Fréttabréf - 01.12.1996, Side 4

Fréttabréf - 01.12.1996, Side 4
hver skuli vera réttur heimavinnandi foreldra til fæðingarorlofs. Farið var með fæðingarorlofsumræðuna inn í hópa og samþykkti landsfundur ályktun um fæðingarorlof. Ákveðið var að stofna vinnuhóp sem héldi áfram að útfæra hugmyndir um fæðingarorlof. Menntamál Krisu'n Karlsdóttir hóf umræðuna með inngangsorðum þar sem hún talaði m.a. um réttindi til náms og það hvort skólinn veitir stelpum og strákum sambærilegan undirbúning. Hún setti fram ýmsar spumingar, t.d. hvort skólinn sé tæki til að breyta eða hvort hann viðhaldi viðteknum skoðunum. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ ræddi um flutning grunnskólans frá ríki yfir til sveitarfélaga og jafnrétti til náms. Hann benti á nokkra áhættuþætti varðandi fluminginn, s.s. fjölgun skólaskrifstofa án þess að tryggt sé að þær hafí fjárhagslegt bolmagn til að standa undir sér. Einnig telur Eiríkur það áhyggjuefni að vegna sjálfsforræðisréttar sveitarfélaga hafi menntamálaráðherra ekki lengur vald til að grípa inní ef illa fer og fylgja eftir kvörtunum eða kærum sem til hans berast. Eiríkur ræddi einnig nokkuð um það hvemig slíkur flutningur hefur reynst í Noregi, Finnlandi og í Danmörku. Þeirri spumingu hvort skólamál séu að verða kvennamál svaraði Eiríur játandi. Hins vegar lýsti hann sig mótfallinn því að nota aðgerðir eins og að borga körlum fyrir að fara í kennaranám til að fjölga körlum í kennarastétt. Rétta leiðin til að gera kennarastarfið eftirsóknarvert sé að bæta kjörin. Einnig nefndi Eiríkur að fjöldi í bekkjardeildum er eitt af þeim starfsskilyrðum kennara sem miklu máli skiptir og að jafnrétti til náms felst m.a í því að eiga aðgang að kennara sínum. Til þess að það sé mögulegt þarf að tryggja skólanum meira fjármagn. Gerður Óskarsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík talaði um framtíðarsýn í grunnskólamálum. Hún ræddi um það takmark að vinnudagur 6-15 ára nemenda verði samfelldur. Hún sér fyrir sér að skóladagurinn yrði þá brotinn upp þannig að skiptist á venjulegur skólau'mi og tómstundarstarf, s.s. tónlistarkennsla, íþróttir eða dans. Gerður sagðist gjaman vilja sjá að bætt yrði við verklegt nám og listnám. Guðný Guðbjömsdóttir ræddi um menntakerfi í fjársvelti og áframhaldandi niðurskurð í menntakerfinu. Guðný lagði áherslu á að konur láti til sín taka í skólamálum. Við fluming grunnskólans færist stjóm skólanna nær konum og þær ættu að nýta sér það til að hafa áhrif. Einnig talaði hún um mikilvægi þess að konur dragist ekki aftur úr í tölvu- og upplýsingabyltingunni. Guðný hvatti auk þess konur til að fylgjast vel með 4

x

Fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.