Morgunblaðið - 26.10.2015, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015
Árið 1991 gaf Sið-
fræðistofnun HÍ út
bókina Siðareglur eftir
Sigurð Kristinsson.
Sigurður er doktor í
heimspeki frá Cornell-
háskóla í Bandaríkj-
unum og prófessor við
hug- og félagsvís-
indasvið Háskólans á
Akureyri. Sigurður
skrifar:
„Siðferðileg sannindi eru hvers-
dagsleg sannindi. Það vita allir að
það er rangt að svíkja fólk og van-
virða, ljúga, pretta, blekkja og
stela, en rétt að vera heiðarlegur,
hjálpfús og góðgjarn. Efiðleik-
aranir skapast þegar kemur að því
að túlka ólíkar aðstæður í ljósi
þessara almennu sanninda. Þá
finna menn stundum flóttaleiðir til
að friða eigin samvisku og annarra.
Grátbroslegt dæmi um þetta er sá
fyrirsláttur að fólk geti verið und-
anþegið siðferðilegri ábyrgð á með-
an það sinni störfum sínum.“
„Vel lýgur sá
er með vitnum lýgur“
Fyrir tíu árum kærði Lækna-
félag Íslands mig til siðanefndar
vegna greinar sem ég hafði skrifað í
Læknablaðið. Samtímis ákvað
Læknafélagið að svið-
setja bráðabirgðarit-
nefnd til að ritskoða
greinina. Í Kastljósi 2.
nóvember og Morg-
unblaðinu 3. nóvember
2005 hótaði Kári Stef-
ánsson að kæra
Læknafélagið færi það
ekki að kröfum hans.
Það hét að bráða-
birgðaritnefndin hefði
eina viku til að svara
nokkrum spurningum.
Yrðu svörin jákvæð
var þess óskað að nefndin ritskoð-
aði greinina og semdi afsökunar-
beiðni til Kára sem formenn lækna-
félaganna myndu undirrita.
Nefndarstarfið var eitt símtal! Á
síðasta degi hringdu nefndarmenn-
irnir í vin. Landlæknir beið á lín-
unni með sönnunina sem öðrum
hafði yfirsézt í marga mánuði.
Greininni var breytt „tafarlaust og
varanlega“. Réttarheimildin var
sótt til Vancouver í Kanada. Afsök-
unarbeiðni var send. Allt var þetta
gert í skjóli myrkurs. Hinn 29. nóv-
ember 2005 rak Læknafélagið
vammlausan ritstjóra Lækna-
blaðsins vegna greinar minnar.
Formaður Læknafélagsins sendi
frá sér alþjóðlega yfirlýsingu hinn
1. desember 2005 um greinina og
viðbrögð félagsins við henni. Þar
var því sleppt að félagið hefði kært
mig til siðanefndar. Verjandi minn
fjallaði í ítarlegri greinargerð til
siðanefndar um ráðabrugg Lækna-
félagsins: Kæru Læknafélagsins,
bráðabirgðaritnefndina, vitnisburð
Sigurðar Guðmundssonar land-
læknis og afsökunarbeiðnina.
Læknafélagið braut stjórnarskrá
og eigin lög. Siðanefndinni bar að
sjálfsögðu að vísa málinu frá.
Sannleikurinn á það til
að koma í ljós
Siðanefnd svaf á málinu í nokkur
ár. Í október 2007 birti nýr ritstjóri
Læknablaðsins langt viðtal við for-
mann Læknafélagsins:
„Ég bað stjórnarmenn að líta á
greinina með tilliti til codex en
ræddi engin efnisatriði hennar og
tók jafnframt fram að þetta væru
mín einu og síðustu afskipti af
greininni þar sem höfundur hennar
væri samstarfsmaður minn á sama
vinnustað. Auðvitað kom ég síðar
að málinu með því að þurfa sem for-
maður að fylgjast með því að siða-
nefnd læknafélagsins fjallaði um
málið og það færi rétt í gegnum
þann farveg.“ … „Hins vegar eru
atriði í greininni sem ég tel vera
brot á siðareglum en það er grein-
arhöfundurinn sem fremur þau
brot.“ (Lbl. 10. tbl 93. árg. 2007,
Sigurbjörn Sveinsson.)
