Morgunblaðið - 15.10.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 5. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 242. tölublað 103. árgangur
SÝNDAR-
VERULEIKI ER
RAUNVERULEIKI HJARTAÐ SETT Á BORÐIÐ
FRAKKINN VILL
FISKINN YFIR
KÆLIBORÐIÐ
KK SEGIR SÖGU GÍTARA SINNA 30 VIÐSKIPTAMOGGINNALDIN DYNAMICS 10
Tölvuþrjótar Taka gögn í gíslingu.
Dæmi eru um að brotist sé inn í
tölvur fólks hér á landi og gögn
þeirra hlekkjuð á stað þar sem eng-
in leið er að nálgast þau. Tölvu-
þrjótarnir krefja svo eiganda tölv-
unnar um lausnargjald og sé það
greitt verði gögnin gerð aðgengi-
leg á ný.
„Einungis um þriðjungur þeirra
sem greiða gjaldið fær aðgang að
gögnunum aftur,“ segir Friðrik
Skúlason tölvufræðingur sem tekur
fram að þessar árásir séu ekki al-
gengar á Íslandi. „Við erum ekki
nógu góður markhópur því við er-
um svo fá. Svarar ekki kostnaði að
eltast við okkur,“ bætir hann við.
Ómögulegt sé að verja sig fylli-
lega fyrir árásum af þessu tagi en
mikilvægt sé þó að hafa öryggis-
búnað í tölvunni Gæta verði einnig
að því að smella ekki á grunsam-
lega hluti eða opna undarlegan
tölvupóst. Í öllu falli eigi fólk alltaf
að eiga til afrit af þeim gögnum
sem það vill ekki missa.
laufey@mbl.is » 6
Íslendingar
ekki góður
markhópur
Skert þjónusta
» Kennsla skerðist í Háskóla
Íslands og framhaldsskólum.
» Vínbúðir verða lokaðar en
opið verður á laugardag.
» Lágmarksafgreiðsla verður
á heilsugæslustöðvum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verkföll félagsmanna SFR og
Sjúkraliðafélags Íslands sem hófust í
nótt hafa áhrif á þjónustu tæplega 160
ríkisstofnana. Mikil áhrif verða á
starfsemi Landspítalans.
Verkfall sjúkraliða hefur mest
áhrif á Landspítala og fleiri heilbrigð-
isstofnunum. Verkfall SFR verður til
þess að ekki er hægt að hafa fjöl-
margar stofnanir opnar almenningi
þar sem það nær til starfsfólks við af-
greiðslu, símavörslu og húsvörslu. Af-
greiðslur sýsluskrifstofa verða lokað-
ar sem og Tryggingastofnunar,
Sjúkratrygginga og Samgöngustofu,
svo dæmi séu tekin. Tafir geta orðið á
skoðun vegabréfa í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar vegna flugs til Bandaríkj-
anna og Bretlands. Icelandair hefur
varað farþega sína við þessu og tekið
fram að beðið verði eftir farþegum.
Verkföllin eru ýmist tímabundin
eða ótímabundin. Fyrsta verkfallið
stendur í tvo sólarhringa og lýkur
annað kvöld. Það næsta er á mánudag
og þriðjudag. Þau ná til allra félags-
manna SFR og Sjúkraliðafélagsins
sem ekki eru á undanþágu. Auk þess
er hafið ótímabundið verkfall SFR á
Landspítala, hjá Ríkisskattstjóra,
Tollstjóra og sýslumannsembættum.
Víðtæk áhrif verkfalla
Mikil áhrif af verkföllum sjúkraliða og SFR á Landspítala Afgreiðslur
ríkisstofnana ekki opnaðar Tafir geta orðið á flugi vegna vegabréfaskoðunar
MVerkföll hafin hjá ríkinu »2
Sú stutta fylgdist vel með mannlífinu í Austurstræti með snuðið sér til halds og trausts og vita-
skuld hlýjan móðurfaðminn. Það er eins gott að vera vel dúðaður, því haustið minnir á tilvist sína,
og helst í regnfatnaði því spáð er áframhaldandi rigningu eða súld á vestanverðu landinu.
