Morgunblaðið - 21.11.2015, Blaðsíða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2015
og Rósa, fórum í afmælisferð til
Skotlands sl. ár og áttum yndis-
lega daga, vorum allar saman í
herbergi og það var lengi vakað,
mikið talað, hlegið og ekki síst
gengið. Við Rósa erum innilega
þakklátar fyrir þennan tíma og
ég ekki síst fyrir yndislega daga í
ágúst sl. er vágesturinn lét
Möggu í friði um tíma.
Elsku hjartans Oddur, Hekla,
Kristinn og fjölskyldur, Stína
mín og systkini Möggu. Við Rósa,
Freyja og fjölskyldur sendum
ykkur hjartans dýpstu og einlæg-
ustu samúð vegna fráfalls yndis-
legrar vinkonu og biðjum að Guð
gefi henni frið og ykkur styrk.
Bjarndís Friðriksdóttir.
Ísafjörður skartaði sínu feg-
ursta er Magga, kær skólasystir
okkar, kvaddi. Hetjulegri baráttu
lokið. Árið 1954 var gott ár, það
fæddust margir púkar á Ísafirði.
Strax í barnaskóla mynduðust
sterk tengsl á milli okkar púk-
anna, mikil vinátta og samheldni
sem hefur fylgt þessum árgangi
alla tíð. Höfum við hist oftar en
gengur og gerist. Magga ólst upp
í Dokkunni í stórum systkinahópi
með yndislegum foreldrum.
Þetta voru góð bernskuár.
Magga var skemmtilegur félagi
og góður vinur, glaðlyndi, hlátur-
mildi og þrautseigja einkenndi
hana og naut hún sín á skólamót-
um og er við hittumst. Þessi sam-
heldni hópur stóð sig einarðlega
vel og saman í prakkarastrikum
sem voru bara saklaus, eins og að
standa með englasvip og vanta
geislabauginn er rafmagnið fór af
skólanum og enginn skildi neitt,
út var kallaður rafvirki sem sá
strax að það hafði verið settur
smápeningur á milli í öryggið.
Við áttum frábærar stundir í úti-
legu í Birkihlíð og í skíðaskálan-
um. Magga flutti ung frá Ísafirði
en ræturnar voru sterkar og síð-
an tók alvara lífsins við. Magga
settist að í Biskupstungum og
eignaðist þrjú mannvænleg börn,
Odd, Heklu og Kristin, og síðar
tengdabörn og barnabörn sem
voru sólargeislarnir hennar og
bar hún hag þeirra mjög fyrir
brjósti.
Magga var listakokkur, sjálf-
lærð, þetta bjó í henni. Það varð
hennar ævistarf að vinna við mat-
reiðslu og allt sem hún bjó til var
gert af alúð og natni og með
hjartanu. Síðasta haust kom
Magga heim til að halda upp á
sameiginlegt afmæli okkar skóla-
systkinanna, en því miður veikt-
ist hún skyndilega og náði ekki að
vera með okkur, en hún greindist
með illvígan sjúkdóm, og var
hennar sárt saknað.
Nú er komið að kveðjustundu
og við skólasystkini hnípin kveðj-
um þig, kæra vinkona, þökkum
fallega samfylgd og samveru og
biðjum börnum þínum og ástvin-
um Guðs blessunar.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veitti hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
F.h. árgangs 1954 á Ísafirði,
Rósa.
Elsku Maggan mín. Þrátt fyrir
sorg í hjarta get ég brosað í gegn-
um tárin því þegar ég hugsa um
Möggu og okkar samskipti og
vinskap í gegnum árin kemur í
hugann kona sem var síhlæjandi
og glöð. Hún var svo mikill gleði-
gjafi og hláturpinni út í gegn.
Auðvitað komu dagar þar sem
var bara talað en ég kýs að muna
hláturinn hennar. Það þurfti ekki
mikið til og svo kom þessi dillandi
hlátur.
Eftir að ég flutti úr Tungunum
urðu samskipti okkar minni, en
þegar við hittumst var eins og við
hefðum hist daginn áður og allt
datt í hlátur. Þegar ég hitti
Möggu eftir að veikindi hennar
uppgötvuðust vildi hún frekar
tala um mig en sig, sem lýsir um-
hyggju hennar gagnvart öðrum.
