Spurningin:
Notar þú
ávísanahefti?
Sigurður Björgvinsson:
„Já, en ég nota það ekki
mikið, því ég á aldrei pen-
ing“.
Birgir Axelsson:
„Já, ég geri það og nota
það aðallega fyrir stærri út-
tektir, einnig fæ ég launin
inn á það“.
Aðalsteinn Jónatansson:
„Já, ég nota það og er
það þægilegt í notkun“.
Björn Kristinsson:
„Já, ég nota það tölu-
‘vert, því ég tel það eðlileg
viðskipti".
Reykjanesbrautin:
Eru leiðarar ekki til bóta?
Vegfarandi sem fer oft
um Reykjanesbrautina,
hefur óskað eftir því að
blaðið kæmi á framfæri
kvörtun, við Vegagerðina
yfir því að ekki skuli vera
komið fyrir járngrindum
meðfram brautinni t.d. við
Kúagerði. Víða er mjög
hátt ofan í gjótur við veg-
inn og hafa því orsakast
jafnvel banaslys er bílar
hafa lent út af veginum á
þessu svæði. Þá bendi sami
aðili á að þarna væri hiti í
jörðu og því myndaðist
ísing oft á þessum kafla, þó
hvergi annars staðar væri
hálka.
Af þessu tilefni hafði
blaðið samband við Eyvind
Runólfsson hjá Vegagerð
iríkisins. Hann sagði að
reynslan af þessum grind-
jum sem þeir nefna leiðara,
iværi þannig að nú væru þeir
óðum að fjarlægja þá, þar
sem þeir eru. Vildi safnast
að þeim snjór og því virkaði
þetta sem snjógrindur og
oft vildi skafa við þá. Væri
því nú verið að kanna hvort
lækka mætti leiðarana eða
jafnvel setja fláa á viðkom-
andi brautir, en allt væri
þetta enn í athugun.
Um hitann í jörðinni
sagði hann að þetta gæti
verið rétt en hér væri ekki
um neinn smákafla að
ræða, þar sem hiti væri
undir. Því hitinn væri á
a.m.k. eins til tveggja kíló-
metra kafla, sem brautin
lægi á.
epj.
HAFÐU KASKÓ
AÐ LEIÐARLJÓSI
Ckl
m
V
/
Öryggislykill
sparifjár-
eigenda
Vaxtavextlr reiknast fjórum
sinnum á ári.
Sparifé á KASKÚ er óbundið
og því alltaf hægt að losa fé
án fyrirvara.
Úbundinn relkningur, sem býður
bestu ávöxtun bankans.
• Vaxtauppbét þrátt fyrir eina
úttekt á hverju vaxtatímabili.
V€RZLUNRRBRNKINN
Vatntnesvegi 14 - Keflavik - Sími 1788
-vúuMfi <*teð þén,!