Fréttabréf - 01.12.1996, Qupperneq 10

Fréttabréf - 01.12.1996, Qupperneq 10
uppruna eða búsetu. Auka þarf áherslu á jafnréttisffæðslu í námskrá og námsefni og koma á námskeiðum fyrir kennara. Mikilvægt er að í öllu skólastarfí ríki skilningur á ólíkum þörfum stúlkna og drengja. Menntakerfið þarf að vera sveigjanlegt og ýta undir sköpun og nýja hugsun, það þarf að vera þess megnugt að taka nýja tækni í þjónustu sína og undirbúa nemendur, stelpur jafnt og stráka til fullrar þátttöku í þekkingarsköpun í upplýsingaþjóðfélagi. Hún er ein af undirstöðum sjálfstæðis okkar og leið til nýrra atvinnumöguleika. Kvennalistinn vill brýna stelpur sérstaklega til virkrar þátttöku og frumkvæðis á öllum sviðum tækni og vísinda. í ljósi þess að um 70% ungs atvinnulauss fólks hefur aðeins grunnskólamenntun er mikilvægt að koma á fót fjölbreyttum starfsnámstilboðum sem veita aukin atvinnutækifæri. Koma þarf á starfsnámsbrautum í framhaldsskólum sem höfða til stúlkna. Tryggja þarf að atvinnulífið viðurkenni starfs- og verknám til réttinda á vinnumarkaði. Skólinn á bæði að stuðla að námi og þróun þekkingar og sinna því mikilvæga hlutverki að undirbúa nemendur sína til að verða jafngildir þegnar í þjóðfélagi sem konur móta jafnt og karlar. Ályktun 14. landsfundar Kvennalistans um fæðingarorlof. Landsfundur Kvennalistans í Viðeyjarstofu 2-3 nóvember 1996 vill uppstokkun á lögum um fæðingarorlof. Stofnaður verði fæðingarorlof- ssjóður sem tryggi öllum launþegum full laun í fæðingarorlofi. Allir atvinnurekendur greiði ákveðið hlutfall af heildarlaunum í sjóðinn. Kvennalistinn vill að fæðingarorlof verði lengt úr 6 í 12 mánuði og af því verði feðrum tryggður a.m.k. 3 mánaða sjálfstæður réttur. Landsfundurinn samþykkir að skipa vinnuhóp sem skili af sér tillögum í formi lagafruvarps sem verði lagt fyrir Alþingi á þessu þingi. Vinnuhópurinn byggi á þeim hugmyndum um breytingar á fæðingarorlofi sem ræddar voru á fundinum. Vinnuhópur um fæðingarorlof Konur sem áhuga hafa á að vera í vinnuhópi um fæðingarorlof eru beðnar um að hafa samband við Sigrúnu Erlu á skrifstofunni. 10

x

Fréttabréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.