Ég sé hana fyrir mér og hún seg-
ir: „Já, svona fór þetta Linda
mín, við þessu er ekkert að gera.“
Hún hafði svo mikið æðruleysi
þrátt fyrir að hún væri ekki sátt
við þessa framvindu mála. Hún
átti svo mikið eftir að gera. Hún
vildi allt fyrir alla gera og bar
umhyggju fyrir öðru fólki. Fjöl-
skyldan hennar, börnin hennar
og barnabörn, átti hug hennar
allan og hún ljómaði við að segja
mér hvað hún væri stolt af þeim.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
kynnst henni Möggu því að hún
kenndi mér svo margt, og oftast
án þess að hún gerði sér grein
fyrir því.
Elsku Hekla, Oddur, Kristinn
Páll og fjölskyldur. Ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
þráir lífsins vængja víddir.
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
(Guðmundur Halldórsson)
Berglind Sigurðardóttir.
Hún kom brosandi á móti mér
við bæjardyrnar á Hvítárbakka,
tók þétt í höndina mína og sagði:
Ég heiti Margrét Oddsdóttir.
Þannig hófust okkar kynni og
úr varð vinátta sem stóð alla tíð
þótt samverustundunum fækkaði
með árunum. Þrátt fyrir lítil sam-
skipti síðustu árin var ávallt fagn-
að og hlegið þegar við hittumst,
spurt frétta, rifjaðar upp gömlu
góðu stundirnar og farið yfir það
sem hafði á daga okkar drifið á
liðnum árum.
Samvera okkar í sveitinni – við
störf í Skálholti og á Vitatorgi
stóð í mörg ár og eru þær stundir
ógleymanlegar.
Það var margt brallað, mikið
hlegið, sungið, grátið og líka tek-
ist á – þannig er lífið. Við unnum
náið saman, bjuggum saman með
krökkunum okkar í Skálholti og
Magga var krökkunum mínum og
mér einstakur vinur og gaf sér
alltaf tíma til þess að glettast og
hafa gaman.
Minningarnar geymi ég,
þakka einstaka vináttu, kærleika,
hláturinn dillandi, glettnina í fal-
legu augunum, grátinn og trún-
aðinn.
Yndisleg vinkona með stórt
hjarta, stóran og hlýjan faðm
kveður og ég sakna þess sem var.
Ég og börnin mín minnumst
hennar með þakklæti og gleði.
Góða ferð inn í ljóssins heim,
elsku Magga mín, og hafðu þakk-
ir fyrir allt og allt.
Hversu þreytt sem þú varst,
hvað sem þrautin var sár.
þá var hugur þinn samt
eins og himinninn blár:
eins og birta og dögg
voru bros þín og tár.
Og nú ljómar þín sól
bak við lokaðar brár.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku Oddur Óskar, Hekla
Hrönn, Kristinn Páll og aðrir ást-
vinir. Við sendum ykkur innileg-
ar samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að umvefja ykkur
elsku sinni.
Minningin um Möggu okkar
lifir mild og hlý.
Kærleikskveðja,
Rúna og börnin hennar,
Arnór, Særún, Haukur
og Davíð.
✝ Ingi Þór fædd-ist á Hrafntóft-
um 8. ágúst 1935.
Hann lést á dval-
arheimilinu Kirkju-
hvoli 14. nóvember
2015.
Hann er sonur
hjónanna Pálínu
Þorsteinsdóttur frá
Hrafntóftum, f. 7.5.
1893, d. 23.3. 1970,
og Guðmundar
Þorsteinssonar frá Berustöðum,
f. 22. febrúar 1892, d. 26. júlí
1969. Ingi er yngstur fimm
systkina, hálfsystkini hans eru
Jón, f. 5.11. 1923, d. 11.2. 2001,
Þorsteinn, f. 7.5. 1926, d. 26.3.
1997, Bjarni, f. 28.4. 1928, og
Sigríður, f. 13.6. 1929, d. 6. apríl
2002.
