Fréttabréf - 01.12.1996, Side 11

Fréttabréf - 01.12.1996, Side 11
Jafnréttisþing Jafhréttisráð boðaði til Jafnréttisþings 25. október á Grand hótel. Þar var m.a. rætt um viðhorf íslendinga til jafnréttis kynjanna, framkvæmdaáætlun um málefni kvenna frá kvennaráðstefnunni í Peking og rammasamning ESB um foreldraorlof. í lok Þingsins var dagskrárliður um kynímyndir sem tekinn var saman af samtökum námsmanna og ungliðahreyfingum stjóm- málaflokka. Starfskonur Kvennalista og Verukonur vom með sameiginlegan kynningarbás á Þinginu. Opinber heimsókn til Reykjanesbæjar Þingkonur og framkvæmdastýra brugðu undir sig betri fætinum einn góðan dag í síðasta mánuði og fóru í opinbera heimsókn til Reykjanesbæjar, sem reyndar hafði lengi staðið til. Við vörðum drjúgum tíma í Fjölbrautaskóla Suðumesja og kynntumst þar m.a. metnaðarfullum áformum skólayfirvalda í hvers kyns þróunarstarfi, ekki síst á sviði endur- og símenntunar. Þetta er stór skóli og gott til þess að vita, að um hann er góð sátt og samstarf á Suðumesjum. Við áttum fundi með bæjarstjóra og starfsmönnum bæjarins, fræddumst um það, hvemig sameining Hafna, Njarðvíkur og Keflavíkur hefur gengið fyrir sig og kynntum okkur, hvemig unnið er að félagslegri aðstoð og þróun atvinnumála á svæðinu. Við heimsóttum Bakkavör, fiskvinnslufyrirtæki, sem er nýflutt úr Kópavogi í Reykjanesbæ og ætlar sér stóra hluti í útflutningi, einkum hrogna. Þar ríkir metnaður og mikil áhersla á vöruvöndun og gæði. Við litum inn hjá Björgu, þar sem seldar em hannyrðir kvenna af öllu mögulegu tagi. Og við heimsóttum Kaffitár, lítið, en öflugt og sívaxandi fyrirtæki kvenna undir stjóm Aðalheiðar Héðinsdóttur. Kaffiilmurinn leikur enn um nasir okkar, enda fengum við pakka af Suðumesjakaffi í nesti og höfum því getað rifjað upp skemmtilega heimsókn á degi hverjum. Loks hittum við Kvennalistakonur á Flugkaffi og fræddumst af þeim um daglegt líf og pólin'kina á Suðumesjum. Við þykjumst hafa gert góða ferð þennan dag, þótt ekki kæmumst við á alla þá staði, sem við hefðum viljað. Það er alltaf hressileg tilbreyting frá þingstörfunum að bregða sér bæjarleið, og það hyggjumst við gera oftar líkt og í fyrra. Ekki síst viljum við hitta Kvennalistakonur á hverjum stað og biðjum ykkur endilega að hafa samband, ef eitthvað er á döfinni. Kristín Halldórsdóttir 11

x

Fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.