Siðanefnd hafði enn ekki fjallað
um kærumál Læknafélagsins gegn
mér. Fyrir tveimur árum var ég að
skoða úrskurð siðanefndar. Ég
hafði á sínum tíma ýtt honum til
hliðar sem auvirðilegum geðþótta-
dómi. Ég sá nú að ekki var allt með
felldu. Siðanefnd hafði falsað grein-
argerð lögmanns míns. Hvern gat
grunað slík ósköp? Ég var dolfall-
inn. Ég lét Læknafélag Íslands vita
af þessu með bréfi 29. september
2013. Læknafélagið stakk málinu
undir stól. Hér eru nokkur dæmi
um vinnubrögð siðanefndar.
Í úrskurði siðanefndar hinn 7.
desember 2007 segir:
„Stjórn Læknafélags Íslands hef-
ur ekki látið mál þetta til sín taka
að öðru leyti en því að óska álits
Siðanefndar á því hvort Jóhann
Tómasson hafi gerst brotlegur
gegn siðareglum lækna með ein-
hverjum af ummælum sínum um
Kára Stefánsson lækni í fyrrnefndri
grein í Læknablaðinu.“
Þetta er fjarstæða. Ósannindin
blasa við lesendum.
Siðanefnd klippti greinargerð
verjanda míns í tætlur. Á einum
stað var heil blaðsíða numin brott
og í henni var m.a. Sigurður Guð-
mundsson landlæknir og yfirlýsing
hans. Svo illa vildi til að í næstu
málsgrein í úrskurði siðanefndar
segir:
„Landlæknir Sigurður Guð-
mundsson hafi vitað eða átt að vita
að það lækningaleyfi sem hann vitni
til í yfirlýsingunni og hafði verið
gefið út 10. júní 1977.“
Hvað er Sigurður Guðmundsson
ókynntur að gera þarna? Með
hvaða yfirlýsingu? Eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum.
Þá segir í úrskurðinum:
„Með þessu vottorði virðist Sig-
urður Guðmundsson, læknir, hafa
stuðlað að þeirri trú stjórnar
Læknafélags Íslands og fleiri.“
Hverjir eru þessir fleiri?
Ofangreind setning er óspjölluð
svona: „Með þessu vottorði virðist
Sigurður Guðmundsson, læknir,
hafa stuðlað að þeirri trú stjórnar
Læknafélags Íslands og bráða-
birgðaritnefndarinnar.“
Um bráðabirgðaritnefndina (ad
hoc ritnefndina) má lesa á vefnum:
Læknablaðið 12. tbl. 91. árg. 2005.
Hafi ég farið rangt með í grein
þessari mun ég leiðrétta það
umsvifalaust. Sjálfur.
Ósannindi og falsanir siðanefndar lækna
Eftir Jóhann
Tómasson » Grátbroslegt dæmi
um þetta er sá fyrir-
sláttur að fólk geti verið
undanþegið siðferðilegri
ábyrgð á meðan það
sinni störfum sínum.
Jóhann Tómasson
Höfundur er læknir.
Vandinn um þessar
mundir birtist í yf-
irburðum tækninnar.