Ingi Þór ólst upp
hjá foreldrum sín-
um og systkinum á
Hrafntóftum. Hann
flytur til Hvera-
gerðis árið 1965
með móður sinni og
Þorsteini bróður
sínum. Þar vann
hann í Ullarþvotta-
stöðinni. Árið 1974
flytur hann að Duf-
þaksholti til Jóns
bróður síns. Þar vann Ingi við
almenn sveitastörf. Árið 2002
flytur Ingi Þór á Dvalarheimilið
Kirkjuhvol á Hvolsvelli og
dvaldi þar til hinstu stundar.
Útförin fer fram frá Stórólfs-
hvolskirkju í dag, 21. nóvember
2015, klukkan 11.
Okkur langar með nokkrum
orðum að kveðja hann Inga, eða
Inga frænda eins og börnin okkar
kölluðu hann. Það er alveg óhætt
að segja að þrátt fyrir stutt veik-
indi hans bar andlát hans brátt að.
Upp streyma minningarnar. Ingi
bjó hér að Dufþaksholti í 28 ár og
var það hans annað heimili eftir að
hann flutti að Kirkjuhvoli.
Á Kirkjuhvoli leið honum vel og
rútínan þar átti vel við hann, allt
eftir klukkunni, svona eins og
hann var. Ingi var duglegur að
taka þátt í félagslífinu og fór á
hverju sumri í ferðir með eldri
borgurum. Hann var sérstaklega
handlaginn og tók virkan þátt í
föndri og annarri handavinnu sem
í boði er á Kirkjuhvoli. Á hverjum
jólum gaf hann sínum nánustu
hvert handverkið á fætur öðru
sem er hér á borðum eða hangir
uppi á veggjum. Ingi var duglegur
að koma í heimsókn eftir að hann
flutti og gekk þá alltaf hingað nið-
ur eftir, nánast í hvaða veðri sem
var, og fannst það ekki mikið mál.
Hann kom alltaf þriðja hvern
föstudag eða laugardag. Ingi
hreyfði sig mikið, gekk um ná-
grenni Hvolsvallar, upp á nýbýli
og á Hvolsfjall, en þaðan sá hann
vel heim og til allra átta. Á sumrin
fylgdist hann með heyskapnum
ofan af Hvolsfjalli, athugaði hvort
Bjarni væri ekki örugglega búinn
að slá eða rúlla. Hann fylgdist vel
með búskapnum og tók rúnt um
útihúsin þegar hann kom í heim-
sókn. Þegar inn kom spurði hann
mikið af hverju þetta væri svona
eða hinsegin, þusaði, hló eða
spurði af hverju hann Bjarni væri
ekki búinn að þessu eða hinu.
Hann átti það líka til að ákveða
hvernig hlutirnir væru og þá var
oft betra að jánka bara í stað þess
að reyna að leiðrétta hann. Næstu
jól verða öðruvísi, börnin okkar
hafa ekki lifað jól án Inga og á
yngsta skottan okkar eflaust eftir
að spyrja um hann.
Hvíl í friði, kæri frændi.
Bjarni, Ragnheiður, Jón,
Anna María og Pálína Björk.
Elsku Ingi okkar. Við kveðjum
þig með þessu ljóði og geymum
góðar minningar í hjarta okkar:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Guð geymi þig, elsku frændi.
Við sjáumst síðar.
Heiðrún og fjölskylda.
Ingi Þór frændi minn hefur
kvatt þennan heim. Andlát hans
bar brátt að. Ingi fæddist á Hrafn-
tóftum, sonur Pálínu Þorsteins-
dóttur og Guðmundar Þorsteins-
sonar. Hann flutti síðar með föður
mínum, bróður sínum, Þorsteini
Bjarnasyni, og móður sinni til
Hveragerðis. Þar vann hann í Ull-
arþvottastöðinni. Síðar flutti hann
til Jóns, bróður síns, að Dufþaks-
holti og undi sér vel í sveitinni í
mörg ár. Árið 2002 flutti hann á
Dvalarheimilið Kirkjuhvol á
Hvolsvelli. Ég hef þekkt Inga allt
mitt líf og tengdist honum sterk-
um böndum strax á unga aldri,
meðal annars þegar ég dvaldi
sumur löng í sveit í Dufþaksholti
hjá frændfólki okkar. Þegar ég
var lítil stelpa og var skömmuð tók
Ingi því illa og varði frænku sína,
sama hversu brotið var alvarlegt.
