Morgunblaðið - 26.10.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.10.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ísinni fyrstu bók, Casino Ro-yale, frá 1953 skrifaði skap-ari James Bond, bresksleyniþjónustumanns 007, um „hinn sæta keim nauðgunar“. Hann var enn við sama heygarðshornið 1962 í The Spy Who Loved Me þar sem hann komst svo að orði að allar konur elskuðu „hálfgerða nauðgun. Þær elski að vera teknar.“ Og árið eftir skrifar hann í On Her Maj- esty’s Secret Service „Í undirvit- undinni hlýtur hún að hafa þráð að sér væri nauðgað. Jæja, hún fann mig... og henni var nauðgað ... af mér.“ Í bíómyndunum um James Bond ber ekki alveg eins mikið á slíkum karlrembutilburðum til orðs og æðis og í bókunum. Á yfirborð- inu er líf njósnara hennar hátignar tiltölulega einfalt; hann drepur nokkra skúrka, stundar kynlíf með mörgum, fögrum konum og bjargar svo heiminum. Áhorfendur eru þó farnir að setja upp kynjagleraugun því ýmislegt sem Fleming skrifaði um samskipti Bonds við konur fell- ur hreint ekki í kramið hjá öllum og bíómyndirnar eru vissulega ekki lausar við karlrembuleg viðhorf, þótt þar birtist þau kannski ekki með jafn groddalegum hætti. Meira að segja Daniel Craig, sem leikur Bond í fjórða sinn í Spectre er nóg boðið. „Bond er karlremba. Það er alveg ljóst. Hann á við vandamál að Kynjakreppa njósn- ara hennar hátignar Karlremba og kvenfyrirlitning í sögum Ian Flemings um James Bond skín víða í gegn og þætti efalítið óboðleg nú á dögum. Bíómyndirnar eftir sögunum eru á lág- stemmdari nótum hvað þetta varðar, þótt líf njósnara hennar hátignar snúist mikið um að rekkja hjá mörgum fögrum konum, milli þess sem hann drepur skúrka og bjargar heiminum. Nýjasta Bond-myndin, Spectre, er frumsýnd í Lond- on í dag og á Íslandi föstudaginn 6. nóvember. AFP Fyrsta Bond-stúlkan Ursula Andress er Bond-stúlkan holdi klædd, en hún lék á móti Sean Connery í fyrstu Bond-myndinni, Dr. No, árið 1962. Bond-bíllinn Í Spectre ekur njósnarinn Aston Martin DB10. Sex í sporum James Bonds Nr. Titill Ár Leikari Leikstjóri 1 Dr. No 1962 Sean Connery Terence Young 2 From Russia with Love 1963 Sean Connery Terence Young 3 Goldfinger 1964 Sean Connery Guy Hamilton 4 Thunderball 1965 Sean Connery Terence Young 5 You Only Live Twice 1967 Sean Connery Lewis Gilbert 6 On Her Majesty’s Secret Service 1969 George Lazenby Peter R. Hunt 7 Diamonds Are Forever 1971 Sean Connery Guy Hamilton 8 Live and Let Die 1973 Roger Moore Guy Hamilton 9 The Man with the Golden Gun 1974 Roger Moore Guy Hamilton 10 The SpyWho Loved Me 1977 Roger Moore Lewis Gilbert 11 Moonraker 1979 Roger Moore Lewis Gilbert 12 For Your Eyes Only 1981 Roger Moore John Glen 13 Octopussy 1983 Roger Moore John Glen 14 AView to a Kill 1985 Roger Moore John Glen 15 The Living Daylights 1987 Timothy Dalton John Glen 16 Licence to Kill 1989 Timothy Dalton John Glen 17 GoldenEye 1995 Pierce Brosnan Martin Campbell 18 Tomorrow Never Dies 1997 Pierce Brosnan Roger Spottiswoode 19 TheWorld Is Not Enough 1999 Pierce Brosnan Michael Apted 20 Die Another Day 2002 Pierce Brosnan Lee Tamahori 21 Casino Royale 2006 Daniel Craig Martin Campbell 22 Quantum of Solace 2008 Daniel Craig Marc Forster 23 Skyfall 2012 Daniel Craig Sam Mendes 24 Spectre 2015 Daniel Craig Sam Mendes AFP Glæsileg Hin ítalska Monica Bellucci, 51 árs, leikur ekkju launmorðingja, sem James Bond kemur fyrir kattarnef í nýjustu myndinni Spectre. „Hugleiðingar um viðhorf Íslendinga til dauðans fyrir kristnitöku. Dauðinn og sviðslist dauðans í heiðni,“ nefn- ist fyrirlestur sem Terry Gunnell, pró- fessor í þjóðfræði við Háskóla Ís- lands, heldur í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins kl. 12 á morgun, þriðjudag 27. október. Terry tengir fyrirlestur sinn sýn- ingunni Bláklædda konan sem nú stendur í safninu en hann veltir upp spurningunni hvert bláklædda konan hafi farið eftir dauða sinn sem og hvert Íslendingar töldu sig fara eftir dauðann. Einnig fjallar hann um hug- myndir og viðhorf Íslendinga til dauðans fyrir kristnitöku og hug- myndir þeirra um Hel og Valhöll, at- hafnir í tengslum við greftrun í heiðnum sið en kenningar eru uppi sem benda til þess að táknrænir helgisiðir hafi verið settir á svið fyrir áhorfendur. Fyrirlesturinn er öllum opinn með- an húsrúm leyfir. Vefsíðan www.thjodminjasafn.is Beinagrind Þessi beinagrind er til sýnis á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Sviðslist dauðans í heiðni Elísa Hildur Þórðardóttir og Selma Hafsteinsdóttir sem skipa hljóm- sveitina Bergmál ætla að flytja frumsamda tónlist á Café Rosen- berg kl. 21-22.30 í kvöld, 26. októ- ber. Þær stöllur leggja áherslu á fyndna texta og eru umfjöllunarefni þeirra á stundum býsna óvanaleg. Tónlist þeirra á ekkert skylt við ör- bylgjupopp heldur er best lýst sem þjóðlagaskotnu grínpoppi. Von er á góðri skemmtun ef marka má fa- cebook-síðu hljómsveitarinnar því þar er henni lýst sem samsuðu af skemmtilegheitum. Endilega … … hlýðið á Bergmál Bergmál Elísa Hildur og Selma. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili. Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450 zenus@zenus.is • zenus.is Augljós kostur 5 ára ábyrgð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.