Fyrir meira en öld
voru vísindin í miklum
ham við að finna lög-
mál náttúrunnar. Ár-
angur í þeirri viðleitni
var mikill og nauðsyn-
leg lyftistöng fyrir
tæknina, allt frá dögum
Newtons. Hins vegar
get ég ekki séð að umtalsverð fram-
för hafi orðið í skilningi okkar á
hreyfingu efnisins síðastliðna heila
öld. Snemma á tuttugustu öldinni
voru komin nokkuð ítarleg lögmál um
hreyfingu efnisins. Þar átti efnið að
samastanda af þremur gerðum
öreinda, sem hver um sig hafði sinn
massa og hleðslu, þ.e. jákvæðri (rót-
eind), neikvæðri (rafeind) og núll-
hleðslu (nifteind). Mestur hluti rúms-
ins væri án efnis, sem er að hluta
skýringin á getu öreindanna til að
vera á mikilli hreyfingu. Lögmál nátt-
úrunnar byggðust þá á því að öreind-
irnar framleiddu kraftsvið, rafsvið
með hleðslunni og þyngdarsvið með
massanum og þessi kraftsvið
þvinguðu fram hreyfingu efnisins
(öreindanna). Hreyfingin ásamt
hleðslunni skapaði þátt þriðja krafts-
viðsins, þ.e. segulsviðs, en þar er
komin aðferð til að forða áreksri og
viðhalda jafnvægi hreyfingar á tak-
mörkupu svæði (frumeindir og sam-
eindir). Með hreyfijöfnu Newtons á
þessu almenna formi, stærðfræðilega
nákvæmum lögmálum rafsegulsviðs-
ins og að vísu ekki eins nákvæmum
lögmálum þyngdarsviðsins, voru
komnar stærðfræðilegar jöfnur sem
áttu að geta reiknað út framtíðina að
næstu fortíð þekktri (sem er að vísu
lítil von að verði). Vand-
inn er að lausnir hafa
ekki fundist á þessu
kerfi. Ekki hefur tekist
að reikna út segulsvið
og hreyfingu öreind-
anna tveggja sem
mynda frumeind vetn-
isins, hvað þá fyrir
flóknari frumeindir með
fleiri róteindir en eina.
Ástæðan er einfaldlega
sú að stærðfræðilegu
jöfnurnar eru af þeirri
gerð að ekki er til nein
almenn aðferð til að leysa þær. Það er
því ekki nema von að eðlisfræðingar
hafi ekki fundið nákvæmar lausnir og
að þeir hafi þá reynt að skapa nýjar
kenningar með jöfnum sem hægt er
að leysa. Mér sýnist hins vegar fátt
benda til að þessar nýju kenningar
leysi þann vanda sem þarf. Málið er
að breytileg staðsetning efnisins með
tímanum, þ.e. hreyfing þess, er und-
irstaða allra atburða og skynjunar
okkar á náttúrunni, hvort heldur með
sjón, heyrn eða tilfinningu.
Menn hafa lengi glímt við að skilja
tillífgun gróðursins, þegar plönturnar
búa til lífræn efni sín með orku frá
sólarljósinu, þ.e. með því að nota raf-
segulsviðið frá sólinni. Þessi lífrænu
efni eru síðan undirstaðan í fram-
leiðslu grasbítanna (og svo rándýra) á
sínum lífrænu efnum, en orkuna fá
þeir með því að nota súrefni til
brennslu og skila koltvísýringi til
baka út í andrúmsloftið, sem plönt-
urnar nota svo og skila súrefninu.
Þessi hringrás er uppistaðan í jafn-
vægi lífsins. Vonlaust er að finna
hvernig þetta gerist nema með því að
reikna segulsvið og hreyfingu öreind-
anna. Mörgum finnst líklegt að þetta
ætti að vera hægt að reikna nú á
tölvuöldinni. Þótt tölvan sé orðin
mjög hraðvirk og geti safnað fljótt
miklum upplýsingum, þá gerir hún
bara það sem henni er sagt og ef hún
fær gallaðar aðferðir til að nota, þá
gerir hún vitleysur.
Eitt merkasta framlag eðlisfræð-
innar er orkuhugtakið og þá sér-
staklega innihald sérhvers svæðis í
rúminu á rafsegulorku og hreyfiorku
(allra öreinda í svæðinu). Heildar-
orkan varðveitist, þ.e. breytist ekki
nema vegna inn- eða útgeislunar,
meðan engin öreind yfirgefur svæðið.
Hins vegar getur rafsegulorka breyst
í hreyfiorku og öfugt. Þetta er stærð-
fræðileg afleiðing hreyfilögmálanna,
að vísu með kröfu um varðveislu
massans. Þá er horft framhjá hugs-
anlegum áhrifum þyngdarsviðsins.