Hið sama gerði ég fyrir hann þeg-
ar ég hafði aldur til. Það var ekki
hægt annað en þykja vænt um
Inga. Hann var ættrækinn og trúr
sínum vinum. Sagði sínar skoðanir
umbúðalaust hvort sem manni lík-
aði betur eða verr. Hann var strax
talinn sérstakur en foreldrar hans
og fjölskylda pössuðu vel upp á
hann. Kaflaskipti urðu í lífi hans
þegar hann flutti á dvalarheimilið.
Þá varð hann sjálfstæðari. Ég
dáðist oft að því hvað hann var
duglegur að bjarga sér. Hann var
heilsuhraustur og fór í gönguferð-
ir á hverjum degi, nánast sama
hvernig viðraði, og var léttur á
fæti. Hann fór mörg ferðalög með
eldri borgurum og tók þátt í öllu
sem í boði var. Nýir tímar tóku
við. Fyrsta flugið, fyrsta sjóferðin
og tvær utanlandsferðir. Ingi
stundaði handavinnu af krafti. Þar
smíðaði hann, saumaði, málaði og
margt fleira. Þessa fallegu muni
gaf hann ættingjum sínum í jóla-
gjöf. Hann fylgdist vel með stjórn-
málum og missti helst ekki af
neinum fréttatímum og tók öll
veðurskeyti. Hann var framsókn-
armaður fram í fingurgóma. Það
var oft stutt í brosið og glettnina.
Hann hafði sinn sérstaka húmor.
Ingi las alltaf mikið enda orðinn
læs áður en hann byrjaði í skóla.
Hann mat stundum bækur eftir
þykkt þeirra en ekki endilega eftir
innihaldinu. Á hverjum jólum þeg-
ar ættingjar hans sendu honum
gjafir var hann búinn að rífa smá-
gat á pakkana til þess að sjá inni-
haldið nokkrum dögum fyrir jól.
Eitt skiptið líkaði honum ekki sú
bók sem var í pakkanum og
hringdi 20. desember í Bryndísi,
frænku sína, og sagði að hann vildi
ekki þessa bók, hann vildi fá bók-
ina hans Guðna. Þannig var Ingi,
einlægur og saklaus. Hann fór
alltaf í orlof nokkrum sinnum á ári
til Reykjavíkur og einnig að Duf-
þaksholti. Allt var í föstum skorð-
um og gegndi klukkan veigamiklu
hlutverki í hans lífi. Hann leit upp
til systkina sinna og bar mikla
virðingu fyrir þeim. Það tók á
hann að missa þau. Bjarni Bjarna-
son kennari er nú einn eftirlifandi
systkina hans. Ég stikla á stóru en
geymi fallegar og góðar minning-
ar um kæran frænda minn og góð-
an vin í hjarta mínu. Guð geymi
þig, elsku Ingi minn. Þín verður
sárt saknað. Ég kveð þig með
þessum fátæklegu orðum.
Margt þú hefur misjafnt reynt,
mörg þín dulið sárin.
Þú hefur alltaf getað greint,
gleði bak við tárin.
(J.Á.)
Þín frænka,
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir.
Ingi er fæddur og uppalinn á
Hrafntóftum. Bækur skipuðu
stóran sess í lífi Inga, sem var orð-
inn læs áður en hann hóf skóla-
göngu. Ingi Þór flutti til Hvera-
gerðis ásamt móður sinni til
Þorsteins Bjarnasonar, bróður
síns. Þar starfaði hann í Ullar-
þvottastöðinni, hann vann öll sín
verk með mikilli nákvæmni, stilla
hefði mátt klukkuna eftir honum.
Á dánarbeði Pálínu, móður Inga,
bað Pálína Þorstein, son sinn, fyr-
ir Inga sem hann gerði með prýði.
Síðar flutti Ingi til Jóns, bróður
síns, að Dufþaksholti, þar undi
hann sér við sveitastörf. Það gekk
oft mikið á í eldhúsinu í Dufþekju,
en þó svo að Ingi væri sérstakur
varð ég aldrei var við annað en að
fólkið hans talaði við hann sem
jafningja.
