Morgunblaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2015 Það var vel viðeigandi aðforseti ECU, Evrópskaskáksambandsins, hinnumdeildi Georgíumaður Zurab Azmaparashvili, skyldi í setningarræðu sinni kalla Laugar- dalshöllina, mótsstað Evrópukeppni landsliða, „Mekka skákarinnar“. Enginn gerði ágreining um þessa skýringu. Svo hófst taflið og menn voru hóflega bjartsýnir á frammi- stöðu íslensku liðanna í opna flokknum og kvennaflokknum. Þar hefur Guðlaug Þorsteindóttir hins vegar farið á kostum. Margir komu til að fylgjast með Magnúsi Carlsen en nokkur bið varð á því að hann settist að tafli. Það gerðist svo í 3. umferð. Hann tapaði þá óvænt fyrir Levon Aronjan, því næst kom jafn- tefli og í 5. umferð tefldu Norð- menn við Svisslendinga. Eftir 45 leiki kom þessi staða upp á 1. borði: Magnús Carlsen – Yannick Pelletier Það blasir við að Magnús þarf að forða hróknum á b8 en staðan er í jafnvægi eftir 46. Hh8 eða 46. Hb5. En menn trúðu vart sínum eigin augum þegar Magnús lék … 46. Hg8?? Svarið kom um hæl: 46. … Re7 … og hvítur tapar manni eftir … 47. Hxg7 Hxd3+ 48. Kc2 Hd7. Heimsmeistarinn barðist áfram um stund en gaf skákina eftir 59 leiki. Þegar þetta er ritað hefur ís- lensku liðunum gengið upp og ofan. Hið svonefnda „gullaldarlið“ hefur átt góða spretti en tímamörkin reyna mikið á, 90 30 á fyrstu 40 leikina er kannski sanngjarnt en síðan taka við tímamörkin 30 30 til enda skákarinnar og það er meira í ætt við atskák en kappskák; lok margra skáka kalla á óðagot í tíma- hraki sem stundum hefur reynst dýrkeypt, sbr. viðureign undirritaðs gegn Austurríki á þriðjudaginn: Helgi Ólafsson – Markus Ragger Þessi staða er jafntefli en óvissan sem fylgdi því að eiga örfáar sek- úndur eftir til að reikna út hvort réttara sé að fara með kónginn til a1 eða b1 hleypti af hörmulegum af- leik: 60. a3+?? Kc4 – og svartur vann nokkrum leik- um síðar. Jafntefli er að hafa með 60. Kb1! En góðu tíðindin voru þau að Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson unnu og Margeir Pétursson náði jafntefli eftir erfiða vörn og sigur vannst á Austurríki, 2 ½:1 ½. „Þú getur enn teflt vel,“ sagði liðsstjóri Austurríksmanna, Zoltan Ribli, við Jóhann eftir skákina sem hér fylgir á eftir: David Shegelia – Jóhann Hjart- arson Enskur leikur 1. Rf3 Rf6 2. c4 b6 3. g3 Bb7 4. Bg2 c5 5. O-O g6 6. d4 cxd4 7. Dxd4 Bg7 8. Rc3 d6 9. Hd1 Rbd7 10. Be3 Hc8 11. Hac1 a6 12. b3 O-O 13. Dh4 He8 14. Bh3 Hb8! Ekkert er nýtt undir sólinni. Jó- hann hefur nokkra reynslu í þessu afbrigði en var samt lengi að rifja upp helstu leiðir. Þetta er án efa besti leikurinn í stöðunni. 15. g4 h5 16. g5 Rh7 17. Rd5 e6 18. Rc3 Dc7 19. Dg3 Re5 20. Rxe5 Bxe5 21. f4 Bg7 22. Df2 f6!? Hirðir ekki um að verja b6-peðið heldur leitar gagnfæra á kóngs- væng. Samvæmt „Houdini“ átti hvítur best 23. gxf6 Rxf6 24. Bxb6 Dc6 25. Kf1! 23. Bxb6 Dc6 24. e4 fxg5 25. Bd4 Bxd4 26. Dxd4 gxf4 27. Dxd6 Dxd6 28. Hxd6 Rg5 29. Bg2 Rf7 30. Hb6 g5 31. Hd1 Re5 Þarna stendur riddarinn vel og peðin á kóngsvæng eru ekki árenni- leg. 32. Hdd6 Kf7 33. c5 a5 34. a3? Tapleikurinn. Hvítur gat haldið í horfinu með 34. Hb5. 34. … Bc6! 35. Ra4 Bxa4 36. bxa4 Hxb6 37. Hxb6 Hd8 38. Hb1 Ke7 39. Hc1 g4 40. Hc2 h4 41. Bf1 g3 42. hxg3 hxg3 43. c6 Rf3+! – og hvítur gafst upp. