Fréttabréf - 01.12.1996, Qupperneq 6

Fréttabréf - 01.12.1996, Qupperneq 6
okkar mál og önnur mál, Kvennalistinn þyrfti að Iáta öll mál til sín taka. Sjöfn Kristjánsdóttir talaði um að hægt væri að stofna málefnahópa til að styðja þingkonumar. Einnig var rætt um sameiningu jafnaðarmanna og hvort þaö væri vilji til sameiningar eða samvinnu við aðra flokka. Kristín Halldórsdóttir sagði að ekki kæmi til greina að ganga í Alþýðuflokkinn og fleiri konur tóku undir það. Hins vegar sagði hún það vel inni í myndinni að halda sameiginlega þingflokksfundi um einstök mál og skoða hvort nánari samvinna við aðra væri æskileg. Konur voru almennt sammála um að skoða þyrfti allar leiðir í þessu samhengi. Jóna Valgerður talaði um að módel Reykjavíkurlistans höfðaði til margra Kvennalistakvenna en ekki væri Ijóst á þessari stundu hvemig yrði boðið fram í næstu kosningum. Kvennalistinn var stofnaður til að koma ákveðnum hlutum til skila í íslensku þjóðlífi og skoða þarf allar leiðir til að það megi takast. Anna Ólafsdóttir Bjömsson sleit landsfundi kl. 16.30 á sunnudeginum og kl. 17.00 var haldið með bát frá Viðey. Yfirlýsing 14. iandsfundar Samtaka um kvennalista A 14. landsfundi Kvennalistans beinum við sjónum að möguleikum kvenna til áhrifa í nokkmm þeim málum sem næst okkur standa og þeim árangri sem þegar hefur náðst. Á þessu ári em liðin 20 ár frá því að Jafnréttislög voru sett, sem kveða á um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, en staðan sýnir að hægt hefur miðað í því að ná markmiðum laganna. Oft á tíðum hafa þau verið orðin tóm. Kvennalistinn hefur komið mörgu til leiðar á Alþingi þótt ekki hafi orðið af þátttöku í ríkisstjóm. Hins vegar hafa kvenfrelsiskonur komist til valda í nokkrum sveitarstjómum og fengið þar tækifæri til þess að breyta orðum í athafnir. Þær hafa sýnt það og sannað að það er pólitískur vilji sem skiptir máli. Nærtækustu dæmin höfum við af vettvangi borgarstjómar Reykjavíkur þar sem orðin ein em ekki látin duga. Þar er leikskóla- og grunnskólamálum sinnt af ríkulegum metnaði. Þar eru í undirbúningi aðgerðir til þess að taka á launamisrétti kynjanna. Þar er jafnréttismálum gert hátt undir höfði og um þessar mundir verið að hrinda af stað athyglisverðri tilraun með fæðingarorlof feðra. Þá hefur konum markvisst verið fjölgað í stjómunarstöðum, og það án þess að ýta til hliðar hæfum körlum. Þetta sýnir að pólitískur vilji er forsenda þess að orðum sé breytt í athafnir í sveitarstjómum og við stjóm landsins. 6

x

Fréttabréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.