Fréttabréf - 01.12.1996, Blaðsíða 8

Fréttabréf - 01.12.1996, Blaðsíða 8
Á undanförnum árum hefur heilbrigðiskerfið sœtt þrengingum og niðurskurði sem bitnar á þeim sem síst skyldi. Framu'ðin mun kalla á aukna og breytta velferðarþjónustu vegna aukinnar tœkni, þjóðfélagsbreytinga og mikillar fjölgunar öryrkja og eldri borgara. Lengra verður ekki gengið í niðurskurði, heldur ber að breyta áherslum og forgangsröð í samfélaginu. Þar þurfa konur að koma að verki með þekkingu sína og reynslu. Vandanum hefur hingað til verið velt yfir á starfsfólk og stjómendur heilbrigðisstofnana, svo og heimilin. öllum þeim sem huga að framtíðinni má vera ljóst að lykillinn að góðri og öruggri framtíð byggist á góðri menntun sem tekur mið af aðstœðum og viðhorfum beggja kynja. Menntakerfið hefur verið sársvelt um árabil og nú þarf að snúa vöm í sókn. Við þurfum að stórefla almenna menntun og starfsmenntun og veita til þess nauðsynlegu fjármagni svo að við verðum betur búin undir samfélag sem tekur sífelldum breytingum. Þegar þjóðfélag okkar er nú loks að rétta úr kútnum eftir margra ára samdrátt og erfiðleika kemur œ betur í ljós hve gœðunum er misskipt milli landsins bama. Nýsköpun og þróun einkennir höfuðborgarsvœðið, en þar er einnig að finna vaxandi fátœkt meðal íbúanna. Landflótti og erfiðleikar setja mark sitt á stóran hluta landsbyggðarinnar. Tilraunir til að snúa þessari þróun við með svokallaðri byggðastefnu hafa mistekist. Orsakanna er að leita í tœkni- breytingum og samdrœtti bœði í landbúnaði og sjávarútvegi, án þess að brugðist hafi verið við. Breytingar á veiðum, breytt tœkni og fiskveiðistjómunarkerfið em að koma landvinnslunni í þrot en þar er vinna þúsunda kvenna í húfi. Það er umhugsunarefhi hve konur hafa ótrúlega lítil áhrif á sjávarútvegsmál hér á landi. Aðeins örfáar konur er að finna í röðum útgerðarmanna og kvótaeigenda, hvað þá að þœr stundi sjósókn. í Noregi eru í gangi markvissar aðgerðir til að jafna stöðu kynjanna í sjávarútvegi og slíkt þarf einnig að gerast hér. Yfirráðin yfir helstu auðiind þjóðarinnar, fiskinum í sjónum, em að fœrast á œ fœrri hendur með kaupum og sölum án þess að eigendumir, þjóðin sjálf fái að njóta þess sem skyldi. Sú þróun misbýður réttlœtiskennd þjóðarinnar og er að valda hér djúpstœðum þjóðfélagsbreytingum. Kvennalistinn ítrekar tillögur sínar um byggðakvóta og telur brýnt að endurskoða fiskveiðilöggjöfina. 8

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.