Mælingar eðlisfræðinga á geislun eru
orðnar glæsilegar, en með þeim
mælist einungis breyting á rafseg-
ulorku svæðis. Óljóst er hve mikla
orku hver frumeind, kjarni eða
öreind getur innihaldið og geymt við
gefnar aðstæður, þótt mælingar gefi
til kynna frá hvers konar efni geisl-
unin kemur og hvar í röð orkuþrepa
efnið er statt. Minnsta orkuþrep rót-
eindar er kyrrstaðan. Róteindin er
ekki til í því myrka ástandi hér á jörð-
inni vegna áhrifa sólar. Hins vegar
getur róteindin komist í mun hærra
orkuástand með snúningi um eigin ás
(í gegnum massamiðjuna). Slíkt
snúningsástand getur verið myrkt,
þ.e. engin geislun, og því erfitt rann-
sóknarefni. Að taka orku frá sólinni
(það mætti gera með framleiðslu raf-
magns) og safna henni í snúnings-
orku róteinda, eða aðra kjarnaorku,
sýnist vera eina leiðin til að geyma
orku í stórum stíl. Geymsla með efna-
fræðilegum aðferðum nær til miklu
minna orkumagns.
Það þarf að ráða hóp stærðfræð-
inga með rétta menntun til að ráðast
á hreyfijöfnurnar og fá hugmyndir
um lausn sem duga. Byrja þarf á
skoðun jafnvægis en ekki á geislun
vegna mikils ójafnvægis eins og mik-
ið hefur verið reynt. Túlkun geislunar
er ekki sjálfgefin.
Innri vandi vísindanna
Eftir Halldór I.
Elíasson
Halldór I. Elíasson
»Mestur hluti rúmsins
væri án efnis, sem er
að hluta skýringin á
getu öreindanna til að
vera á mikilli hreyfingu.
Höfundur er stærðfræðingur.
Ævar og Jón H. fóru
á kostum í tvímenningi
á Suðurnesjum
Ævar Jónasson og Jón H.
Gíslason stimpluðu sig inn í
vetrarstarfið sl. miðvikudag í
eins kvölds tvímenningi með
64,3% skor. Enginn komst með
tærnar það sem þeir höfðu hæl-
ana. Sigurjón Ingibjörnsson og
Oddur Hannesson voru með
54,8% og Gunnlaugur Sævars-
son og Arnór Ragnarsson með
53,6%.
Nk. miðvikudag tekur við al-
varlegri dagskrá en þá skal
hefja þriggja kvölda hausttví-
menning. Spilamennska hefst kl.
19 eða þar um bil.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Sumir menn verða
stórir af menntun
sinni og verkum en
sumir ekki. Sumir
verða litlir menn
vegna starfa sinna og
verða jafnvel gjald-
þrota og missa ær-
una, ef illa gengur.
Sumir menn verða
stórir af að reka fyr-
irtæki með tapi árum
saman og verða æ
stærri eftir því sem tapið er meira
og árangurinn ósýnilegri, nema í
stórbyggingum yfir starfsemi sína
og glæsibyggingum utan um einka-
líf sitt.
Sumir menn eru svo litlir, að þeir
geta ekki greitt skuldir sínar. Sum-
ir menn eru svo stórir, að þeir
þurfa ekki að greiða skuldir, sem
þeir hafa stofnað til, en til slíkra
skulda er oft stofnað til að sýna,
hve stórir þeir eru.
Sumir menn eru svo litlir, að þeir
greiða þær skuldir, sem þeir hafa
stofnað til, án þess að vera dæmdir
til þess. Sumir menn eru svo stórir,
að séu þeir dæmdir til að greiða
skuldir, sem þeir hafa
stofnað til, eru slíkir
dómar rangir. Sumir
eru svo stórir, að þeir
geta sannað með
greinaskrifum í blöð,
að þeir, sem dæma
þeim í óhag, eru í
besta falli óhæfir til
slíkra verka og jafnvel
skítmenni í þokkabót.
Hugleiðingar þessar
urðu til við lestur
greinar í Fréttablaðinu
23. október sl. eftir
einn af stóru mönnunum í okkar
þjóðfélagi og vísindasamfélagi al-
heimsins. Mér varð dálítið órótt.
Ég dró fram litla bók, sem heitir
Lífsgleði á tréfæti og fór að lesa.
Þá varð mér rórra.
Stórir menn og litlir
Eftir Axel
Kristjánsson
Axel
Kristjánsson
» Sumir menn eru svo
litlir, að þeir greiða
þær skuldir, sem þeir
hafa stofnað til, án þess
að vera dæmdir til þess.
Höfundur er lögmaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.