Morgunblaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 1
heima eigin vél af gerðinni Piper X-
large Cub.
Curtis-Jenny eru einhverjar
frægustu flugvélar heims. Þær
voru notaðar í fyrri heimsstyrjöld-
inni og þeim flugu kappar eins og
Charles Lindbergh og Amelia Ear-
hart þegar þau lærðu til flugs.
„Mér þykir mjög gaman að hafa
látið verða af þessu. Ég var búinn
að hugsa um þetta í mörg ár,“ sagði
Dagfinnur í samtali við Morgun-
blaðið. Hann er ern og hress og fer
sjálfur allra sinna ferða, gangandi,
akandi eða fljúgandi. »6
Morgunblaðið/RAX
Flug Dagfinnur hefur flogið í 70 ár.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Dagfinnur Stefánsson flugstjóri
hélt upp á 90 ára afmæli sitt, sem
er á morgun, með því að ferðast
fyrr í vikunni 3.000 mílur vestur til
Bowling Green í Kentucky í Banda-
ríkjunum til að fljúga þar um það
bil hundrað ára gamalli opinni tví-
þekju af gerðinni Curtis-Jenny.
Þetta hafði verið draumur hans um
langt árabil. Dagfinnur, sem á að
baki rúmlega 31 þúsund flugtíma
og 70 ára feril, flýgur enn hér
Flaug Curtis-Jenny níræður
Dagfinnur Stefánsson flýgur enn 90 ára á morgun
L A U G A R D A G U R 2 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 274. tölublað 103. árgangur
ALLTAF GAMAN
OG ALLTAF PARTÍ
Í KARNIVALÍU
ÁHRIF FRÁ 9.
ÁRATUGNUM Í
HÁRTÍSKUNNI
ALLT Í TÍSKU 10BARNABÓKAPLATA 55
Teikning/Björn Skaptason/Atelier arkitektar
Kársnesið Þessi fjölbýlishús eru á
svæði sem er enn á hugmyndastigi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, bindur vonir við að í
byrjun næsta áratugar, eða eftir
fimm til sex ár, verði búið að
byggja samtals 900 íbúðir á tveim-
ur uppbyggingarsvæðum á Kárs-
nesinu. Uppbygging á fyrra svæð-
inu er þegar hafin en það síðara er
á hugmyndastigi.
Miðað við að söluverð hverrar
íbúðar sé 35 milljónir að meðaltali,
sem er hóflegt mat, er heildar-
söluverð íbúðanna 900 um það bil
31,5 milljarðar króna.
Ármann segir nýja brú yfir Foss-
voginn munu tengja nýju svæðin
við miðborg Reykjavíkur. Nú séu
hugmyndir um að strætisvagnar
geti ekið yfir brúna og þannig tengt
bæjarfélögin tvö. »16
Undirbúa byggingu
samtals 900 íbúða á
Kársnesi í Kópavogi
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Þrír reyndir lögreglumenn sem starf-
að hafa við löggæslu á höfuðborgar-
svæðinu frá því á níunda áratugnum
segja í viðtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins að lögregla á höfuð-
borgarsvæðinu sé löngu komin yfir
þolmörk. Staðan sé þannig að lög-
regla ráði ekki við ástandið á álags-
tímum, til þess sé hún of fáliðuð.
„Við látum þetta ganga en erum
löngu komin yfir þolmörk. Það er hart
að þurfa að forgangsraða verkefnum,
svo ekki sé talað um neyðarútköllum,
en það kemur reglulega fyrir,“ segir í
viðtalinu.
Árið 1984 voru íbúar höfuðborgar-
svæðisins 130.722. Á mesta álags-
punkti vikunnar, laugardagskvöldi og
aðfaranótt sunnudags, telst þremenn-
ingunum til að rúmlega 60 lögreglu-
menn hafi verið í varðliðinu hjá þeim
lögregluembættum sem þá voru
starfandi á höfuðborgarsvæðinu.
Árið 2014 hafi sambærileg tala ver-
ið um 30 lögreglumenn þrátt fyrir að
fólki á svæðinu hafi fjölgað um rúm-
lega 78 þúsund manns.
Neyðarútköllum ekki sinnt
Helmingi færri lögreglumenn eru á vakt á höfuðborgarsvæðinu á álagstíma nú
en fyrir þrjátíu árum Lögreglumenn segja að löngu sé komið yfir þolmörk
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lögreglan Fækkað hefur í liðinu.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna átti 26 ára
afmæli í gær og dagurinn var víða haldinn hátíð-
legur hér á landi.
Um 200 börn af frístundaheimilunum í Hlíðun-
um og miðborginni fóru í réttindagöngu og
minntu á grundvallarréttindi barna í sáttmál-
anum. Lagt var af stað frá Hallgrímskirkju og
gengið með kröfuspjöld niður á Austurvöll þar
sem börnin tóku lagið. Einbeitingin skein úr
andlitum barnanna, sem komu frá frístunda-
heimilunum Eldflauginni, Halastjörnunni og
Draumalandinu.
Minnt á réttindi barna á heimsvísu
Morgunblaðið/Eggert
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna átti afmæli í gær
Það sem af er
árinu hefur met-
fjöldi flótta-
manna og hælis-
leitenda fengið
dvalarleyfi á Ís-
landi. Þannig
hafa samtals um
140 kvótaflótta-
menn og hælis-
leitendur fengið
dvalarleyfi á Ís-
landi í ár. Höfðu 296 sótt um hæli í
gær, sem er líka met.
Þetta er mun meiri fjöldi en kom
hingað frá ríkjum fyrrverandi
Júgóslavíu gamla metárið 1999. »6
Metfjöldi fær
dvalarleyfi á Íslandi
Flóttamenn ná
landi í Grikklandi.
Það er aðeins í Hollandi sem eignir líf-
eyrissjóða mælast sem hærra hlutfall
vergrar landsframleiðslu en á Íslandi.
Þannig var hlutfallið 160% í Hollandi í
lok síðasta árs en hérlendis stóð það í
147%. Þetta kemur fram í nýútgefinni
skýrslu OECD. Athygli vekur að
meðan íslenska kerfið byggist að
mestu á innlendum fjárfestingum og
erlendar fjárfestingar eru aðeins um
fjórðungur af kerfinu eða 24,8% hafa
hollenskir lífeyrissjóðir fjárfest
stærstan hluta eigna sinna erlendis
eða tæp 82%.
Raunávöxtun hollensku sjóðanna
var tvöfalt betri en hinna íslensku.
Þannig voru fyrrnefndu sjóðirnir að
meðaltali með 15,1% ávöxtun en hinir
íslensku með 7,2% raunávöxtun að
jafnaði. Af sjóðum innan OECD-
ríkjanna var það aðeins danska kerfið
sem skilaði meiri raunávöxtun en það
hollenska. Í Danmörku reyndist hún
16,7% á síðasta ári.
Aðeins í fjórum ríkjum heims eru
eignir lífeyrissjóða meiri en sem nem-
ur 100% af vergri þjóðarframleiðslu
þess ríkis sem þeir tilheyra. Það eru
eins og áður sagði Holland og Ísland
ásamt Sviss og Ástralíu. »31
Íslenskir lífeyrissjóðir
sterkir í samanburði