Morgunblaðið - 26.10.2015, Page 4

Morgunblaðið - 26.10.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Netverð á mann frá kr. 69.900 á Ayre Sevilla m.v. 2 í herbergi. Sevilla 6. nóvember í 3 nætur 2fyrir1 tilboð á flugsæti með gistingu Frá kr.69.900 m/morgunmat 44.950 Flugsætifrá kr. Morgunblaðið/Kristinn Hlíðarendi Framkvæmdir eru hafnar við norðurenda flugbrautar sem ligg- ur til norðausturs og suðvesturs, neyðarbrautarinnar svonefndu. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Samgöngustofa hefur fengið beiðni frá ÞG verktökum um að mega hefja framkvæmdir við byggingu íbúðar- húsnæðis nærri norðurenda svokall- aðrar neyðarbrautar Reykjavíkur- flugvallar. „Já, við höfum sent inn fyrirspurn til Samgöngustofu um að fá að reisa byggingarkrana á Hlíðarendasvæð- inu sem er alveg við flugvöllinn og krefst því sérstaks leyfis,“ segir Þor- valdur Gissurarson, eigandi ÞG verktaka, en að hans sögn gætu framkvæmdir á svæðinu tekið um tvö ár. Spurður um mögulega lokun neyð- arbrautarinnar segist hann ekki get- að svarað til um það. „Ég get ekki svarað fyrir það enda komum við inn á svæðið með útgefin byggingarleyfi á lóð sem er deili- skipulögð af Reykjavíkurborg. Þetta er eins og hvert annað verk nema hvað við þurfum sérstakt leyfi frá Samgöngustofu vegna nálægðar við flugvallarsvæðið.“ Brautinni lokað á meðan Guðni Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Isavia, sem sér um rekstur Reykjavíkurflugvallar, segir það liggja ljóst fyrir að rísi byggingar- kranar í flugstefnu neyðarbrautar- innar alveg við flugvöllinn verði að beina flugi á aðrar brautir. „Það eru fá tilvik þar sem lent er á brautinni en hins vegar er þessi braut opin og meðan hún er það verður að athuga vel hvort hlutir skagi upp í aðflugslínu hennar,“ seg- ir Guðni. Lokar krani flugbraut?  Sótt um leyfi fyrir byggingarkrana við Reykjavíkurflugvöll SVIÐSLJÓS Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Mörg mál ungra sjálfstæðismanna fengu brautargengi á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem lauk í gær. Kveður við nokkuð frjálslynd- an tón í þeim ályktunum sem sam- þykktar voru á fundinum. Þannig var t.a.m. ályktað um afglæpavæð- ingu neysluskammta á fíkniefnum og að litið yrði á fíkn sem heilsu- farsvanda í stað þess að það væri á herðum dómskerfisins. Þá var ályktað að færa ætti áfengiskaupa- aldur niður í 18 ár og kosningarétt í 16 ár. Vikið var að ýmsum málefnum heilbrigðisþjónustunnar þar sem m.a. var ályktað að leyfa ætti blóð- gjöf óháð kynhneigð, líknardráp með aðstoð fagaðila og staðgöngu- mæðrun sem afleiðingu réttar kvenna til að ráða yfir eigin líkama. Þá er lagt til að Ríkisútvarpið ohf. verði lagt niður í núverandi mynd og þörfin fyrir ríkisfjölmiðil verði endurskilgreind. Flugvöllur áfram í Vatnsmýri Úr fjárlaganefnd var samþykkt tillaga um að leita leiða við upptöku annarrar myntar en krónu. „Íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef Íslendingar vilja eiga þess kost að taka átt í alþjóð- legri samkeppni. Kanna skal til þrautar upptöku myntar sem gjald- geng er í alþjóðaviðskiptum í stað íslensku krónunnar og gefa lands- mönnum og fyrirtækjum frelsi til að ákveða hvaða gjaldmiðill hentar þeim best,“ segir í ályktuninni. Þá kom fram að stefnt skyldi að aðskilnaði ríkis og kirkju „með far- sæld þjóðkirkjunnar og þjóðarinnar að leiðarljósi,“ eins og það er orðað í ályktuninni. Þá var ályktað að Reykjavíkurflugvöllur ætti að vera áfram í Vatnsmýrinni. Byggður á frelsisgildum Mál manna tengdra Sjálfstæðis- flokknum sem Morgunblaðið ræddi við var á þann veg að nokkur áherslubreyting fylgdi ályktunun- um þar sem frjálslyndari sjónarmið fengju meira væri en oft áður á landsfundum. „Stefna flokksins er frjálslynd og hún snýst um frelsi