Fréttabréf - 01.09.1995, Side 6
Heimaverkefni — utan bókar
Til upphitunar fyrir landsfundinn fær textinn við Dóma heimsins, bar-
áttusöng Kvennalistakvenna, að fljóta hér með. Nú ættu allar að geta
rifjað hann upp áður en til fundarins kemur og þá getum við allar sungið
utanað, hárri raust.
Dómar heimsins
Dómar heimsins dóttir góð
munu reynast margvíslegir.
Glímdu sjálf við sannleikann
hvað sem hver segir.
Gakktu einatt eigin slóð
hálir eru hversmannsvegir.
Skeyttu ekki um boð né bann
hvað sem hver segir.
Inn í brjóst þitt ein og hljóð
rýndu fast ef röddin þegir.
Treystu á þinn innri mann
hvað sem hver segir.
(Jóhannes úr Kötlum)
Símanúmer, faxnúmer og netföng
Skrifstofa Kvcnnalistans: Áslaug, sími 551 3725,
fax 552 7560, netfang aslaug@centrum.is
Þingflokkur Kvennalistans:
Guðný, sími 563 0703, netfang gudny@althingi.is
Krisu'n Á., sími 563 0710, nctfang kra@althingi.is
Krisún H., sími 563 0702, netfang krh@althingi.is
Stcfanía framkvæmdastýra, sími 563 0705,
fax 563 0740, netfang stefania@althingi.is
Vcra: Sonja og Vala, sfmi 552 2188, fax 552 7560.