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is „Þú getur enn teflt vel“ Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 10. nóvember var spilaður tvímenningur með þátttöku 28 para. Efstu pör í N/S (% skor): Kristín Óskarsd. – Unnar Atli Guðmss . 65,9 Jón Sigvaldason – Katarínus Jónsson 61,1 Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimarsson 57,1 Örn Isebarn – Óskar Karlsson 54,5 Jóhann Benediktss. – Pétur Antonss. 53,0 A-V Björn Árnason – Ragnar Jónsson 64,1 Viðar Valdimarss. – Óskar Ólafsson 62,0 Haukur Guðmss. – Sigfús Skúlason 56,7 Sigurður Hallgrss. – Steinmóð. Einarss. 55,4 Ólafur Ólafsson – Anton Jónsson 54,6 Föstudaginn 13. nóvember spiluðu 26 pör tvímenning. Bestum árangri náðu í N/S: Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 60,7 Örn Einarsson – Pétur Antonsson 60,6 Bjarnar Ingimarss. – Bragi Björnss. 56,6 Sigurður Hallgrss. – Steinmóð. Einarss. 55,8 Bjarni Þórarinss. – Magnús R. Jónss. 52,7 A-V Svanh. Gunnarsd. – Magnús Láruss. 57,4 Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 57,1 Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 57,1 Sigfús Skúlason – Jónína Óskarsd. 56,9 Auðunn Guðmss. – Guðm. Sigursteinss. 56,7 BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks- son og er hjálpað til við myndun para fyrir staka spilara. Allir spilarar, vanir sem óvanir, eru velkomnir. Gullsmárinn Spilað var á 11 borðum í Gull- smára fimmtudaginn 19. nóvember. Úrslit í N/S: Guðrún Gestsd. - Ragnar Ásmundss. 212 Guðm. Pálsson - Sveinn Símonarson 205 Kristín Óskarsd. - Unnar A.Guðmss. 201 A/V: Guðlaugur Nielsen - Pétur Jónsson 194 Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmundss. 181 Jón Ingi Ragnarss. - Sæmundur Árnas. 176 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Skugginn samanstendur af mörgum húsum með frábærri hönnun. þar sem hverfið er hannað í heild sinni gefur það þessu hverfi fallega umgjörð sem gerir það eftirsóttara en önnur. Einnig hefur verið mjög góð endursala í íbúðum og hækkandi verð. Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur Skuggahverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Stutt er í alla þjónustu; verslanir, veitingastaði, skóla, heilsugæslu og afþreyingu af ýmsu tagi. Frá Skuggahverfinu er stutt í margar helstu perlur miðborgarinnar, dæmi um áhugaverða staði í næsta nágrenni: Gamla höfnin, Tjörnin, Hljómskálagarðurinn, Skólavörðuholtið, Austurvöllur, Listaháskóli Íslands Sölvhólsgötu, Þjóðleikhúsið, Harpan, Hallgrímskirkja, Sundhöll Reykjavíkur, Landspítali – háskólasjúkrahús, Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Háskóli Íslands. Allir þessir eru í stuttu göngufæri við Skuggann. GRUNNURAÐGÓÐU LÍFI HAFÐU SAMBAND VIÐ STARFSFÓLK OKKAR OG FÁÐU ALLAR UPPLÝSINGAR. 535 1000 stakfell@stakfell.is Allar nánari upplýsingar veitir Þorlákur löggiltur fasteignasali í síma: 820 2399, eða thorlakur@stakfell.is TIL SÖLU: VATNSSTÍGUR 20-22 101 REYKJAVÍK (SKUGGAHVERFI) ÞORLÁKUR ÓMAR EINARSSON Framkvæmdastjóri, löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS ÁLAUGARDAGINN MILLI KL. 13.00 OG 15.00 SÝNINGARÍBÚÐ VIÐ VATNSSTÍG 20-22 Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.