einstaklingsins. Mér finnst eins og flokkurinn sé að leggja meiri áherslu á og muna þau gildi sem hann er byggður á,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem kosin var í embætti ritara flokksins á landsfundinum. Bjarni Benedikts- son var endurkjörinn formaður flokksins og Ólöf Nordal varð vara- formaður á ný. Nokkrar ályktanir tengdar sölu ríkiseigna fengu samþykki á lands- fundi. Þannig taldi meirihluti kjör- fulltrúa að flokkurinn ætti að beita sér fyrir því að selja eignarhlut rík- isins í fjármálafyrirtækjum, rekst- ur flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og annan verslunarrekstur Isavia. Ákvæði um þjóðaratkvæði Úr stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd fengust samþykktar ályktan- ir um að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að beita sér fyrir tilteknum breyt- ingum á stjórnarskrá. „Í stjórnarskránni ætti að vera ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðsl- ur, þannig að tiltekið hlutfall at- kvæðisbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök lagafrumvörp, að undan- skildum fjárlögum, skattalögum og lögum settum á grundvelli þjóðrétt- arlegra skuldbindinga,“ segir í ályktuninni. Þá segir að endurskoða þurfi hlutverk og stöðu forseta Ís- lands og setja embættinu skýrt hlutverk og valdmörk. RÚV verði lagt niður  Frjálslyndar ályktanir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins  Afglæpavæðing neysluskammta  Aðskilnaður ríkis og kirkju  Blóðgjöf óháð kynhneigð Landsfundur » Á fundinum var m.a. ályktað um mikilvægi þess að endur- skoða skattlagningu fjár- magnstekna, þar með talin skattlagning leigutekna. Er lagt til að fjármagns- tekjuskattur verði lækkaður í 10%. » Lagt var til að leggja niður heiðurslaun listamanna. » Lagt er til að Landsdómur verði lagður niður. Morgunblaðið/Eva Björk Varaformaður Ólöf Nordal fór á flug í ræðustóli þegar hún fagnaði kjöri sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kosning Landsfundarfulltrúar skila atkvæðum sínum í kjörkassana. „Ég er mjög þakklát fyrir stuðninginn sem ég fékk. Ég held að með komu minni breikki for- ystan því ég er ekki í þing- flokknum og hef þar af leiðandi kannski aðra sýn á kjósendur flokks- en þeir sem eru á þingi. Samhliða hefur maður færi á því að vera meira gagnrýnin og að aðstoða flokkinn við að fylgja réttri braut,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, nýr ritari flokksins. „Unga fólkið hefur mælt fyrir frelsi og frjálslyndi og fjöldinn allur af málum sem hafa það að leið- arljósi komst í gegn á fundinum. Flokkurinn er að fylkja sér á bakvið unga fólkið og gera stefnu sína enn frjálslyndari en áður. Það er verið að hlusta á unga fólkið enda var ekkert annað í stöðunni fyrir flokkinn. Hon- um voru í raun settir afarkostir, ann- að hvort hlustaði hann á unga fólkið, eða að við gætum snúið okkur að einhverju öðru,“ segir Áslaug. Breikkar forystu flokksins  Fylkir sér á bakvið unga fólkið Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ólöf Nordal var að vonum kampa- kát eftir fundinn þar sem hún var á ný kjörin varafor- maður Sjálfstæð- isflokksins. Hún segir það augljóst að hnykkt hafi verið á frjáls- lyndum málefnum í stefnu flokksins. „Við vorum klárlega að setja áhersl- una þangað. Þetta er tónn sem við þekkjum vel í flokknum en er að sama skapi ástæða til að leggja áherslu á. Frjálslynd viðhorf og hug- myndauðgi fannst mér einkenna þennan fund,“ segir Ólöf. Að mati hennar voru fundargestir uppfullir af bjartsýni og gleði. „Ég deili öllum viðhorfum sem snúa að frelsi einstaklingsins. Ég gladdist mjög mikið yfir því hvernig slík viðhorf fengu gott svigrúm á fundinum,“ segir Ólöf. Ánægð með frelsið Ólöf Nordal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.