Eftir að við eiginkona mín,
Hrafnhildur bróðurdóttir Inga,
fórum að búa fyrir 22 árum kom
Ingi til okkar fjórum sinnum á ári
og var í viku í senn. Upp í hugann
koma minningar frá því þegar við
fórum til Vestmannaeyja, en þá
hafði Ingi aldrei komið í flugvél,
bát og þess þá heldur til Eyja, en
þá var flogið frá Bakka. Ferð var
farin til Húsavíkur í hvalaskoðun
um Akureyri með Flugfélaginu,
en þá hafði verið ofbókað í flugið
til baka um kvöldið og buðu þeir
okkur þá gistingu á Hótel KEA.
Nýttum við þá kvöldið vel og fór-
um í Sjallann. Einnig minnist ég
fyrstu utanlandsferðarinnar til
Dublin, fór ég með honum til halds
og trausts. En í þeirri ferð týndist
einn úr hópnum, Bragi Ólafsson,
en hann var líka sérstakur, sagði
Ingi þá: „Hva, það þýðir ekkert að
taka svona menn með í túr.“ Ingi
bjó að því að gera sér ekki grein
fyrir fötlun sinni, en líklega er það
að þakka ástkæru uppeldi, þar
sem hann vandist því hjá systk-
inum sínum að talað var til hans
sem jafningja.
Ingi var mikið snyrtimenni.
Þegar við fórum með honum að
skoða herbergið á elliheimilinu
sleikti hann puttann og strauk eft-
ir gereftinu. Vakti það kátínu hjá
forstöðukonunni. Seinni ár var
Ingi duglegur að ganga, fór dag-
lega í göngutúra á Hvolsvelli.
Hann var alltaf líkamlega hraust-
ur og vel á sig kominn. Því kom
það okkur sem næst honum stóðu
mjög á óvart að hjartað skyldi
gefa sig núna á áttugasta og fyrsta
árinu. En því miður virðist hann
hafa orðið fórnarlamb vannærðs
heilbrigðiskerfis. En eftir á að
hyggja hafði hann flest einkenni
manns með hjartabilun í rúma
viku, ógleði, uppköst, brjóstverk
og algjört úthaldsleysi en ekki
þótti lækninum sem virðist orðinn
holdgervingur niðurskurðar,
ástæða til að senda málleysingj-
ann með forgang í rannsókn á
spítala. Eftir sitjum við sem næst
stóðum honum með sektarkennd
yfir því að hafa ekki tekið fram
fyrir hendur á ormétnu heilbrigð-
iskerfinu sem telur kannski ekki
hagkvæmt að halda lífinu í mál-
leysingja á níræðisaldri.
Það smáa er stórt í harmanna heim, –
höpp og slys bera dularlíki, –
og aldrei er sama sinnið hjá tveim,
þótt sama glysi þeir báðir flíki. –
En mundu, þótt veröld sé hjartahörð,
þótt hrokinn sigri og rétturinn víki,
bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð,
varð auðlegð á vöxtum í guðanna ríki.
(Einar Ben.)
Ingi átti dásamlegt ævikvöld á
dvalarheimilinu á Hvolsvelli.
Ingi bjó að því alla ævi að nán-
asta fólkið hans hugsaði vel um
hann. Þar ber helst að nefna fólkið
hans í Dufþaksholti og á Sáms-
stöðum.
Eftir að Þorsteinn bróðir Inga
lést tók Hrafnhildur dóttir Þor-
steins við keflinu og hugsaði um
Inga frænda sinn af mikilli alúð og
umhyggju til dauðadags.
Kæri Ingi, þakka þér fyrir allar
góðu stundirnar.
Þór Þorsteinsson.
Ingi Þór
Guðmundsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku frændi.
Við söknum þín mikið og
við munum aldrei gleyma
þér.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Þínar frænkur,
Birta María og Hekla Rún.
Ástkær faðir okkar,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
skipstjóri og útgerðarmaður, Ísafirði,
lést á Landspítalanum 13. nóvember.
Minningarathöfn verður í Neskirkju við
Hagatorg mánudaginn 23. nóvember
klukkan 13.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 28. nóvember klukkan 14.
.
Bryndís Guðmundsdóttir,
Jóna Margrét Guðmundsdóttir,
Ingibjörg G.Guðmundsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR,
Háleitisbraut 44,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu Reykjavík 3. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
.
Börn, tengdabörn og ömmubörn.