Fylgst með mannlífi í Austurstræti
Morgunblaðið/Eggert
Eins gott að vera vel dúðaður því haustið minnir á sig
Verði nýtt
frumvarp
heilbrigðis-
ráðherra um
staðgöngumæðr-
un í velferð-
arskyni að lögum
verður Ísland
fyrst Norðurlandanna til að leyfa
staðgöngumæðrun. Refsivert verð-
ur að leita eftir staðgöngumæðrun
erlendis, sem ekki uppfyllir skilyrði
frumvarpsins.
Í frumvarpinu eru settar ýmsar
reglur og t.d. getur hver kona að
hámarki fengið þrisvar sinnum
leyfi til staðgöngumæðrunar. »18
Má vera staðgöngu-
móðir þrisvar sinnum
Arion banki hefur staðfest að forsvarsmenn hans
höfðu ekki fulla yfirsýn yfir það hvaða fjárfestar stóðu
að baki kaupum á 5% hlut bankans í Símanum í ágúst
síðastliðnum. Hluturinn var seldur á 33% lægra verði
en bankinn fékk í útboði í liðinni viku.
Meðal skýringa sem gefnar voru stjórnarmönnum í
Símanum þegar kaupin voru kynnt þeim var að með
sölunni væri verið að tryggja aðkomu erlendra fjár-
festa og aðila með sérþekkingu á fjarskiptamarkaði.
Síðar hefur komið í ljós að hlutur sem skráður var á
nafn Sigurbjörns Þorkelssonar, fjárfestis sem hefur í
áratugi starfað á fjármálamörkuðum erlendis, var
einnig keyptur af viðskiptafélögum hans, Árna Hauks-
syni og Hallbirni Karlssyni. Nöfn þeirra tveggja munu
ekki hafa komið fram þegar fjárfestahópurinn var
ræddur innan stjórnar og spurningar hafa vaknað um
hvernig aðkoma þeirra muni styrkja félagið með þeim
hætti sem ætlunin var með sölunni til fjárfestahópsins.
Ólga er meðal stjórnarmanna í Símanum vegna
framkvæmdar útboðsins og sölu bankans á 10% hlut
sínum í aðdraganda þess. »ViðskiptaMogginn
Vissi ekki
hverjir stóðu
að kaupunum
Bresk hernaðaryfirvöld og íslensk
stjórnvöld gerðu með sér leyni-
samkomulag um að farþegar
strandferðaskipsins Esju á heim-
leið frá Petsamo í Norður-
Finnlandi skyldu koma til rann-
sóknar í breskri höfn áður en
skipið færi til Íslands. Tilgang-
urinn var að finna hugsanlega út-
sendara Þjóðverja meðal farþega.
Þetta segir dr. Þór Whitehead
sagnfræðingur, sem kannað hefur
skjöl um hina sögufrægu
Petsamoför haustið 1940.
Í dag eru liðin 75 ár frá því skipið kom til Íslands
úr siglingunni. Um borð voru auk áhafnar 258 Ís-
lendingar. Þrír farþeganna voru handteknir og
fluttir til Bretlands, en síðan sleppt. Bretarnir vissu
hins vegar ekki að einn farþeganna sem fór óáreitt-
ur frá borði í Reykjavík, Gunnar Guðmundsson frí-
merkjakaupmaður (1917-2010), var njósnari þýska
hersins. Hann fór síðan aftur til Þýskalands. »14-15
Njósnari um
borð í Esju
75 ár frá Petsamoförinni
Hættuför Sigurður
Haraldsson var
meðal farþega.
„Ég held að við
þurfum að beita
dálítið grimmum
aðgerðum til að
jafna okkar hlut,“
sagði Gylfi Arn-
björnsson, forseti
ASÍ, m.a. við setn-
ingu þings Starfs-
greinasambands-
ins í gær. Fram
kom í máli hans að komin væri upp
ný, óvænt og alvarleg staða á vinnu-
markaði vegna launahækkana hjá
hinu opinbera umfram launaþróun á
almennum vinnumarkaði og eftir að
upp úr slitnaði í viðræðum um nýtt
vinnumarkaðslíkan. »4
Ný, óvænt og alvarleg
staða á vinnumarkaði
Gylfi Arnbjörnsson